Kolbeinn vill leiða lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér til að leiða lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi í forvali flokksins sem sé framundan. 20.1.2021 07:47
Maður á reynslulausn handtekinn fyrir búðarhnupl Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi mann eftir að tilkynnt var um þjófnað úr verslun í hverfi 101 í Reykjavík. Í tilkynningu frá lögreglu segir að maður í annarlegu ástandi hafi þar verið staðinn að því að stela vörum. 20.1.2021 07:22
Segir leitt að missa 4×4 og hafnar ásökunum um harðlínustefnu „Okkur finnst mjög leiðinlegt að missa 4×4. Það eru mjög mörg mál sem við eigum sameiginleg og hagsmunir sem við eigum sameiginlega.“ Þetta segir Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, um ákvörðun Ferðaklúbbsins 4×4 að segja sig úr Landvernd. Hún hafnar ásökunum klubbsins um að Landvernd hafi rekið stefnu undanfarin ár sem hafi verið öfgakennd og markast af harðlínu. 15.1.2021 14:24
250 milljónir í nýtt grasæfingasvæði Fram í Úlfarsárdal Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar að bjóða út framkvæmdir vegna nýs grasæfingasvæði fyrir knattspyrnuiðkun á íþróttasvæði Fram í Úlfarsárdal. Þar verða tveir æfingavellir með vökvunarkerfi, en kostnaðaráætlun hljóðar upp á 250 milljónir króna. 15.1.2021 13:31
Bertheussen dæmd í tuttugu mánaða fangelsi Dómstóll í Noregi dæmdi í morgun Lailu Anitu Bertheussen, sambýliskonu dómsmálaráðherrans fyrrverandi, Tor Mikkel Wara, í tuttugu mánaða fangelsi fyrir hótanir og árás á æðstu stofnanir norska ríkisins. 15.1.2021 12:53
Þrír kljást um að verða næsti formaður Kristilegra demókrata Landsfundur Kristilegra demókrata (CDU) í Þýskalandi, flokks Angelu Merkel kanslara, fer fram á netinu um helgina þar sem 1.001 landsfundarfulltrúi mun velja nýjan formann flokksins. Vinni Kristilegir demókratar sigur í þingkosningunum næsta haust kann svo að fara að nýr formaður CDU verði næsti kanslari landsins. Þrír karlar sækjast nú eftir að leiða flokkinn. 15.1.2021 11:27
Fimm greindust innanlands Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en einn ekki. Sjö greindust á landamærum. 15.1.2021 10:56
Gítarleikari New York Dolls látinn Sylvain Sylvain, gítarleikari bandarísku rokk- og pönksveitarinnar New York Dolls, er látinn, 69 ára að aldri. 15.1.2021 09:29
Vara við mjög lúmskri hálku víða á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur varað við „mjög lúmskri hálku“ víða á höfuðborgarsvæðinu. Er fólk hvatt til að fara varlega í umferðinni. 15.1.2021 08:01
Kynnti 1.900 milljarða dala aðgerðapakka Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, kynnti í gærkvöldi aðgerðapakka sem ætlað er að örva bandarískan efnahag í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Alls er fyrirhugað að verja 1.900 milljörðum Bandaríkjadala til ýmissa verkefna og meðal annars fá allir landsmenn 1.400 dala eingreiðslu, um 180 þúsund krónur. 15.1.2021 07:42