„Þetta var bara áfall“ Kristinn Már Jóhannesson, slökkviliðsmaður á Austfjörðum, var við störf í námunda við húsin sem urðu fyrir stóru skriðunni sem féll á Seyðisfirði um þrjúleytið í dag. Slökkviliðsmenn voru við dæluvinnu þegar drunurnar byrjuðu. Kristinn Már var að ganga frá slöngu með félögum sínum í slökkviliðinu. 18.12.2020 17:47
Myndband af stóru skriðunni sem féll á Seyðisfirði Neyðarstigi hefur verið lýst yfir á Seyðisfirði eftir að skriður féllu síðdegis í dag. Stefnt er að því að rýma bæinn. 18.12.2020 16:41
Þau eru tilnefnd sem Maður ársins 2020 Vísir og Bylgjan standa fyrir vali á Manni ársins 2020 og geta lesendur nú tekið þátt í að velja þá manneskju sem þeim þykir eiga nafnbótina skilið. Um fimm þúsund tilnefningar bárust í gegnum vefinn og í símatíma Reykjavík síðdegis. Þær hafa aldrei verið fleiri. 18.12.2020 13:00
Tilkomumikill strókur þegar tundurskeytið var sprengt Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar, með aðstoð áhafnarinnar á varðskipinu Tý, eyddi sprengjuhleðslu úr þýsku tundurskeyti frá seinni heimsstyrjöld úti fyrir Sandgerði laust fyrir klukkan tvö í dag. 17.12.2020 16:20
Ekki gaman þegar náttúruöflin ráðast inn á heimili manns Fyrir hádegi varð skriðuhlaup niður Búðará á Seyðisfirði - en þess utan hafa engar skriður fallið í bænum síðan í gærkvöldi að sögn vakthafandi ofanflóðasérfræðings sem fréttastofa ræddi við nú rétt fyrir tvö. 17.12.2020 14:44
Svona var 147. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. 17.12.2020 10:15
Jónína Benediktsdóttir er látin Jónína Benediktsdóttir íþróttafræðingur og frumkvöðull er látin 63 ára að aldri. Hún varð bráðkvödd að heimili sínu í Hveragerði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum. Jónína fæddist á Akureyri þann 26. mars 1957 en ólst upp á Húsavík. Hún lætur eftir sig þrjú börn og fjögur barnabörn. 17.12.2020 09:53
Appelsínugul viðvörun vegna rigningar á Austfjörðum Spáð er áframhaldandi mikilli rigning sem mun valda auknum grunnvatnsþrýstingi og viðhalda hárri grunnvatnsstöðu. Appelsínugul veðurviðvörun er á Austfjörðum vegna veðursins. 16.12.2020 15:45
Segir best að varast dellur og tískustrauma Þórarinn Ævarsson segir pítsuna hafa verið mikinn áhrifavald í sínu lífi og að hún hafi verið órjúfanlegur hluti af starfsævi hans; fyrst hjá Dominos, síðan Ikea og nú hjá Spaðanum, pítsustað sem Þórarinn stofnaði árið 2019. 16.12.2020 14:00
Gjaldþrot Bílanausts nam 855 milljónum króna Skiptum á þrotabúi Bílanausts er lokið og námu samanlagðar kröfur í búið 855 milljónum króna. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu. Um 260 milljónir króna fengust greiddar upp í veð- og haldsréttarkröfur sem námu rúmlega 500 milljónum króna. 16.12.2020 13:06