Þrír Íslendingar ákærðir í Namibíu Þrír Íslendingar eru á meðal 26 sem hafa verið ákærðir í Samherjamálinu svokallaða sem er til meðferðar hjá yfirvöldum í Namibíu. Um er að ræða þá Ingvar Júlíusson, fjármálstjóra Samherja á Kýpur og í Afríku, Egil Helga Árnason, framkvæmdastjóra Mermaria Seafood Namibia, og Aðalstein Helgason fyrrverandi starfsmann Samherja. 5.2.2021 14:50
Grunaður byssumaður losnar úr varðhaldi Karlmaður á sextugsaldri sem grunaður er um að hafa skotið með riffli á fjölskyldubíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra losnar úr gæsluvarðhaldi klukkan fjögur í dag. Héraðssaksóknari taldi ekki grundvöll til að krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir manninum. 5.2.2021 14:16
Svandís um viðræður við Pfizer: „Ekkert sem að hægt er að segja frá“ Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir boltann hjá lyfjaframleiðandanum Pfizer varðandi mögulegan samning við Ísland um mikið magn bóluefnis sem gæti borist til Íslands í rannsóknarskyni. Þannig mætti bólusetja stóran hluta þjóðarinnar á skömmum tíma. 5.2.2021 13:33
Krár og skemmtistaðir fá að hafa opið til klukkan 22 Krár, skemmtistaðir og spilakassasalir mega frá og með mánudeginum 8. febrúar hafa opið til klukkan 22 á kvöldin eins og veitingastaðir. Fjöldatakmörk í sviðslistum, útförum og fleira aukast úr 100 í 150. Þá fá fleiri að sækja líkamsræktarstöðvar. Áfram er tveggja metra regla í landinu og almennt miðað við tuttugu manna samkomubann. 5.2.2021 12:26
Bein útsending: Opinn fundur Viðreisnar um biðlistavandann Viðreisn stendur fyrir opnum fundi um biðlistavandann, kostnaðinn sem honum fylgir og mögulegar lausnir. Stjórnmálaflokkurinn segir að ríkisstjórnin hafi gert talsverðar breytingar á heilbrigðiskerfinu sem engum dyljist að hafi mikil áhrif á notendur og starfsfólk. Þar séu óljós markmið og slakur undirbúningur sérstaklega gagnrýnd. 5.2.2021 11:30
Svandís ræddi tillögur Þórólfs Ráðherrar í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sitja nú á reglulegum föstudagsfundi í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu þar sem tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra eru meðal annars á dagskrá. 5.2.2021 11:18
Svandís fór með tillögur Þórólfs á ríkisstjórnarfundinn Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skilaði Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra minnisblaði seint í gærkvöldi með tillögum sínum um næstu skref í aðgerðum hér á landi vegna kórónuveirufaraldursins. Þetta staðfestir Iðunn Garðarsdóttir aðstoðarmaður ráðherra í samtali við Vísi. 5.2.2021 10:08
Bein útsending: Fyrsta framkvæmdalota Borgarlínu kynnt Frumdrög að fyrstu framkvæmdalotu Borgarlínunnar eru komin út þar sem kynntar eru fyrstu heildstæðu tillögur að útfærslu borgarlínuframkvæmda, frá Ártúnshöfða að Hamraborg, sem er fyrsta framkvæmdalota Borgarlínunnar. 5.2.2021 09:30
Ákærður fyrir kynferðislega áreitni og brot gegn börnum í Austurbæjarskóla Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni og brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa mánudaginn 2. september 2019 farið í heimildarleysi inn í Austurbæjarskóla í Reykjavík og brotið gegn þremur nemendum skólans. Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur eftir hádegið í dag. Þinghald í málinu er lokað. 4.2.2021 17:06
Nýr kjarasamningur undirritaður hjá Alcoa á Reyðarfirði Starfsfólk Alcoa á Reyðarfirði er komið með nýjan kjarasamning við fyrirtækið til næstu þriggja ára. Samningurinn var undirritaður á Reyðarfirði í dag á milli Alcoa Fjarðaáls og starfsmanna fyrirtækisins sem tilheyra Afli stéttarfélagi og Rafiðnaðarsambandi Íslands. Samningurinn er afturvirkukr frá 1. mars 2020. 4.2.2021 16:47