Stóra kókaínmálinu hvergi nærri lokið Pétur Jökull Jónsson, sem grunaður er um aðild að stóra kókaínmálinu og var eftirlýstur af Interpol á dögunum, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald næstu fjórar vikurnar. 5.3.2024 15:42
Guðni fékk glæsilegar móttökur í Georgíu Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er mættur til Georgíu þar sem hann fékk höfðinglegar móttökur í Tbilisi frá Salome Zourabichvili forseta Georgíu. 5.3.2024 14:48
Þingpallarnir opnir eins og aðra daga Skrifstofustjóri Alþingis segir þingpallana opna á Alþingi í dag eins og kveðið sé á um í stjórnarskránni þrátt fyrir óþægilegt atvik síðdegis í gær. Þá þurfti að fjarlægja hælisleitendur af pöllunum sem trufluðu þingstörf. 5.3.2024 14:38
Leita að parísarhjólsstjóra Reykjavíkurborg leitar að samstarfsaðila til að reka parísarhjól á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn. Þetta kemur fram á vef borgarinnar. 5.3.2024 14:06
Öskraði af þingpöllunum á dómsmálaráðherra Fjarlægja þurfti karlmann af þingpöllum Alþingis seint á fjórða tímanum sem var með læti og steig yfir handriðið. Þingmenn risu úr sætum og virkaði brugðið. 4.3.2024 16:00
Landsmenn kusu fyrir 37 milljónir króna Óhætt er að segja að dramatíkin hafi verið mikil á laugardagskvöldið þegar landsmenn greiddu rúmlega tvö hundruð þúsund atkvæði í símakosningu Söngvakeppninnar. Þátttaka var þó töluverð minni en í fyrra. 4.3.2024 15:33
Lokakröfur Eflingar: Uppsagnarvernd, trúnaðarmenn og orðalag um ræstingarfólk Formaður Eflingar segir einkum þrennt standa út af í samningsviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Náist sátt um þau atriði ætti að vera hægt að undirrita kjarasamninga á næstu einum til tveimur sólarhringum. 4.3.2024 13:34
Leggja til Paul Horner í stað Brynjólfs Tilnefningarnefnd Arion banka leggur til að Paul Horner verði næsti stjórnarformaður bankans. Brynjólfur Bjarnason lætur af störfum sem formaður eftir fimm ár í brúnni. 4.3.2024 11:23
Bubbi óttast púðurtunnu rasismans Bubbi Morthens er þungt hugsi yfir þeim gífuryrðum sem fallið hafa á samfélagsmiðlum um helgina í tengslum við Söngvakeppni Ríkisútvarpsins. Hera Björk stóð uppi sem sigurvegari eftir baráttu við Bashar Murad. Lokatölur eru óbirtar og sitt sýnist hverjum um niðurstöðuna. 4.3.2024 09:07
Dæmigerðar aðstæður fyrir eldgos en ekkert hægt að útiloka Jarðeðlisfræðingur sem flaug yfir svæðið þar sem kvikuhlaupið fór af stað segir enga virkni sjáanlega úr lofti. Hins vegar séu dæmigerðar aðstæður fyrir eldgos þegar kvika fer af stað. Hegðunin sé svipuð og í fyrri eldgosum en það sé ekkert hægt að útiloka. 2.3.2024 18:44