Þú getur nálgast niðurstöðu um smitið áður en símtalið berst Undanfarinn mánuð hafa á bilinu eitt þúsund til sex þúsund manns farið í sýnatöku vegna einkenna eða sóttkvíar hjá heilsugæslum víða um land. Biðin eftir niðurstöðu getur reynst mörgum löng. Þeir sem reynast smitaðir eiga möguleika á að vita niðurstöðuna nokkru áður en símtalið berst frá göngudeild Landspítalans. 23.8.2021 10:30
Formaður sjúkrahússlækna segir ráðherrum að hætta að hlusta á forstjórann Theódór Skúli Sigurðsson, formaður sjúkrahússlækna, segir af og frá að mönnunarvandi sé eina vandamál Landspítalans en ekki fjármögnun. Það megi álykta af orðum ráðherra eftir fund með forstjóra Landspítalans. Theódór segir að sparnaðaraðgerðir hafi gengið svo langt að heilbrigðisstarfsmenn hafi hreinlega átt að hætta að hjúkra og lækna. Markmiðið væri að spara. 22.8.2021 15:31
Stýrislæsing var enn á vélinni sem steyptist til jarðar Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að flugmaður sem lést í banaslysi á Rangárvöllum sumarið 2019 hafi ekki framkvæmt nógu vandaða skoðun á vélinni fyrir flugtak og ekki gætt að því að stýrislæsing var á. Sætisbelti hafi verið notað sem stýrislæsing í vélinni sem samræmist ekki formlegum verkferlum eða gátlista vélarinnar. 22.8.2021 10:45
Styrmir Gunnarsson er látinn Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, er látinn 83 ára að aldri. Óhætt er að segja að þar sé genginn einn áhrifamesti fjölmiðlamaður okkar Íslendinga. Styrmir var þungavigtarmaður í þjóðmálaumræðunni um áratuga skeið, öflugur álitsgjafi og greinandi allt þar til undir það síðasta. 21.8.2021 09:20
Kylie Jenner á von á barni Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner er ólétt. Þau Travis Scott eiga von á sínu öðru barni samkvæmt heimildum People. 20.8.2021 21:18
Jóhanna tekur við Banönum Jóhanna Þ. Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Banana ehf., dótturfélags Haga hf.. Hún tekur við starfinu af Kjartani Má Friðsteinssyni. 20.8.2021 16:46
Bein útsending: Upplýsingafundur loftslagsverkfallsins Loftslagsverkfallið blæs til þriggja upplýsingafunda í ljósi stöðu loftslagsmála í heiminum. Sá fyrsti er í Norræna húsinu í dag og hefst klukkan 13:30. 20.8.2021 13:15
Biðst afsökunar á að hafa brotið reglu um grímuskyldu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist hafa gert mistök sem henni þyki mjög leiðinlegt. Katrín var ekki með grímu á Meistaravöllum í gær þar sem hún fylgdist með KR bursta Víking 6-0 í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu. 20.8.2021 12:20
Foreldrar barna þurfi ekki endilega að fara í sóttkví Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir smíðar nú tillögur að breyttum reglum er varða meðal annars sóttkví foreldra skólabarna. Þannig þyrftu foreldrar barna sem þurfa að fara í sóttkví ekki endilega að fara í sóttkví með börnum sínum. 20.8.2021 11:41
Forsetahjónin funduðu með Friðriki og Mary Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid forsetafrú funduðu með Friðriki, krónprins Dana, og Mary krónprinsessu í Amalienborg í dag. 19.8.2021 16:09