Hætt við sameiningu sýslumannsembættanna Dómsmálaráðherra er hættur við áform fyrri ráðherra um sameiningu sýslumannsembættanna. Fyrrverandi dómsmálaráðherra tilkynnti áformin fyrir ári síðan og voru þau afar umdeild. 22.9.2023 11:53
Samningur við matvælaráðuneytið tilraun SKE til að bregðast við fjárskorti Forstjóri Samkeppniseftirlitsins, SKE, segir það una úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála um að dagsektir sem eftirlitið lagði á Brim hf. hafi verið ólögmætar. Hann segir forsendur fyrir samningi við matvælaráðuneytið brostnar og málið birtingarmynd fjársveltingar. 21.9.2023 10:17
Óttast þjóðernishreinsun og reyna að flýja Nagorno-Karabakh Hersveitir armenskra aðskilnaðarsinna í Nagorno-Karabakh hafa gefist upp fyrir Aserum, sem gerðu atlögu að héraðinu í gær. Þúsundir Armena hafa safnast saman við flugvöll héraðsins og bíða eftir að geta flúið. 20.9.2023 20:53
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Læknir sem gerði banvæn mistök þegar hann tók á móti barni segir ekkert mikilvægara en að heilbrigðisstarfsfólk segi sannleikann og gangist strax við mistökum sínum. Hann telur fámenni Íslendinga gera þessi mál erfiðari. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2. 17.9.2023 18:03
Hádegisfréttir Bylgjunnar Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins segir flokkinn ekki vera heilaga kýr og boðar mögulegt klofningsframboð frá flokknum ef frumvarp sem utanríkisráðherra hefur boðað fær fram að gana. Rætt verður við hann í hádegisfréttum á Bylgjunni. 17.9.2023 11:36
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Systir íslensks manns sem hefur ekki skilað sér heim frá Dóminíska lýðveldinu, tæpri viku eftir að hann átti að koma aftur heim, segir fjölskylduna vera miður sín, en haldi í vonina. Rætt verður við hana í kvöldfréttum Stöðvar 2. 16.9.2023 18:15
Blóð tekið úr færri hryssum þegar reglugerð ESB tekur við Reglugerð um blóðmerahald, sem gilt hefur undanfarið ár, mun falla úr gildi 1. nóvember næstkomandi. Reglugerð Evrópusambandsins um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni mun taka gildi um starfsemina í staðin. 16.9.2023 15:13
Hádegisfréttir Bylgjunnar Formaður Skólafélags MA segist óttast að tæplega fimm þúsund undirskriftir, sem safnað var til að mótmæla fyrirhugaðri sameiningu skólans við VMA, endi í ruslinu eftir að hafa verið afhentar ráðherra í dag. Rætt verður við formanninn í hádegisfréttum á Bylgjunni. 16.9.2023 11:47
Líður vel á áttunda degi hungurverkfalls Mörg hundruð kvikmyndagerðarmenn hafa farið fram á að hvalveiðar verði stöðvaðar. Dýraverndarsinnar segja einn hvalanna sem dreginn var á land í morgun hafa verið skotinn með minnst tveimur hvalskutlum. Þeir segja ekki koma á óvart ef lög um dýravelferð voru brotin við veiðar. 8.9.2023 23:01
Þarf að skila skýrslu um tvískotinn hval innan tveggja virkra daga Þrjár langreyðar hafa verið veiddar af hvalveiðiskipunum Hvali 8 og 9. Dýraverndunarsinni sem fylgst hefur með starfsemi Hvals í Hvalfirði segir einn hvalanna hafa verið skotinn minnst tvisvar með skutli og veiðarnar því ekki í samræmi við nýja reglugerð. 8.9.2023 12:01