Katrín fagnar fullyrðingu Ratcliffe og skýtur á stjórnarandstöðuna Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fagnar því á Facebook að breski auðkýfingurinn Jim Ratclifee ætli ekki að kaupa fleiri jarðir hér á landi. Það sé til marks um að stefna hennar í jarðarmálum hafi skilað árangri. Þar hafi markmiðið verði að koma í veg fyrir of mikla samþjöppun lands á fárra hendur. 22.9.2021 13:39
Forsætisráðherra: Óbætanlegt tjón og hugurinn hjá íbúum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að stjórnvöld muni eiga samtal við íbúa í Grímsey vegna bruna Miðgarðakirkju í nótt. Hún telur ríkan vilja hjá öllum til að styðja við bakið á íbúum í kjölfarið. 22.9.2021 11:02
Vanda býður sig fram til formanns KSÍ Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við mennta-vísindasvið Háskóla Íslands og knattspyrnuþjálfari, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Knattspyrnusambands Íslands. Hún greinir frá ákvörðun sinni á Facebook. 22.9.2021 10:13
Íbúar fylgdust með kirkjunni brenna með tárin í augunum Karen Nótt Halldórsdóttir, íbúi í Grímsey, var meðal þeirra sem horfðu upp á sögufræga Grímseyjarkirkju brenna til kaldra kola um ellefuleytið í kvöld. Karen segir tjónið fyrir eyjuna mikið, bæði í aðdráttarafli kirkjunnar fyrir ferðamenn en þó allra helst tilfinningalegt fyrir íbúana. 22.9.2021 00:58
Til skoðunar hvort gripið verði til aðgerða vegna Hugarafls Félagsmálaráðherra segir til skoðunar hvort og þá til hvaða ráðstafana verði gripið vegna athugasemda fyrrverandi skjólstæðinga grasrótarsamtakanna Hugarafls við framkomu stjórnenda þar á bæ. Einelti og ógnarstjórnun eru orð sem skjólstæðingarnir nota til að lýsa framkomu stjórnenda Hugarafls. 21.9.2021 15:58
Valli gæti vel verið Valla Rostungurinn Valli sem glatt hefur íbúa á Hornafirði undanfarin kvöld gæti vel verið kvenkyns. Þetta segir aðjúnkt í líffræði við Háskóla Íslands. Skýrari myndir og þá sérstaklega af kynfærasvæðinu muni leiða í ljós hvort réttara væri að kalla rostunginn Völlu. 21.9.2021 14:49
Jens hættir hjá Icelandair Jens Þórðarson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group. 20.9.2021 16:28
Á meltunni eftir lambalærisveislu þegar kallið barst „Maður horfir á skilaboðin og forganginn. Þarna er þetta F1 og F1 á sjó. Þá áttu engan umhugsarfrest. Ef þú ætlar að mæta, þá er það núna.“ 20.9.2021 15:34
Konurnar sem slösuðust á Tenerife á leið til landsins með sjúkraflugi Tvær íslenskar konur á fimmtugsaldri sem slösuðust alvarlega þegar þær urðu fyrir krónu sem féll úr pálmatré á Tenerife þann 12. september eru á leið til landsins með sjúkraflugi. Þetta hefur fréttastofa eftir eiginmanni annarrar konunnar. 20.9.2021 13:34
„Fólk er að horfa á húsin sín hverfa ofan í jörðina“ Hjónin Hafsteinn Helgi Halldórsson og Guðrún Agla Egilsdóttir bjuggu á La Palma í tvö ár en eru nýflutt heim til Íslands. Þau segja eldgosið sem nú gengur yfir eyjuna enn eitt áfallið fyrir íbúana sem hafa nýlega glímt við bæði skógarelda og hitabeltisstorm. 20.9.2021 11:54