Sækja slasaðan göngumann á Strandir Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð laust eftir klukkan hálf eitt vegna göngumanns sem rann niður fjallshlíð í Norðurfirði á Ströndum og slasaðist. Þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. 26.11.2021 13:33
Bein útsending: Hið umdeilda blóðmerahald á Íslandi í Pallborðinu Blóðtaka úr hryssum til framleiðslu hormóns sem notað er í búfjárrækt erlendis er eitt mesta hitamál vikunnar, eftir að alþjóðlegu dýraverndunarsamtökin AWF/TBS birtu myndband um illa meðferð við starfsemina. 26.11.2021 12:36
Hin látna í Vogunum á sjötugsaldri Konan sem lést þegar strætisvagni var ekið á hana við gatnamót Gnoðarvogs og Skeiðarvogs í gær var á sjötugsaldri, af erlendum uppruna og búsett hér á landi. 26.11.2021 12:14
Konfettísprengja og Carlsen byrjar með svart Fyrsta skákin í heimsmeistaraeinvígi Magnúsar Carlsen og Ian Nepomniachtchi hefst klukkan 12:30 að íslenskum tíma í morgun. Teflt er í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 25.11.2021 16:21
YAY-arar segjast steinhissa á niðurstöðu Persónuverndar Framkvæmdastjóri stafræna gjafakortasmáforritsins YAY segir erfitt að una við niðurstöðu Persónuverndar sem sekaði fyrirtækið um fjórar milljónir króna vegna vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við ferðagjöf stjórnvalda. 25.11.2021 15:16
Arion banki hækkar vextina Arion banki hækkar breytilega vexti sína á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,40 prósentustig. Þetta gerir bankinn í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans þann 17. nóvember að hækka stýrivexti um 0,5 prósentur. Hækkunin tekur gildi á morgun. 25.11.2021 14:31
Gestir Heiðmerkur njóta góðs af níræðisafmælisgjöf Vilhjálms Vilhjálmur Sigtryggsson fagnaði níræðisafmæli sínu í vor. Í afmælisgjöf var ákveðið að smíðaður yrði bekkur og honum komið fyrir á fallegum stað í Heiðmörk. 24.11.2021 16:54
Reikna með hlaupi úr Grímsvötnum á allra næstu dögum Von er á því að hlaup úr Grímsvötnum í Vatnajökli hefjist á allra næstu dögum. Dæmin hafa sýnt að slíkum jökulhlaupum geta fylgt eldgos. Fundi vísindaráðs Almannavarna lauk á fimmta tímanum í dag. 24.11.2021 16:48
Jón Þór kærir Inga Tryggvason til lögreglu Jón Þór Ólafsson, umboðsmaður framboðslista Pírata í nýafstöðnum kosningum til Alþingis, hefur kært Inga Tryggvason, oddvita yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, til lögreglu. Þetta kemur fram í pistli sem Jón Þór birtir á Vísi sem kærir Inga fyrir mögulegt kosningasvindl. 24.11.2021 13:09
Bein útsending: Rætt við þingmenn í kjörbréfanefnd Alþingi kemur saman klukkan hálf tvö í dag eftir eitt lengsta þinghlé síðari ára. Undirbúningskjörbréfanefnd birtir greinargerð sína vegna framkvæmdar kosninga í Norðvesturkjördæmi einnig í dag en reikna má með tveimur og jafnvel fleiri álitum frá nefndarfólki. 23.11.2021 14:39