Ekki gaman þegar náttúruöflin ráðast inn á heimili manns Fyrir hádegi varð skriðuhlaup niður Búðará á Seyðisfirði - en þess utan hafa engar skriður fallið í bænum síðan í gærkvöldi að sögn vakthafandi ofanflóðasérfræðings sem fréttastofa ræddi við nú rétt fyrir tvö. 17.12.2020 14:44
Svona var 147. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. 17.12.2020 10:15
Jónína Benediktsdóttir er látin Jónína Benediktsdóttir íþróttafræðingur og frumkvöðull er látin 63 ára að aldri. Hún varð bráðkvödd að heimili sínu í Hveragerði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum. Jónína fæddist á Akureyri þann 26. mars 1957 en ólst upp á Húsavík. Hún lætur eftir sig þrjú börn og fjögur barnabörn. 17.12.2020 09:53
Appelsínugul viðvörun vegna rigningar á Austfjörðum Spáð er áframhaldandi mikilli rigning sem mun valda auknum grunnvatnsþrýstingi og viðhalda hárri grunnvatnsstöðu. Appelsínugul veðurviðvörun er á Austfjörðum vegna veðursins. 16.12.2020 15:45
Segir best að varast dellur og tískustrauma Þórarinn Ævarsson segir pítsuna hafa verið mikinn áhrifavald í sínu lífi og að hún hafi verið órjúfanlegur hluti af starfsævi hans; fyrst hjá Dominos, síðan Ikea og nú hjá Spaðanum, pítsustað sem Þórarinn stofnaði árið 2019. 16.12.2020 14:00
Gjaldþrot Bílanausts nam 855 milljónum króna Skiptum á þrotabúi Bílanausts er lokið og námu samanlagðar kröfur í búið 855 milljónum króna. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu. Um 260 milljónir króna fengust greiddar upp í veð- og haldsréttarkröfur sem námu rúmlega 500 milljónum króna. 16.12.2020 13:06
Konur tíðari gestir í kjörklefanum Rétt tæplega 67 prósent fólks á kjörskrá greiddi atkvæði í forsetakosningunum hér á landi í sumar. Rúmlega 252 þúsund manns voru á kjörskrá eða 69,2 prósent landsmanna. Af þeim greiddu 168.790 atkvæði eða 66,9 prósent að því er fram kemur á vef Hagstofunnar. 16.12.2020 12:42
Ellefu konur og tveir karlar leggja línurnar varðandi kynfræðslu barna Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað starfshóp um eflingu kynfræðslu í skólum. Ellefu konur og tveir karlar skipa hópinn en í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir ráðuneytisins hafi ekki tekist að jafna kynjahallann. 16.12.2020 12:26
Hús rýmd á Seyðisfirði vegna aurskriða Tvær skriður féllu úr Botnum utan við Nautaklauf á Seyðisfirði á þriðja tímanum í dag og ná nær niður á jafnsléttu. Önnur skriðan féll á hús en samkvæmt fyrstu upplýsingum eru skemmdir sagðar óverulegar. Nokkur hús við hafa verið rýmd vegna ofanflóðahættu. 15.12.2020 16:39
Kráaeigendur krossleggja fingur eftir fund með fulltrúum Svandísar og Þórólfs Eigendur öldurhús í miðbæ Reykjavíkur fagna því að þeim virðist sem fulltrúar heilbrigðisráðherra og sóttvarnalæknis hafi mögulega séð ljósið á fundi þeirra síðastliðinn föstudag. 15.12.2020 10:01