Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Að ó­breyttu muni um­ferðin halda á­fram að þyngjast

Ferðatími á tíu kílómetra leið á milli Hafnarfjarðar og Háskóla Íslands getur þrefaldast þegar framhaldsskólar og háskólar hefja starf að nýju síðsumars. Leið sem annars tekur um sextán mínútur á bíl getur tekið fimmtíu mínútur í morgunumferðinni.

Urðu fyrir von­brigðum með húsnæðispakka tvö

Samtök iðnaðarins segja annan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar valda vonbrigðum. Pakkinn boði 1.200 til 1.400 íbúðir á ríkisreitum í Reykjavík, en taki ekki á boðuðum skattahækkunum, háum álögum eða erfiðum lánþegaskilyrðum sem halda aftur af sölu nýbygginga.

„Við verðum að fá fólk heim aftur“

Grindvískt fjölskyldufyrirtæki vinnur nú að því að fylla upp í allt að 15 metra djúpa sprungu við íþróttahúsið í Grindavík. Framkvæmdastjórinn segir verkið snúast um að gera bæinn öruggan á ný fyrir börn og fjölskyldur.

Inga kemur Ingó til varnar

Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, kom tónlistarmanninum Ingó Veðurguð til varnar í Brotkasti, hlaðvarpi Frosta Logasonar. Hún gagnrýnir það sem hún kallar slaufunarmenningu og dómstól götunnar í garð hans.

Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir ekki þurfa nýja ákvörðun af hennar hálfu vegna hvalveiða í sumar. Veiðarnar byggi á reglugerð sem Bjarni Benediktsson, þáverandi matvælaráðherra, setti fyrir árslok 2024 og nýrri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Hennar framtíðarsýn sé að draga úr og að lokum hætta hvalveiðum.

Fjölgar í hópi sak­borninga og ráðist í hús­leit

Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á ætluðum innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með gámaflutningaskipinu Dettifossi. Lögregla hefur ráðist í húsleit hjá tveimur þeirra.

Raforkureikningur í dreif­býli gæti lækkað strax í júlí

Raforkureikningur meðalstórs kúabús gæti lækkað um 400 til 500 þúsund krónur á ári verði frumvarp um jöfnun raforkukostnaðar samþykkt á Alþingi. Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax 1. júlí verði frumvarpið að lögum.

Sjá meira