Rússanum óvænt fleygt úr leik í fyrstu umferð Eina ferðina enn er Daniil Medvedev fyrstur af topp tíu tennisköppum heims til að detta úr leik á Opna franska meistaramótinu. 26.5.2026 13:49
Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu Grindavík hefur endursamið við fjóra leikmenn liðsins fyrir komandi tímabil í Bónus deild kvenna í körfubolta. Leitin að nýjum þjálfara stendur enn yfir en nýr maður nálgast. 26.5.2026 13:19
Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Víkingur og Valur voru í svipuðum búningum þegar liðin mættust í Bestu deild kvenna í gærkvöld, leikmönnum til mikils ama. 26.5.2026 12:01
Allegri líklegastur til að taka við af Conte Þjálfarahringekjan í ítalska boltanum þetta sumarið er formlega hafin. Massimiliano Allegri, sem var rekinn frá AC Milan í gær, þykir líklegastur til að taka við starfi Antonio Conte, sem hætti hjá Napoli um helgina. 26.5.2026 11:02
Mikið álag á Messi en ekki alvarleg meiðsli Lionel Messi er ekki að glíma við alvarleg meiðsli en mikið álag hefur sett strik í reikninginn, skömmu fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta. 26.5.2026 10:30
Dembélé tapaði atkvæðagreiðslu en var samt verðlaunaður Ousmane Dembélé var langt frá því að vinna atkvæðagreiðsluna en franska deildin ákvað samt að verðlauna mark hans sem besta mark tímabilsins. 26.5.2026 10:01
„Gekk um eins og uppvakningur“ í hitabylgjunni á Opna franska Tennisfólk á Opna franska meistaramótinu finnur vel fyrir hitabylgjunni í Frakklandi og segist sjaldan hafa upplifað annað eins. Búist er við því að hitinn haldist hár alla vikuna. 26.5.2026 09:30
Tilkynnti nýjan samning í miðri skrúðgöngu og verður launahæst í heimi Eftir að hafa verið orðuð við brottför til Chelsea tilkynnti markadrottningin Khadija Shaw um nýjan samning sinn við Manchester City í miðri skrúðgöngu liðsins. Hún verður áfram hjá Englandsmeisturunum, sem launahæsta knattspyrnukona heims. 26.5.2026 09:03
Íranska liðið spilar í Bandaríkjunum en þarf að gista í Mexíkó Íranska fótboltalandsliðinu verður ekki leyft að dvelja í Bandaríkjunum á meðan heimsmeistaramótinu stendur, þrátt fyrir að liðið eigi að spila þar þrjá leiki. Íranar munu gista í Mexíkó og ferðast milli staða á leikdögum. 26.5.2026 08:29
Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV í Bestu deild kvenna, kallar eftir VAR myndbandsdómgæslu á Íslandi líkt og þekkist erlendis. Hann vill meina að markið sem ÍBV fékk á sig í gær hefði aldrei átt að standa. 26.5.2026 08:00