Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við formann Lögmannafélags Íslands sem segir miður að fólki gefist ekki kostur á að sækja um opinberan stuðning, eða gjafsókn, við málarekstur fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. 5.12.2020 18:13
Bein útsending: Hundrað ára afmæli Stúdentaráðs HÍ Stúdentaráð Háskóla Íslands býður til hátíðarhalda í tilefni af aldarafmæli ráðsins í dag. Afmælishátíðin fer fram í Hátíðarsal Aðalbyggingar Háskóla Íslands en vegna samfélagsástandsins verður beint streymi þaðan klukkan 18 fyrir gesti heima í stofu. 4.12.2020 17:21
Kosningabragur á bólusetningum í Reykjavík Borgarstjóri segir að skipulag bólusetningar í höfuðborginni verði með svipuðu fyrirkomulagi og í kosningum. Markmiðið sé að gera bólusetninguna auðsótta og aðgengilega svo opnaðir verða bólusetningastaðir í anda kjörstaða víða um borgina. 4.12.2020 17:05
Sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi en heldur ökuréttindum fyrir mistök Landsréttur staðfesti í dag dóm yfir karlmanni fyrir manndráp af gáleysi í október 2018. Var hann sakfelldur fyrir að hafa ekið bíl sínum yfir á rangan vegarhelming á Reykjanesbraut í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að árekstur varð við bíl sem kom úr gagnstæðri átt. 4.12.2020 16:31
Gagnaversþjófur fékk tæplega sex ára dóm í dópmáli Matthías Jón Karlsson, sem hlaut dóm í Bitcoin-málinu svokallaða, hefur verið dæmdur í fimm ára og níu mánaða fangelsi fyrir stórfellda fíkniefnaframleiðslu. Vygantas Viskinskis hlaut fjögurra ára dóm í málinu. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 4.12.2020 16:07
Neyslan merki þess að aðgerðir stjórnvalda virki Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sér fram á bjartari tíma í efnahagsmálum hér á landi á komandi ári. Komur ferðamanna séu lykill að góðum árangri í þeim efnum. 4.12.2020 15:57
Veikindi Víðis fara versnandi Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn fór í skoðun á Covid-göngudeild Landspítalans í dag vegna íferðar í lungum. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannvarnadeild ríkislögreglustjóra og staðgengill Víðis, segir Víði kominn heim eftir skoðun. Hann sé brattur miðað við aðstæður. 4.12.2020 14:23
Bein útsending: Jarðarför Salmans Tamimi Jarðarför Salmans Tamimi, forstöðumanns Félags múslima á Íslandi, fer fram í dag klukkan 12:30. Vegna samkomutakmarkana geta fáir verið viðstaddir jarðarförina en henni verður streymt, meðal annars hér á Vísi. 4.12.2020 12:01
Jólasveinar gáfu Hjálparstarfi kirkjunnar 1,3 milljónir króna Jólasveinar úr Jólasveinaþjónustu Skyrgáms afhentu Hjálparstarfi kirkjunnar 1,3 milljónir króna við Grensáskirkju í morgun. Um er að ræða 20 prósent af veltu þjónustunnar sem sveinarnir hafa gefið samtökunum frá árinu 1997. 4.12.2020 11:49
Ólafur Helgi í leyfi frá störfum sínum í ráðuneytinu Ólafur Helgi Kjartansson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, er kominn í leyfi frá störfum sínum í dómsmálaráðuneytinu. Ólafur Helgi hefur stöðu sakbornings í rannsókn héraðssasksóknara að meintu broti á þagnarskyldu hjá lögreglunni á Suðurnesjum. 3.12.2020 16:19