Tæplega 3500 börn á aldrinum 5-11 ára greinst en ekkert lagst inn Hér á landi hafa 6.578 börn á aldrinum 0–16 ára greinst með COVID-19 frá upphafi faraldursins til 2. janúar 2022, þar af eru 3.449 börn á aldrinum 5–11 ára. 17.1.2022 15:35
Sótti brotaþola í nuddið: „Ég var ekki til staðar fyrir hana“ Vinkona ungrar konu sem segir Jóhannes Tryggva Sveinbjörnsson hafa brotið á sér í meðferðartíma á stofu hans segist hafa brugðist vinkonu sinni. Hún sótti hana í tímann en segist ekki hafa vitað hvernig ætti að bregðast við. Eftir á að hyggja hefði átt að tilkynna málið til lögreglu. 17.1.2022 15:00
Líklega mesta loðnuveiði sögunnar Börkur NK sem gerir út frá Seyðisfirði landaði 3.211 tonnum af loðnu í fiskimjölsverkmiðju Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði í gær. Verksmiðjustjóri segir þetta stærsta loðnufarm sem hann hafi heyrt um. 14.1.2022 15:28
Heimavinnublús sem talinn var úr sögunni Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er einn af átta sem láta í sér heyra í laginu „Heimavinnublús“ sem sett hefur verið í birtingu á YouTube rúmu ári eftir upptöku. Forsprakki verkefnisins segist aldrei hafa átt von á því að tilefni yrði til að birta lagið. 14.1.2022 15:01
Umdeild launahækkun Björns Zoëga í kastljósi sænskra fjölmiðla Mánaðarlaun Björns Zoëga, forstjóra Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð, hækkuðu á síðasta ári um nærri 30 þúsund sænskar krónur, jafnvirði um 430 þúsund íslenska króna. Laun hans eftir hækkunina nema rúmlega 270 þúsund sænskum krónum eða 3,9 milljónum íslenskra króna. 14.1.2022 14:29
Segir veitingaaðilum létt með óbreyttum reglum og styrkjum Reglur hvað varða veitingastaði hér á landi eru nokkurn veginn óbreyttar. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir þetta mikinn létti fyrir veitingahúsaeigendur og hótelrekendur sem hafi verið farnir að reikna með enn harðarði takmörkunum. 14.1.2022 14:18
Fá svigrúm til að greiða aukalega næstu fjórar vikurnar Ríkisstjórnin hefur ákveðið að tryggja Landspítala svigrúm sem gerir kleift að greiða starfsfólki sérstaklega fyrir viðbótarvinnuframlag næstu fjórar vikurnar. Talið er að þannig megi betur tryggja mönnun við erfiðar aðstæður meðan mesti þunginn í faraldrinum gengur yfir. 14.1.2022 13:44
Ágúst hættir sem sveitarstjóri Ágúst Sigurðsson, sveitastjóri í Rangárþingi ytra, ætlar ekki að gefa kost á sér til frekari starfa að loknum kosningunum í vor. Hann mun þá hafa gengt starfi sveitastjóra í átta ár en Sjálfstæðisflokkurinn er með meirihluta í sveitarstjórninni. 14.1.2022 11:32
„Algjörlega óviðráðanlegar aðstæður“ Ökumaður stærðarinnar vöruflutningabíls lenti í miklu basli á Háreksstaðaleið seinni partinn í gær í gríðarlegu hvassviðri og hálku. Framkvæmdastjóri Smyril Line þakkar fyrir að ekki hafi farið illa en einn reyndasti bílstjóri fyrirtækisins var undir stýri. 13.1.2022 18:46
Óvissan er gríðarleg: „Eigum við að segja upp fólki? Eða ekki?“ Veitingamenn eru í mikilli óvissu varðandi hertar aðgerðir sem talið er líklegt að kynntar verða á morgun. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skilaði minnisblaði til heilbrigðisráðherra í dag en hann hefur talað um að hertra aðgerða sé þörf. 13.1.2022 17:02