Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði. 5.10.2020 09:26
Ráðherra sakar Ágúst Ólaf um „botnlausa kvenfyrirlitningu“ Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sakað Ágúst Ólaf Ágústsson, þingmann Samfylkingarinnar, um „botnlausa kvenfyrirlitningu“ vegna orða sem hann lét falla í Sprengisandi á Bylgjunni á laugardag. 5.10.2020 08:49
Aldrei stærra svæði orðið eldi að bráð í Kaliforníu Met sem fáum hugnast var slegið í Kalifornía í gær þegar yfirvöld gáfu það út að nú hafi fjórar milljónir ekra, um 16 þúsund ferkílómetrar, brunnið í yfirstandandi skógar- og kjarreldum í ríkinu. 5.10.2020 08:03
Norðan gola eða kaldi og léttskýjað suðvestantil Landsmenn mega eiga von á norðan golu eða kalda í dag þar sem verður léttskýjað suðvestanlands, en annar staðar skýjað og með dálítilli vætu austantil. Hitinn verður á bilinu 3 til 10 stig. 5.10.2020 07:47
Trump gagnrýndur fyrir bíltúr fyrir utan sjúkrahúsið Donald Trump Bandaríkjaforseti fór í bíltúr í gærkvöldi til að heilsa upp á stuðningsmenn sína sem hafa komið saman fyrir utan Walter Reed spítalann í Maryland, norður af höfuðborginni Washington DC. 5.10.2020 07:34
Bátarnir komnir til hafnar á Djúpavogi Bátarnir sem unnu að því að koma litlu fiskiskipi af grynningu við Papey í gærkvöldi komu til hafnar á Djúpavogi um miðnætti. 5.10.2020 07:17
Hvenær ársins er best að fella aspir? Gurrý segir að út frá plöntulífeðlisfræðinni þá er langbest að fella aspir á vorin, þegar þær eru nýlaufgaðar. 5.10.2020 07:01
Íslendingur dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni í Svíþjóð Dómstóll í Solna í Svíþjóð hefur dæmt 51 árs gamlan Íslending, Ægi Sigurbjörn Jónsson, í tveggja og hálfs árs fangelsi og greiðslu miskabóta fyrir kynferðisbrot gegn barn, tælingu og líkamsárás. 3.10.2020 19:30
37 greindust innanlands og þrír nú á gjörgæslu 37 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Ellefu þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu, 26 ekki. Alls eru þrettán nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. 2.10.2020 11:04
Armenar reiðubúnir til viðræðna um vopnahlé Aserar segjast hins vegar einungis ætla að hætta hernaðaraðgerðum þegar armenskar hersveitir hafi hörfað. 2.10.2020 10:04