Gagnaversþjófur fékk tæplega sex ára dóm í dópmáli Matthías Jón Karlsson, sem hlaut dóm í Bitcoin-málinu svokallaða, hefur verið dæmdur í fimm ára og níu mánaða fangelsi fyrir stórfellda fíkniefnaframleiðslu. Vygantas Viskinskis hlaut fjögurra ára dóm í málinu. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 4.12.2020 16:07
Neyslan merki þess að aðgerðir stjórnvalda virki Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sér fram á bjartari tíma í efnahagsmálum hér á landi á komandi ári. Komur ferðamanna séu lykill að góðum árangri í þeim efnum. 4.12.2020 15:57
Veikindi Víðis fara versnandi Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn fór í skoðun á Covid-göngudeild Landspítalans í dag vegna íferðar í lungum. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannvarnadeild ríkislögreglustjóra og staðgengill Víðis, segir Víði kominn heim eftir skoðun. Hann sé brattur miðað við aðstæður. 4.12.2020 14:23
Bein útsending: Jarðarför Salmans Tamimi Jarðarför Salmans Tamimi, forstöðumanns Félags múslima á Íslandi, fer fram í dag klukkan 12:30. Vegna samkomutakmarkana geta fáir verið viðstaddir jarðarförina en henni verður streymt, meðal annars hér á Vísi. 4.12.2020 12:01
Jólasveinar gáfu Hjálparstarfi kirkjunnar 1,3 milljónir króna Jólasveinar úr Jólasveinaþjónustu Skyrgáms afhentu Hjálparstarfi kirkjunnar 1,3 milljónir króna við Grensáskirkju í morgun. Um er að ræða 20 prósent af veltu þjónustunnar sem sveinarnir hafa gefið samtökunum frá árinu 1997. 4.12.2020 11:49
Ólafur Helgi í leyfi frá störfum sínum í ráðuneytinu Ólafur Helgi Kjartansson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, er kominn í leyfi frá störfum sínum í dómsmálaráðuneytinu. Ólafur Helgi hefur stöðu sakbornings í rannsókn héraðssasksóknara að meintu broti á þagnarskyldu hjá lögreglunni á Suðurnesjum. 3.12.2020 16:19
Þinghald verður opið í Bræðraborgarstígsmálinu Þinghald verður opið í máli Marek Moszczynski, karlmanns á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir manndráp og íkveikju á Bræðraborgarstíg í sumar. Svo segir í úrskurði Landsréttar sem staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis. Verjandi Mareks hafði farið fram á að þinghaldi yrði lokað þegar hann og geðlæknar gæfu skýrslu. 3.12.2020 15:36
„Áfram Ísland“ en Lars veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér Lars Lagerbäck, fyrrverandi þjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, segir framtíð sína algjörlega óráðna. „Áfram Ísland“ segir sá sænski í svari við fyrirspurn Vísis. Lagerbäck var sagt upp störfum sem þjálfari norska karlalandsliðsins í knattspyrnu í morgun. 3.12.2020 15:13
Öryrkjar fagna hugmyndum Brynjars um rannsókn Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segist fagna hugmyndum Brynjars Níelssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, að rannsaka bótasvik í almannatryggingakerfinu og aðbúnað öryrkja almennt. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Þuríður Harpa sendir fyrir hönd ÖBÍ. 3.12.2020 14:44
Borgarstjóri táraðist yfir uppkomnum smáhýsum, ekki gámahúsnæði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segist ekki tárast oft í vinnunni. Hann hafi þó komist við þegar framkvæmdadeild Reykjavíkurborgar sendi honum mynd í morgun af uppkomnum smáhýsum fyrir heimilislaust fólk í Gufunesi. 3.12.2020 12:23