Besti árangur Andreu á tímabilinu: Var með forystuna en endaði í fjórða sæti Andrea Bergsdóttir náði sínum besta árangri á tímabilinu þegar hún hafnaði í fjórða sæti á Santander golfmótinu á LET Access mótaröðinni. Andrea var í efsta sæti fyrir lokahringinn á Naturavila golfvellinum í dag en endaði einu höggi á eftir efstu þremur kylfingunum. 31.5.2025 13:12
Leiknir lætur þjálfarann fara Þjálfarinn Ólafur Hrannar Kristjánsson hefur verið látinn fara frá Leikni Reykjavík. Liðið situr í neðsta sæti Lengjudeildar karla með aðeins eitt stig. Ákvörðunin var tekin eftir afar slæmt tap í gærkvöldi. 31.5.2025 12:16
Tottenham lætur fimm fara og festir fyrstu kaup sumarsins Tottenham Hotspur hefur losað sig við fimm leikmenn úr aðalliðinu og fest kaup á miðverðinum Kevin Danso, eftir að hafa haft hann að láni frá Lens í Frakklandi síðan í janúar. 31.5.2025 11:46
Mexíkó hyggst halda HM 2031 með Bandaríkjunum Knattspyrnusamband Mexíkó hyggst halda heimsmeistaramót kvenna í fótbolta árið 2031 ásamt Bandaríkjunum, sem fengu samþykkt boð um að halda fyrsta 48 liða mótið í kvennaboltanum. 31.5.2025 11:03
Fyrrum forseti Inter látinn og liðið mun leika með sorgarbönd Leikmenn Inter munu spila með sorgarbönd á handleggnum í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld, til minningar um fyrrum eiganda og forseta félagsins, Ernesto Pellegrini, sem féll frá í morgun. 31.5.2025 10:30
Tókst ekki verja titilinn í vítaspyrnukeppni BK Häcken er sænskur bikarmeistari eftir sigur gegn Malmö í vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum, þar sem tvö bestu bikarlið Svíþjóðar undanfarinna ára mættust. Daníel Tristan Guðjohnsen og Arnór Sigurðsson komu báðir inn af varamannabekk Malmö, en tóku ekki vítaspyrnu. 29.5.2025 16:38
Hafnaði Manchester fyrir borg englanna Sveindís Jane Jónsdóttir hafði úr fjölmörgum liðum að velja þegar samningur hennar við Wolfsburg rann út. Hún ákvað að þrengja valið niður í tvo alvöru kosti, Manchester United eða Angel City, og fór á endanum til síðarnefnda liðsins sem spilar í Los Angeles í Kaliforníu. 29.5.2025 14:01
Tah til Bayern og sögulegt lið Leverkusen að sundrast Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen hafa gengið frá samningi við miðvörðinn Jonathan Tah, sem kemur frítt til félagsins frá Bayer Leverkusen. 29.5.2025 12:30
Næstyngsta liðið fyrst til að rústa fjórum leikjum á leið í úrslitaeinvígið Oklahoma City Thunder vann vesturdeild NBA og er á leið í úrslit eftir 4-1 sigur í einvíginu gegn Minnesota Timberwolves, sem vannst með þrjátíu stiga 124-94 stórsigri í nótt. OKC er fyrsta liðið til að rústa fjórum leikjum í úrslitakeppninni og komast í úrslit, þar sem liðið verður það næstyngsta frá upphafi. 29.5.2025 11:47
KR kaupir ungan og efnilegan leikmann Njarðvíkur KR hefur fest kaup á hinum nítján ára gamla Amin Cosic, leikmanni Njarðvíkur sem hefur skorað þrjú mörk í fyrstu fjórum umferð Lengjudeildarinnar. Hann gengur til liðs við KR fljótlega eftir að félagaskiptaglugginn opnar í júlí. 29.5.2025 11:02