Líkamsárás, eignaspjöll og menn undir áhrifum Það er óhætt að segja að verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt hafi verið fjölbreytt en útköll bárust meðal annars vegna líkamsárásar, fíkniefnaneyslu, ofurölvi einstaklinga og innbrota. 26.10.2022 06:20
Hádegisfréttir Bylgjunnar Brottkast, biðtími eftir aðgerðum, móttaka flóttamanna og leiðtogabrölt verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 24.10.2022 11:43
ASÍ uggandi vegna gerviverktöku og „techno-stress“ Alþýðusamband Íslands segist styðja að gerð verði úttekt á tækifærum í fjarvinnu og fjarvinnustefna unnin fyrir íslenskan vinnumarkað en varar við að til grundvallar verði að liggja viðurkenndar og ítarlegar rannsóknir. 24.10.2022 07:28
86 prósent 735 nýrra stöðugilda á klínískum deildum Stöðugildum á Landspítalanum fjölgaði um 735 árin 2016 til 2021. Þar af voru 86 prósent á klínískum deildum og/eða í klínískum verkefnum. 24.10.2022 06:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Einelti í Hafnarfirði, bólusetningar gegn HPV-veirunni, ringulreið á breska stjórnarheimilinu og öðruvísi kennsluaðferðir í Vestmannaeyjum verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar. 21.10.2022 11:27
Breiðvirkt bóluefni gegn HPV gefið bæði stúlkum og drengjum Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að öllum börnum, óháð kyni, verði boðin bólusetning gegn HPV-veirunni. Jafnframt verður nýtt breiðvirkara bóluefni tekið til notkunar, sem veitir víðtækari vörn gegn krabbameinum af völdum HPV. 21.10.2022 09:36
Bandaríkjamenn eignast móðurfélag Livio á Íslandi Bandaríska fjárfestingafélagið Kohlberg Kravis Roberts hefur keypt sænska fyrirtækið Livio AB, sem sérhæfir sig í glasafrjóvgunum og öðrum úrræðum við ófrjósemi. Livio AB á 64 prósenta hlut í íslenska dótturfélaginu Livio, sem er eina fyrirtækið á Íslandi sem býður upp á glasafrjóvganir. 21.10.2022 09:07
Segir Rússa hafa í hyggju að eyðileggja 400 kílómetra áveitu Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir Rússa hafa í hyggju að eyðileggja vatnsaflsvirkjun og stíflu í austurhluta Kherson-héraðs, þar sem Úkraínumenn hafa sótt hart gegn innrásarhernum. 21.10.2022 08:11
Sunak, Johnson og Mordaunt virðast njóta mests stuðnings Rishi Sunak, Boris Johnson og Penny Mordaunt eru þeir kandídatar sem flestir þingmenn Íhaldsflokksins hafa lýst yfir stuðningi við til að verða næsti leiðtogi flokksins og þar með næsti forsætisráðherra. 21.10.2022 07:33
618 ársgömul börn á biðlista eftir leikskólaplássi Enn bíða 618 börn 12 mánaða og eldri eftir að fá leikskólapláss í Reykjavík. Nærri hundrað pláss eru ónýt vegna myglu og þá hefur ekki tekist að manna leikskólana til að geta boðið fleiri pláss. 21.10.2022 06:56
Segir fæðingarorlofskerfið meingallað: „Ótrúlegt að þetta hafi viðgengist í svona langan tíma“ Innlent