Íbúar á austurströndinni moka eftir gríðarlega ofankomu Íbúar á austurströnd Bandaríkjanna hamast nú við að moka snjó eftir að honum kyngdi niður um helgina. Ekki hefur snjóað svo mikið á svæðinu í um fjögur ár en verst var ástandið í borgum á borð við Boston og Atlantic City. 31.1.2022 06:54
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður fjallað um boðaða afléttingaáætlun stjórnvalda í kórónuveirufaraldrinum en blaðamannafundur hefst í Safnahúsinu um klukkan hálftólf. 28.1.2022 11:28
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á kórónuveirufaraldrinum og beinum sértaklega sjónum að hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þar sem helmingur heimilismanna er nú smitaður. 27.1.2022 11:35
Hafna kröfu Rússa um að Úkraínu verði meinuð aðild að NATO Bandaríkjamenn hafa hafnað kröfu Rússa um að Úkraínu verði meinað að ganga til liðs við Atlantshafsbandalagið, NATO. 27.1.2022 07:06
Neitar að hafa verið góður vinur Ghislaine Maxwell Andrés prins sem sakaður er um kynferðisbrot í einkamáli í Bandaríkjunum neitar því að hann hafi verið góður vinur Ghislaine Maxwell, sem á dögunum var sakfelld fyrir mansal og kynferðisbrot í tengslum við milljarðamæringinn Jeffrey Epstein. Prinsinn neitar einnig öllum sakargiftum. 27.1.2022 07:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum greinum við frá tíðindum af upplýsingafundi þríeykisins sem haldinn var fyrir hádegið. 26.1.2022 11:34
Leggja niður allar sóttvarnaaðgerðir í Danmörku Danska ríkisstjórnin hefur ákveðið að fallið verði frá öllum sóttvarnarráðstöfunum þar í landi frá og með næstu mánaðarmótum. Þetta þýðir að næturlífinu verða engar skorður settar, grímunotkun ónauðsynleg og svo fram eftir götunum. 26.1.2022 08:35
Björgunarskip í Sandgerðishöfn skemmdist í óveðrinu Björgunarskipið Hannes Hafstein sem Björgunarbátasjóður Suðurnesja rekur skemmdist mikið í óveðrinu sem gekk yfir landið í gær. 26.1.2022 07:46
Slökkvilið sinnti fjölda útkalla vegna lægðarinnar Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölda útkalla í gær vegna lægðarinnar sem gekk yfir landið með tilheyrandi roki á höfuðborgarsvæðinu. 26.1.2022 06:49
Mun aftur svara fyrir veisluvöldin í breska þinginu í dag Boris Johnson forsætisráðherra Breta mun sitja fyrir svörum í breska þinginu síðar í dag og er búist við að ráðherrann lendi í orrahríð, enda er einnig von á skýrslu frá Sue Gray, embættismanni sem falið var að rannsaka möguleg sóttvarnabrot í kórónuveirufaraldrinum. 26.1.2022 06:39