Starfandi forseti og æðsti herforingi Alsír látinn Alsírski hershöfðinginn Ahmed Gaid Salah, sem er þekktur fyrir að hafa hvatt fyrrverandi forseta Alsír, Abdelaziz Bouteflika að segja af sér, er látinn 79 ára að aldri. 23.12.2019 12:12
WOW Air leigir húsnæði fyrir væntanlega söluskrifstofu í Washington WOW Air hefur tekið húsnæði á leigu í Washingtonborg í Bandaríkjunum og merkt það félaginu. Til stendur að opna þar söluskrifstofu þegar félagið mun hefja flug á milli Washington og Keflavíkur. Þetta staðfestir Gunnar Steinn Pálsson, almannatengill félagsins. 23.12.2019 11:01
Bjarni segir greinilega veikleika í kerfum sem ekki var vitað nóg um "Það er alveg greinilegt að það hafa komið fram veikleikar í kerfum okkar sem við vorum ekki nægilega meðvituð um. Það er til að mynda mjög alvarlegt þegar við áttum okkur á því að grunnstofnanir eru ekki með neitt varaafl og vararafstöðvar á viðkvæmum svæðum hefðu þurft að vera til staðar,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra í Víglínunni í dag. 15.12.2019 18:00
Ofsaveðrið hitamál í Víglínunni Ofsaveðrið sem gekk yfir landið í vikunni og þær afleiðingar sem það hefur haft hefur vakið margar spurningar um innviði landsins og hvað þurfi að gera betur. Elín Margrét Böðvarsdóttir fréttamaður fær Bjarna Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í Víglínuna á Stöð 2 í dag. 15.12.2019 17:15
Lýst eftir foreldrum yfirgefinna barna í Danmörku Lögreglan á Austur-Jótlandi hafa enn ekki fundið foreldra eða aðra ættingja tveggja ungra barna sem fundust í gær í götunni Park Allé í miðborg Árósa. Lögreglan birti í dag myndir af börnunum, eins árs gamalli stelpu og tveggja og hálfs árs gömlum stráki. 15.12.2019 16:30
Forstöðumaður Zuism orðinn þreyttur á stríði við yfirvöld "Ég er búinn að fá nóg, ég er búinn að eiga í þessum slag og standa einn í þessum slag fyrir félaga mína og búinn að bjóða þeim öllum að fá borgað ef þeir vilja fá borgað og nú munu þeir aftur geta fengið borgað, ef þeir telja sig hafa misst af,“ segir Ágúst Arnar Ágústsson, forstöðumaður trúfélagsins Zuism. 15.12.2019 14:02
Michelle Ballarin fór af landi brott í morgun Bandaríska athafnakonan Michelle Ballarin fór af landi brott í morgun en hún hefur verið hér síðustu daga og unnið að endurreisn WOW Air. 15.12.2019 12:46
„Skotland getur ekki verið fangelsað af Bretlandi“ Nicola Sturgeon, forsætisráðherra Skotlands, sagði að Skotland geti ekki verið fangelsað í Bretlandi gegn vilja þess af bresku ríkisstjórninni. 15.12.2019 11:24
Systurfyrirtæki eins stærsta ópíóíðaframleiðandans setur mótefni á markað Systurfyrirtæki ópíóðaframleiðandans Purdue Pharma hefur sett á markað mótlyf við ópíóíða ofskömmtun. 15.12.2019 10:38
al-Bashir dæmdur í tveggja ára endurhæfingu vegna spillingar Omar al-Bashir, fyrrverandi forseti Súdan, hefur verið dæmdur til að afplána tveggja ára dóm í félagslegri endurhæfingarmiðstöð vegna spillingar. 14.12.2019 14:49