Tveir létust á Grindavíkurvegi Tveir létust í alvarlegu umferðarslysi sem átti sér stað á tólfta tímanum í dag á Grindavíkurvegi. Lögreglan á Suðurnesjum hefur tildrög slyssins til rannsóknar. 5.1.2024 16:02
Fullnaðarsigur Slayer fimm árum eftir tónleikana í Laugardalnum Guðmundur Hreiðarsson Viborg og Félögin L Events ehf. og Lifandi Viðburðir ehf. þurfa að greiða þungarokkshljómsveitinni Slayer eftirstöðvar þóknunar sem sveitin var snuðuð um eftir að hún tróð upp á tónlistarhátíðinni Secret Solstice sumarið 2018. 5.1.2024 11:08
Bein útsending: Ójöfnuður á Stór-Reykjavíkursvæðinu - hver er staðan? Opið málþing um félagslegt landslag fer fram í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag. Yfirskrift málþingsins er Ójöfnuður á Stór-Reykjavíkursvæðinu - hver er staðan? Málþingið hefst klukkan 9.00 og verður einnig hægt að fylgjast með málþinginu í streymi hér að neðan. 5.1.2024 09:47
Herdís Dröfn nýr forstjóri Sýnar Herdís Dröfn Fjeldsted hefur verið ráðin forstjóri Sýnar að loknu ráðningarferli. Hún mun hefja störf þann 11. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar. Páll Ásgrímsson sem gegnt hefur starfinu undanfarna mánuði eftir brotthvarf Yngva Halldórssonar hverfur aftur til starfa sem framkvæmdastjóri lögfræðisviðs félagsins. 5.1.2024 09:20
Átján prósenta verðhækkun ólíðandi að mati bæjarstjóra HS veitur segja að skortur á raforku í landinu hafi leitt til 18 prósenta verðhækkunar á heitu vatni í Vestmannaeyjum. Bæjarstjóri segir ekkert í hendi um að ríkið komi til móts við Eyjamenn. 4.1.2024 16:44
Ýmsar ástæður fyrir lokun en launin stóra vandamálið María Rún Hafliðadóttir, forstjóri Gleðipinna sem rekur Íslensku hamborgarafabrikkuna, segir erfitt að loka veitingastað með tíu ára sögu. Launakostnaður geri veitingahúsarekstur afar erfiðan. 4.1.2024 15:22
Tvö alvarleg frávik hjá Arctic Sea Farm Matvælastofnun hefur gefið Arctic Sea Farm hf, dótturfyrirtæki Arctic Fish, frest til 19. janúar að bregðast við tveimur alvarlegum frávikum sem greindust við eftirlit á starfsemi í sjókvíeldi í Kvígindisdal í Patreksfirði í september. Annað frávikið varðar ljósabúnað en hitt eftirlit neðansjávar. 4.1.2024 14:51
Fór straumur um líkamann eftir að sortuæxlið var fjarlægt Katrín Júlíusdóttir rithöfundur og fyrrverandi ráðherra, Alþingismaður og framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja greindist með sortuæxli á eyra síðastliðið haust. Hún gekkst undir aðgerð sem heppnaðist vel en verður í stífu eftirliti næstu mánuði. 4.1.2024 12:39
Fullur efasemda um faðerni sextíu árum síðar 85 ára karlmaður búsettur í Kópavogi hefur stefnt fyrrverandi eiginkonu sinni og syni fyrir dóm. Hann véfengir að hann sé faðir skráðs sonar síns og vill fá það viðurkennt fyrir dómi. 4.1.2024 11:30
Í leyfi vegna gruns um brot gegn samstarfskonu Yfirmaður hjá lögreglunni á Suðurlandi hefur verið marga mánuði í leyfi á meðan héraðssaksóknari hefur haft kæru samstarfskonu hans til rannsóknar. Málið er nú á borði ríkissaksóknara. 4.1.2024 10:54