Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Yfir fimmtán þúsund keppendur eru skráðir í hlaup Reykjavíkurmaraþonsins á morgun og hafa safnast 268 milljónir til hinna ýmsu góðgerðarfélaga. Hér fyrir neðan má fylgjast með beinni útsendingu frá maraþoninu. 22.8.2026 08:29
Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Bandaríkin hafa sett fimmtíu prósenta tolla á ýmsar kanadískar vörur þar í landi eftir að nokkurra daga samningaviðræður nágrannaríkjanna á milli runnu í sandinn. Forsætisráðherra Kanada heitir sams konar tollum á bandarískar vörur. 22.8.2026 08:07
Stinningskaldi og súld suðvestanlands Í dag má búast við suðvestanátt á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu og súld um landið sunnan- og vestanvert. Draga á úr vætu í kvöld. Hiti verður á bilinu tíu til nítján stig, hlýjast austanlands. 22.8.2026 07:29
Rannsaka líkamsárás í miðsvæðis Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás í miðsvæðis í Reykjavík í gærkvöldi eða nótt. 22.8.2026 07:18
Meghan snýr aftur á skjáinn Meghan, hertogaynjan af Sussex, stendur nú í viðræðum um hlutverk í Netflix-þáttunum The Gentlemen. Leikkonan fyrrverandi hætti leiklistinni eftir að hún giftist Harry Bretaprinsi, hertoganum af Sussex, árið 2018. 21.8.2026 23:46
TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Samfélagsmiðillinn TikTok hefur samþykkt að greiða Bandaríkjunum fjögur hundruð milljónir Bandaríkjadala, eða um 49 milljarða íslenskra króna, til að ljúka málsókn en miðillinn var sakaður um að brjóta á friðhelgi barna með upplýsingaöflun. Sáttin er ein sú stærsta sem hefur verið gerð vegna slíks máls. 21.8.2026 23:19
Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Einn er látinn og tveir drengir alvarlega slasaðir eftir að maður réðst inn í framhaldsskóla vopnaður sverði í Fagersta í Svíþjóð. Árásarmaðurinn grunaði hefur verið handtekinn og er sagður fyrrum nemandi skólans. 21.8.2026 21:44
Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp. 21.8.2026 21:09
Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Formaður Sambands Íslenskra sveitarfélaga segir gjaldskrárhækkanir sveitarfélaganna ekki vera sökudólg vaxtahækkana. Launafólki hafi þó fjölgað í opinberri þjónustu sveitarfélaganna fyrr á árinu. Sveitarfélögin séu jafnframt reiðubúin í að taka þátt í baráttu gegn verðbólgu og vandamálið verði ekki leyst nema með samvinnu. 21.8.2026 20:13
Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Jónas Már Torfason segir upphrópanir bæjarráðs Kópavogsbæjar vera „algjörlega ótímabærar.“ Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda sé hluti af stærri heildarendurskoðun á flóknum málaflokki og sú vinna sé yfirstandandi. 21.8.2026 18:26
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent