Bernanke í hópi nýrra handhafa Nóbelsins í hagfræði Bandarísku hagfræðingarnir Ben S. Bernanke, Douglas W. Diamond og Philip H. Dybvig fá hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nóbel í ár fyrir rannsóknir sínar á bönkum og fjármálakreppum. 10.10.2022 09:52
Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Tilkynnt verður hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nobel í ár á fréttamannafundi klukkan 9:45. 10.10.2022 09:43
„Þeir reyna að tortíma okkur og þurrka út af yfirborði jarðar“ Sprengjuárásir rússneska hersins á Kænugarð og fleiri úkraínskar borgir í morgun sýna fram á að Rússar séu að reyna að tortíma Úkraínumönnum og þurrka þeim út af yfirborði jarðar. 10.10.2022 07:50
Van der Bellen endurkjörinn sem forseti Austurríkis Alexander Van der Bellen var endurkjörinn sem forseti Austurríkis í forsetakosningum sem fram fóru í gær. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum frá innanríkisráðuneyti landsins fékk van der Bellen hreinan meirihluta atkvæða, en sjö voru í framboði. 10.10.2022 07:16
Stormur austantil en lægir smám saman Reikna má með norðvestan hvassviðri eða stormi um landið austanvert í dag og éljum norðaustantil. Veðurstofuan spáir þó að það muni stytta upp í dag og lægja smám saman. 10.10.2022 06:39
Aftur byrjuð að ávarpa farþega fyrst á íslensku Flugliðar í áhöfn flugvéla Icelandair eru aftur farnir að ávarpa farþega fyrst á íslensku og að því loknu á ensku við flugtak og lendingu. Með þessu er horfið aftur til þess sem áður var, en fyrir nokkrum árum var fyrirkomulaginu breytt og farþegar fyrst ávarpaðir á ensku. 10.10.2022 06:31
Gekk berserksgang og reyndi að kveikja í íbúð annars manns Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók mann sem hafði valdið töluverðu tjóni í íbúð annars manns og kastað til og skemmt innanstokksmuni. 10.10.2022 06:13
Skel kaupir Klett og Klettagarða á samtals 3,8 milljarða Skeljungur ehf., sem er í fullri eigu Skel fjárfestingafélags hf, keypt alls hlutafé í Kletti – sölu og þjónustu. Samhliða kaupunum hefur Skel samþykkt að kaupa allt hlutafé í Klettagörðum 8-10 ehf., félagi sem á og rekur húsnæðið sem hýsir starfsemi Kletts. Samanlagt kaupverð er 3,8 milljarðar króna. 7.10.2022 14:51
Grét næstum af gleði þegar hún frétti af niðurstöðunni „Ég er ennþá að átta mig á þessu. Þvílík gleði. Það er bara þannig að þegar ég frétti af þessu þá fór ég næstum því að gráta. Ég er svo glöð að þessi niðurstaða hafi komið því maður gat alveg eins átt von á öðru,“ segir Sigríður Heiða Bragadóttir, skólastjóri Laugarnesskóla, um þá niðurstöðu skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur um að byggja skuli við löngu sprungna grunnskóla í Laugardal. 7.10.2022 14:32
Söngkonan Jody Miller er látin Bandaríska söngkonan Jody Miller, sem er einna þekktust fyrir að sungið lagið Queen of the House, er látin, áttræð að aldri. 7.10.2022 14:22