Gíraður í Reykjavíkurslag: „Hlaupum á Val á hundrað kílómetra hraða“ Aron Sigurðarson, fyrirliði og lykilmaður í liði KR, er gíraður fyrir Reykjavíkurslag gegn Val á Hlíðarenda í Bestu deildinni annað kvöld. Aron hefur, líkt og KR liðið í heild sinni, farið frábærlega af stað á tímabilinu. 1.5.2026 11:32
Sjáðu mörkin: Fyrsti sigur nýliðanna, endurkoma Þróttara og Stjarnan skein skært Mikið fjör var í leikjum gærkvöldsins í Bestu deild kvenna og dramatík. Nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur unnu sinn fyrsta leik, Þóttarar höfðu betur gegn FH í endurkomusigri og kvöldið áður hafði Stjarnan betur gegn Val. Mörkin úr þessum leikjum má sjá hér. 1.5.2026 11:00
Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, staðfesti það í morgun að Mohamed Salah, leikmaður liðsins yrði klár í lokaleiki tímabilsins þó svo að hann verði ekki klár í slaginn gegn Manchester United á sunnudaginn. Framundan eru lokavikur Salah sem leikmaður Liverpool. 1.5.2026 10:32
Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals á von á fjörugum leik þegar hans menn taka á móti KR í Reykjavíkurslag annað kvöld. KR verði í toppbaráttu eins og Valur. 1.5.2026 10:02
Hvergi nærri hættur með KR Eftir bikarmeistaratitil og endurkomu í úrslitakeppni hafa KR-ingar samið á nýjan leik við þjálfara sinn Jakob Örn Sigurðarson sem og lykilmann liðsins. Stefnan er sett enn hærra. 1.5.2026 09:31
Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Það stefnir allt í afar spennandi sunnudag fyrir stuðningsfólk Stjörnunnar. Karlalið félagsins tekur á móti ÍA í Bestu deild karla og stuttu seinna getur Stjarnan tryggt sér sæti í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar í körfubolta. 30.4.2026 16:45
Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því HSÍ hyggst hrinda B- og C-landsliðum karla í handbolta úr vör. Slíkt geti reynst mikilvægt skref upp á framtíð A-landsliðsins og íslensks handbolta almennt. HSÍ leitar fjármagns fyrir verkefninu. 30.4.2026 12:01
Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Gríðarleg spenna ríkir á Akureyri fyrir nágrannaslag Þórs og KA í Bestu deild karla í fótbolta á laugardaginn, þeim fyrsta í efstu deild síðan árið 2002. Það seldist upp á örskotstundu á leikinn en bæta á við nokkur hundruð miðum í sölu. 30.4.2026 10:59
Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Kristall Máni Ingason skoraði þrennu í 5-0 sigri Brann á Tromsö í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Freyr Alexandersson, þjálfari Brann, sló á létta strengi í viðtali eftir leik. Sagði fólk vanmeta fótboltaleg gæði Kristals sökum hárgreiðslu hans. 30.4.2026 10:00
Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Hilmar Smári Henningsson, leikmaður Stjörnunnar, segir sitt lið vera með gullið tækifæri í höndunum fyrir leik þrjú í einvígi gegn Tindastól í undanúrslitum Bónus deildarinnar í körfubolta. Upp úr sauð eftir síðasta leik liðanna. Hilmar veltir sér ekki upp úr umræðunni og umtalinu í kringum einvígi liðanna. 29.4.2026 11:52