Vildi spila viðtal við brotaþola Skýrslutökur brotaþola og annarra vitna hófust í morgun og því er töluvert fjölmennara í dómsal í Gullhömrum við aðalmeðferð Bankastrætis Club málsins en síðustu daga. Þónokkrir sem sæta ákæru eru mættir til þess að fylgjast með framgangi mála, þar á meðal sá eini sem ákærður er fyrir að hafa reynt að verða brotaþolum að bana. 28.9.2023 13:40
Sigldi sjö tonna skipi skakkur Karlmaður hefur verið dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir að stjórna skipi til hafnar ófær um að stjórna því örugglega vegna áhrifa vana-og fíkniefna, en í blóði hans mældist kannabis. Þá stýrði hann skipinu án þess að hafa til þess gild réttindi. 27.9.2023 14:25
Vatn komið aftur á í Kópavogi Kaldavatnslaust var í hluta Kópavogs, austan Reykjanesbrautar, það er að segja í Hvörfum, Þingum, Kórum og hluta Salahverfis í morgun. Vatn er aftur komið á en ekki er fullur þrýstingur á kerfinu eins og er. 27.9.2023 09:17
„Dómari, við heyrum ekkert í honum í ódýru sætunum hérna aftast“ Aðalmeðferð í Bankastrætis Club málinu svokallaða var haldið áfram í morgun og nú hafa allir sem sæta ákæru fyrir annað en hlutdeild í árásinni gefið skýrslu. Mikið umstang hefur verið í Gullhömrum og laganemar kíktu í heimsókn fyrir hádegi. 26.9.2023 13:48
Verjendur óánægðir með kaffiskort Á þriðja tug lögmanna eru saman komnir til þess að verja skjólstæðinga sína í Bankastrætis Club málinu svokallaða í veislusalnum Gullhömrum í dag. Skipuleggjendur aðalmeðferðarinnar virðast hafa gleymt að hella upp á kaffi, verjendum til mikils ama. 25.9.2023 15:46
Skýrslutökur hefjast í veislusal Aðalmeðferð í Bankastræti Club málinu svokallaða hefst í veislusalnum Gullhömrum í dag. Á þriðja tug manna hafa stöðu sakbornings og búist er við því að á annað hundrað verði viðstaddir aðalmeðferðina. 25.9.2023 09:13
Ágreiningur atvinnurekanda og fyrrverandi starfsmanna Mikill viðbúnaður lögreglu var í Auðbrekku í Kópavogi á tíunda tímanum í gærkvöldi eftir að tilkynning barst um slagsmál tíu manna. Í ljós kom að um var að ræða ágreining milli atvinnurekanda og hóps fyrrverandi starfsmanna 22.9.2023 11:01
Manndrápið á Ólafsfirði: Steinþór hafi stungið Tómas tvisvar Steinþór Einarsson, 37 ára gamall karlmaður, hefur verið ákærður fyrir manndráp, með því að hafa stungið Tómas Waagfjörð, 47 ára, til bana á Ólafsfirði í október í fyrra. 22.9.2023 09:27
Hanna Birna, Helgi og Heimir Fannar í stjórn Justikal Ný stjórn Justikal var kjörin á aðalfundi félagsins á dögunum. Stjórnin er skipuð þeim Helga Hermannsssyni, sem jafnframt er stjórnarformaður félagsins, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Heimi Fannari Gunnlaugssyni. 22.9.2023 09:09
Landsbankinn skellir í lás í Austurstræti í hinsta sinn Tæplega hundrað ára sögu Landsbankans í Austurstræti lýkur í dag. Klukkan 16 verður skellt í lás í hinsta sinn. 22.9.2023 08:50