Orri Páll formaður þingflokks VG Orri Páll Jóhannsson er nýr formaður þingflokks Vinstri grænna. Þetta var ákveðið á fundi þingflokksins síðdegis. Hann tekur við stöðunni af Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur sem verður varaformaður þingflokksins. 29.11.2021 16:34
Matvælaöryggi ekki tryggt við ísframleiðslu hjá Ketó kompaníinu og Pizzunni Ketókompaníið hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Ketóís frá Ketó Kompaníinu og ís frá Pizzunni. Matvælaöryggi viðkomandi vara var ekki tryggt á framleiðslustað. 29.11.2021 13:22
Uggandi yfir nýju fyrirkomulagi og kalla eftir skýrum aðgerðum Stjórn Landverndar fagnar markmiðum nýrrar ríkisstjórnar í loftslagsmálum en kallar eftir skýrari aðgerðum til að ná þeim. Áform um að ganga gegn áliti fagaðila varðandi rammaáætlun þrjú sé stríðsyfirlýsing. Þá óttast Landvernd að sama ráðuneytið haldi utan um orkumál og náttúruvernd. 29.11.2021 12:11
Gleymdi að afhenda Þórdísi Kolbrúnu lyklaspjaldið Lyklavöldin að utanríkisráðuneytinu verða áfram hjá Sjálfstæðisflokknum þó ákveðið hafi verið að skipta um ráðherra í brúnni. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tekur við af Guðlaugi Þór Þórðarsyni sem færir sig yfir í umhverfis- og loftslagsmálaráðuneytið. 29.11.2021 10:57
Segist treysta engum betur í málið en Willum Svandís Svavarsdóttir fráfarandi heilbrigðisráðherra segist engum treysta betur til að taka við heilbrigðisráðuneytinu en Willum Þór Þórssyni, þingmanni Framsóknar. Willum segir gott að geta leitað í reynslubanka Svandísar. 29.11.2021 10:06
Enn ekið á gangandi og fólk á rafhlaupahjóli Ekið var á gangandi vegfaranda í Hlíðarbergi í Hafnarfirði á sjöunda tímanum í kvöld. Töluvert var um umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í dag og fólk flutt á slysadeild. Þetta kemur fram í skeyti lögreglu til fjölmiðla í kvöld. 28.11.2021 23:11
Orkuveitan þarf að greiða Glitni milljarða króna Orkuveita Reykjavíkur þarf að greiða Glitni HoldCo, eignarhaldsfélagi utan um eftirstandandi eignir hins fallna banka Glitnis, á fjórða milljarð króna. Um er að ræða 740 milljónir króna auk himinhárra uppsafnaðra dráttarvaxta vegna uppgjörs afleiðusamninga sem gerðir voru við Glitni á árunum fyrir hrun. 26.11.2021 16:54
Óttast föður sinn sem eltir þær á röndum Karlmaður á Suðurnesjum hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. desember. Landsréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis. Karlmaðurinn sætir ákæru fyrir fyrir stórfelld brot í nánu sambandi gegn fjórum dætrum sínum og fyrrum eiginkonu. 26.11.2021 16:30
Grunur um blóðþorra í fyrsta skipti á Íslandi Rökstuddur grunur er um blóðþorra, svonefnda ISA-veiru, í laxi í sjókví Laxa fiskeldis í Reyðarfirði. Veiran uppgötvaðist við krufningu og sýnatöku í kjölfar vaxandi óútskýrðra affalla í sjókví númer sjö hjá Löxum. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir fyrirtækið komið með þykkan skráp fyrir áföllum. 26.11.2021 15:20
Ætla að kynna nýja ríkisstjórn á sunnudaginn Formenn Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks ætla að funda með lykilfólki í flokkunum sínum á morgun og kynna fyrir þeim stjórnarsáttmála. Leggi þeir blessun sína yfir stjórnarsáttmálann verður hann kynntur fyrir þjóðinni á sunnudag. 26.11.2021 13:57