Prúðbúnir Verzlingar stigu langþráðan dans í Hörpu Nemendur á þriðja ári í Verslunarskóla Íslands héldu peysufatadaginn hátíðlega í dag með því að stíga dans í Hörpu. 23.9.2021 17:01
Play nælir í sölusérfræðing frá Icelandair Tatiana Shirokova hefur verið ráðin forstöðumaður sölusviðs Play og mun hún bera ábyrgð á sölu- og dreifingarmálum félagsins. Sölusvið er hluti af sölu- og markaðssviði og tekur Tatiana til starfa þann 1. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Play. 23.9.2021 16:50
Logi Einarsson búinn að greiða atkvæði Landsmenn ganga flestir að kjörborði Alþingiskosninganna á laugardaginn en óvenju margir hafa þó nýtt möguleikann á að kjósa utan kjörfundar þetta árið. Þeirra á meðal er Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, sem mætti í Kringluna í dag. 23.9.2021 12:51
Jafnmargir treysta Katrínu mikið og treysta Bjarna lítið Yfir helmingur landsmanna segjast bera mikið traust til Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra og yfir þriðjungur til Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins. Bjarni Benediktsson er í þriðja sæti yfir þá sem landsmenn treysta þótt enn fleiri beri lítið traust til hans. 23.9.2021 12:16
Elín Hirst vill Katrínu sem forsætisráðherra „Við viljum Katrínu Jakobsdóttur áfram sem forsætisráðherra“ segir í heilsíðu auglýsingu í Morgunblaðinu í dag. Undir rita fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar, þeirra á meðal Elín Hirst, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Tveir stuðningsmenn kostuðu auglýsinguna. 23.9.2021 11:36
Bótakröfur upp á tugi milljóna í Rauðagerðismálinu Réttargæslumaður Þórönnu Helgu Gunnarsdóttur, ekkju Armando Beqirai, tveggja barna þeirra og foreldra Armandos fór fram á tæplega 70 milljónir króna í bótagreiðslu frá sakborningum í Rauðagerðismálinu. Ýmist er um miskabótakröfur að ræða eða kröfur vegna missis á framfærslu. 23.9.2021 11:18
Bein útsending: Bjarni fer yfir stefnumál Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, heldur ræðu á kosningahátíð flokksins í Fjölrautarskólanum í Garðabæ klukkan 17 í dag. 22.9.2021 16:31
Uppsögn í framhaldi af tilkynningu um einelti Guðrúnu Jónsdóttur, safnstjóra hjá Safnahúsi Borgarfjarðar, hefur verið sagt upp störfum eftir fimmtán ár í starfi. Guðrún greinir frá uppsögninni á Facebook sem hún segir koma í beinu framhaldi af því að hún hafi lagt fram kvörtun um einelti á hendur sveitarstjóranum í Borgarbyggð. 22.9.2021 15:52
Hafrún, Kjartan og Rán skoða viðbrögð KSÍ Kjartan Björgvinsson héraðsdómari mun gegna formennsku í þriggja manna nefnd á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands sem ætlað er að gera úttekt á viðbrögðum og málsmeðferð Knattspyrnusambands Íslands vegna kynferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands. 22.9.2021 14:22
Sveitarstjóri í Borgarbyggð sver af sér ásakanir um einelti Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð, hefur verið sökuð um einelti af starfsmanni sveitarfélagsins. Þórdís upplýsir um þetta í Facebook-færslu en hafnar ásökunum. Hún segir málið í farvegi. 22.9.2021 14:16