Ísland enn í hæsta áhættuflokki hjá CDC Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna, CDC, uppfærði lista á ferðaráðssíðu sinni í dag. Ísland er enn í hæsta áhættuflokki og er Bandaríkjamönnum því áfram alfarið ráðið frá ferðalögum til landsins. 23.8.2021 22:31
Svona notar þú sjálfspróf Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að heimila notkun sjálfsprófa hér á landi. Fréttamaður Stöðvar 2 ákvað að sýna landanum hvernig prófin eru notuð. 23.8.2021 21:24
Hæsti maður Bandaríkjanna er látinn Igor Vovkovinskiy, hávaxnasti maður Bandaríkjanna lést í Minnesota á föstudag. Hann var 38 ára gamall og 234,5 sentímetrar á hæð. 23.8.2021 19:25
Kaupsamningum fækkar um tólf prósent milli mánaða Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í júlí 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Þegar júlí 2021 er borinn saman við júní 2021 fækkar kaupsamningum um 12,2 prósent og velta lækkar um 9,2 prósent. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 16 prósent á milli mánaða og velta lækkaði um 11,8 prósent. 23.8.2021 18:31
Tekjur Íslendinga: Vigdís sú eina á topp tíu með körlunum Óskar Sesar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins ber höfuð og herðar yfir aðra embættismenn og forstjóra ríkisfyrirtækja hvað varðar tekjur. Samkvæmt nýútkomnu Tekjublaði Frjálsrar Verslunar var Óskar Sesar með rúmlega sex milljónir króna í mánaðartekjur í fyrra. Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands er eina konan á topp tíu listanum. 19.8.2021 13:24
Síbrotamaður dæmdur í þriggja ára fangelsi Tómas Helgi Jónsson var á þriðjudag dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar og ævilangrar sviptingar ökuréttinda fyrir umferðar- og fíkniefna- og vopnalagabrot auk eldri brota. Tómas Helgi á að baki áralangan brotaferil. 19.8.2021 11:18
Erilsamt að vanda hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti 142 sjúkraflutningum í gær. Í Facebookfærslu slökkviliðsins segir að fyrir nokkrum vikum hefðu svo margir sjúkraflutningar þótt til tíðinda en nú sé sá fjöldi „normið.“ 19.8.2021 08:38
Fimm mánuðir frá upphafi eldgossins í Fagradalsfjalli Fimm mánuðir eru í dag frá upphafi eldgossins í Fagradalsfjalli á Reykjanesskaga. Samkvæmt nýjustu mælingum Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands er hraunið sem myndast hefur í gosinu orðið 119 milljónir rúmmetra að rúmmáli og 4,4 ferkílómetrar að flatarmáli. 19.8.2021 07:23
Reyndi að ræna verslun vopnaður hamri en fór heim tómhentur Tilkynnt var um rán úr verslun í Hafnarfirði klukkan 03:40 í nótt. 19.8.2021 06:37
Tekjur Íslendinga: Onlyfans-stjarna er tekjuhæsti áhrifavaldurinn Samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar Verslunar sem kom út í dag þénaði Klara Sif Magnúsdóttir rúmlega eina milljón króna á mánuði árið 2020. Helsta tekjulind Klöru Sifjar er vefsíðan Onlyfans, en hún selur áskrifendum sínum aðgang að erótísku efni í gegnum síðuna. 18.8.2021 12:01