Bitcoinsjóðir stærri en lífeyriskerfið en prófessor segir hnignunarfasa að hefjast Umfang bitcoin kauphallarsjóða, sem hafa einungis verið starfræktir í tvo mánuði, er orðið meira en allt íslenska lífeyriskerfið, segir fjárfestir í rafmyntum sem furðar sig á áhugaleysi fyrirtækja í fjármálageiranum hér á landi. Hagfræðiprófessor telur að fái bitcoin ekki „almennilega notkun“ í framtíðinni verði það verðlaust og líkir slíkum fjárfestingum við kaup á frímerkjum. 14.3.2024 08:21
Meiri samkeppni á Íslandi um innlán heimila en almennt í Evrópu Seðlabankinn segir að miðlun íslenskra banka á peningastefnunni sé góð. „Þar sem hlutfall innlána heimila sem bera háa vexti á Íslandi er mun hærra en almennt gerist í Evrópu virðist miðlun meginvaxta í vexti innlána heimila í heild mest á Íslandi,“ segir bankinn og nefnir að ein helsta skýringin á þessum mun kunni að vera að meiri samkeppni ríki um innlán heimila á Íslandi en almennt gerist í Evrópu. 13.3.2024 12:28
Nálgast erlenda markaði af meiri varkárni en snörp leiðrétting ekki í kortunum Hlutabréfavísitölur beggja vegna Atlantsála eru í hæstum hæðum um þessar mundir og forsvarsmenn sumra íslenskra lífeyrissjóða segjast því nálgast erlenda hlutabréfamarkaði af meiri varkárni en áður. Aðrir eru hins vegar hóflega bjartsýnir um ávöxtunarhorfur til næstu ára og sjá að „óbreyttu ekki skýr teikn á lofti um snarpa leiðréttingu“ á mörkuðum, að mati eins sjóðstjóra. 11.3.2024 13:45
Sverrir Viðar kaupir og sameinar tvö félög sem velta munu þremur milljörðum Sverrir Viðar Hauksson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Lykli og Heklu, og sjóður á vegum Ísafold Capital Partners hafa keypt Verslunartækni og Bako Ísberg í því skyni að sameina félögin. Sameinað félag munu að líkindum velta þremur milljörðum króna í ár. 8.3.2024 14:25
Horfur á að „stíflan bresti“ og fjárfestar fái fé frá framtakssjóðum eftir þurrkatíð Útgreiðslur til sjóðsfélaga bandarískra framtakssjóða eru nú í lægstu gildum síðan í fjármálakrísunni 2008 til 2009 og eru margir orðnir langeygir eftir að fá laust fé í hendur. Það eru „ágætar horfur á því að stíflan bresti á árinu“, og fjárfestar fái loksins laust fé í hendur eftir „þurrkatíðina“ síðustu tvö árin, segir aðalhagfræðingur Kviku. 7.3.2024 13:49
Rekstur Strax stokkaður upp og eigið fé neikvætt um sjö milljarða Strax, sem er í meirihluta eigu tveggja Íslendinga og er skráð í sænsku kauphöllina, á í erfiðleikum og hefur markaðsvirði þess lækkað um 86 prósent á einu ári. Eigið var neikvætt um 7,4 milljarða króna og félagið uppfyllir ekki lánaskilmála. Unnið er að endurskipulagningu á rekstrinum og var Urbanista meðal annars selt fyrir tæplega fjóra milljarða til lánveitanda. 6.3.2024 12:28
Bankar veita „skjól á tvísýnum tímum“ og verðmat Íslandsbanka hækkar Viðskiptabankar veita skjól á tvísýnum tímum, segir í hlutabréfagreiningu þar sem verðmat Íslandsbanka hækkar um 18 prósent frá síðasta mati. Verðmatið er 39 prósentum hærra en markaðsgengi. 5.3.2024 16:30
Lífeyrissjóðir vilja að rýmkaðar heimildir eigi við um allar óskráðar eignir Landssamtök lífeyrissjóða kalla eftir því að heimildir til þess að fjárfesta í óskráðum eignum verði rýmkaðar. Fjármála- og efnahagsráðherra er með frumvarp til umsagnar um að lífeyrissjóðir fái auknar heimildir til að fjárfesta í óskráðum fasteignafélögum á íbúðamarkaði en sjóðirnir vilja auka heimildina án tillits til kjarnareksturs. 4.3.2024 13:50
Arion hyggst stórauka eignir í stýringu og skoðar að stofna fasteignafélag Arion banki, sem er með leiðandi stöðu á eignastýringarmarkaði, stefnir á að auka eignir í stýringu samstæðunnar um meira en fjörutíu prósent á næstu fimm árum. Þá hefur bankinn hefur til skoðunar að stofna fasteignafélag á íbúðamarkaði sem mögulega yrði skráð í Kauphöll. 1.3.2024 16:40
Undantekning að samspil trygginga- og fjármálastarfsemi „gangi ekki vel“ Forstjóri Skaga, móðurfélag tryggingafélagsins VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar, segist sjá mikil tækifæri í samþættingu í tryggingafélagsins við fjármálstarfsemi. Reynslan hérlendis og alþjóðlega sýni að slíkt samspil sé farsælt. „Það heyrir heldur til undantekninga að slíkt samspil gangi ekki vel.“ 1.3.2024 13:35