Talinn hafa ekið blindfullur á ljósastaur og hótað lögreglu barsmíðum Karlmaður á sextugsaldri sætir ákæru fyrir að hafa ölvunarakstur þann 11. maí 2015 í Reykjavík, ekið á ljósastaur og þaðan á brott án þess að nema staðar og tilkynna lögreglu um atburðinn. 23.9.2019 14:50
Ákærður fyrir líkamsárás á Götubarnum 21 árs karlmaður sætir ákæru fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Götubarnum við Hafnarstræti á Akureyri í febrúar í fyrra. 23.9.2019 14:09
Þekktir listamenn flykkjast til Húsavíkur og spila drunutónlist Kastljósið mun beinast að Húsavík í 24 klukkustundir helgina 19. til 20. október þegar alþjóðlegur tónlistarviðburður fer þar fram. Óhætt er að segja að viðburðurinn sé í óvenjulegri kantinum. 20.9.2019 21:30
Tveggja ára dómur fyrir nauðgun á Þjóðhátíð Landsréttur hefur dæmt Helga Fannar Sæþórsson í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa, á Þjóðhátíð 2015, nauðgað konu sem ekki gat spornað við verknaðinum sökum svefndrunga og ölvunar. 20.9.2019 17:08
Dómur mildaður í nauðgunarmáli manns sem kom GPS-tæki fyrir í bíl konu sinnar Landsréttur hefur mildað dóm yfir karlmanni á fertugsaldri fyrir að nauðga þáverandi eiginkonu sinni og að koma GPS-tæki fyrir í bíl konunnar, án hennar vitundar, í þeim tilgangi að fylgjast með ferðum hennar. 20.9.2019 16:59
419 dæmi um hraðakstursbrot við grunnskólana fyrstu fjórar vikurnar Frá því að grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu tóku aftur til starfa í síðasta mánuði hefur lögreglan verið með aukið eftirlit við skólana í umdæminu og þar sem þekkt er að börn þurfi að þvera veg til að komast til og frá skóla. 20.9.2019 15:19
Sonur Sævars segir Valtý lögmann eiga ríkra hagsmuna að gæta Hafþór Sævarsson, sonur Sævars Ciesielski, kemur Erlu Bolladóttur til varnar í nýrri grein. Um er að ræða viðbrögð Hafþórs við þeirri skoðun þriggja karlmanna sem sátu í gæsluvarðhaldi í 105 daga árið 1976 að ekki eigi að greiða Erlu skaðabætur án þess að hún verði formlega sýknuð af dómi fyrir rangar sakargiftir. 20.9.2019 13:49
Misbauð beiðni Erlu Bolladóttur um bætur og hittust í fyrsta skipti í 43 ár Þrír menn sem sátu saklausir í gæsluvarðhaldi í 105 daga árið 1976 grunaðir um að hafa orðið Geirfinni Einarssyni að bana telja alls ekki réttlætanlegt að greiða Erlu Bolladóttur bætur vegna dóms sem hún hlaut fyrir rangar sakargiftir. 20.9.2019 10:51
Algjörar „fríkaðstæður“ í hættulegri Laxá í Kjós "Við erum í algjörum fríkaðstæðum hérna,“ segir Svavar Hávarðsson veiðimaður um stöðu mála við Meðalfellsvatn í Kjós. Þar er bókstaflega allt á floti. 19.9.2019 14:40
Afhenda skólatöskur meðfram matargjöf Costco færði Fjölskylduhjálp Íslands 175 skólatöskur í vikunni sem til stendur að úthluta með mataraðstoð í Breiðholti og Reykjanesbæ í næstu viku. Skólatöskurnar eiga eftir að koma sér vel fyrir efnalitlar fjölskyldur segir Ásgerður Jóna Flosadóttir hjá Fjölskylduhjálpinni. 19.9.2019 14:17