Guardiola tjáði sig um framtíð sína í starfi Pep Guardiola neitaði að svara af eða á með framtíð sína sem knattspyrnustjóri Manchester City í viðtali eftir leik í kvöld þar sem vonir hans manna um Englandsmeistaratitil urðu að engu. Fastlega er gert ráð fyrir því að Spánverjinn sé á förum frá félaginu 19.5.2026 21:06
Arsenal er Englandsmeistari Arsenal er Englandsmeistari í fótbolta tímabilið 2025/2026. Þetta varð ljóst eftir jafntefli Manchester City gegn Bournemouth á útivelli í kvöld. Um fyrsta Englandsmeistaratitil Arsenal er að ræða síðan árið 2004, sá fjórtándi í röðinni og sá fyrsti undir stjórn Mikel Arteta. Tuttugu og tveggja ára bið á enda. 19.5.2026 20:24
Sleit krossband, reif liðþófa og hlaut beinmar Jóhann Ægir Arnarsson, leikmaður Lengjudeildar liðs Njarðvíkur verður lengi frá eftir að hafa meiðst illa í leik gegn HK í gær. 19.5.2026 19:38
Southampton rekið úr umspilinu og fær stigarefsingu Enska B-deildar liðið Southampton hefur verið rekið úr umspilinu um sæti í ensku úrvalsdeildinni sökum njósnaskandals sem átti sér stað í undanúrslitaeinvígi liðsins gegn Middlesborough. 19.5.2026 18:04
Jason Daði fer frá Grimsby Jason Daði Svanþórsson yfirgefur herbúðir Grimsby Town á Englandi þegar að samningur hans rennur sitt skeið í næsta mánuði. 19.5.2026 17:31
Tætir í sig færslu Salah: „Liverpool FC ekki Salah FC“ Jamie Carragher, sparkspekingur og fyrrverandi leikmaður Liverpool, segir ummæli Mohamed Salah um leikstíl Liverpool ekki koma sér á óvart. Maðurinn sé sjálfselskur. Það sannist enn og aftur. 19.5.2026 07:30
„Stjörnufólk er pirrað“ Hlynur Bæringsson segir stuðningsmenn Stjörnunnar pirraða yfir skiptum þjálfarans Baldurs Þórs Ragnarssonar innan Garðabæjar frá Stjörnunni yfir til Álftaness í Bónus deildinni í körfubolta. 19.5.2026 07:03
Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Brittany Dinkins, leikmaður Íslandsmeistara Njarðvíkur og einn af reynsluboltunum í liðinu hefur verið að ala upp dólg í leikmönnum liðsins. Hvatti þá til þess að vera töffara inn á vellinum. 19.5.2026 06:30
Dagskráin í dag: Tveir gífurlega mikilvægir leikir Enska úrvalsdeildin á sviðið á sportrásum Sýnar í kvöld og tveir mikilvægir leikir sem geta haft mikið að segja um baráttuna í topp-, Evrópu- og botnbaráttu deildarinnar fara fram. 19.5.2026 06:00
Hylltu Glódísi Perlu og liðsfélaga hennar Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði Bayern Munchen og liðsfélagar hennar, voru hylltar á stórri sigurhátíð í Munchen fyrr í dag. 18.5.2026 23:17