Rússland

Rússland

Höfuðborg: Moskva. Mannfjöldi: 146,0 milljónir (2025). Flatarmál: 17.098.246 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Pútín lentur í Peking

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti í dag í Peking í Kína, þar sem hann mun funda með Xi Jinping, kollega sínum. Fundarhöldin munu standa yfir í tvo daga og ætla forsetarnir, samkvæmt rússneskum stjórnvöldum, að ræða efnahagssamvinnu og sameiginlega hagsmuni ríkjanna. Stutt er síðan Donald Trump Bandaríkjaforseti var í opinberri heimsókn í Kína en talsmaður Pútíns segir það ótengt heimsókn Pútíns.

Erlent
Fréttamynd

Hvernig Rúss­land tapaði vinum sínum og á­hrifum á heims­vísu

Frá því að Vladimir Pútín hóf allsherjarinnrás sína í Úkraínu fyrir meira en fjórum árum hefur honum ekki aðeins mistekist að ná þeim hernaðarlega sigri sem hann þráði. Hann hefur einnig grafið undan fjölmörgum samböndum og tengslum sem hann eyddi áratugum í að byggja upp, með þeim afleiðingum að Rússland er nú einangraðra en á nokkrum tíma síðan á fyrstu árum bolsévikabyltingarinnar.

Umræðan
Fréttamynd

Engir flökkudrónar fundist í Finn­landi

Finnsk yfirvöld segja að engir flökkudrónar hafi fundist eftir að almannavarnatilkynning var gefin út til íbúa Helsinki í nótt um að halda kyrru fyrir innandyra. Forsætisráðherrann segir viðbrögð yfirvalda ekki hafa verið ýkt miðað við tilefnið.

Erlent
Fréttamynd

Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar

Ráðamenn í bæði Rússlandi og í Úkraínu telja litlar líkur á því að hægt verði að endurlífga viðræðurnar þar sem Bandaríkjamenn hafa reynt að miðla málum þeirra á milli, jafnvel þegar stríði Bandaríkjanna gegn Íran lýkur. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er sagður staðráðinn í að leggja undir sig meira landsvæði í Úkraínu og þá sérstaklega Donbas-svæðið svokallaða.

Erlent
Fréttamynd

Skuggaskip sem sökk bar mögu­lega kjarna­kljúfa handa Kim

Rússneskt flutningaskip, sem tilheyrði hinum svokallaða „skuggaflota“ bar líklega tvo kjarnakljúfa þegar það sökk undan ströndum Spánar í Miðjarðarhafið. Skipið bar nafnið „Ursa Major“ og sökk seint að kvöldi þann 23. desember 2024 þegar verið var að sigla því, samkvæmt skráningu, til Vladivostok.

Erlent
Fréttamynd

Skildu skrið­drekana eftir á víg­línunni

„Sigurinn verður, og hefur alltaf verið, okkar,“ sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti er hann flutti ræðu á Rauða torginu í Moskvu þar sem hersveitir höfðu stillt sér upp að tilefni Sigurdagsins svokallaða. Hersýningin var með breyttu sniði í ár, nánar til tekið smærri, þar sem flest þungavopn Rússa eru á víglínunni í Úkraínu um þessar mundir.

Erlent
Fréttamynd

Þriggja daga vopna­hlé í Úkraínu

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað þriggja daga vopnahlé í innrásarstríði Rússa í Úkraínu. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti staðfestir að vopnahléð hefjist á morgun, laugardag.

Erlent
Fréttamynd

Ekkert vopna­hlé heldur um­fangs­miklar á­rásir í Rúss­landi

Bæði Rússar og Úkraínumenn hafa sakað hvor annan um að brjóta gegn vopnahléi sem Vladimír Pútín, forseti Rússlands, krafðist einhliða um helgina á meðan að Rússar halda upp á sigur sinn á Þýskalandi í seinni heimsstyrjöldinni. Eftir að Rússar gerður umfangsmiklar árásir á Úkraínu í gær hafa Úkraínumenn gert dróna- og eldflaugaárásir víðsvegar um Rússland í dag.

Erlent
Fréttamynd

Eigin­konan hvarf til Rúss­lands skömmu eftir giftingu

Þrítugur íslenskur karlmaður hefur stefnt eiginkonu sinni, 23 ára Rússa, til lögskilnaðar. Í stefnunni segir að þau hafi gengið í hjúskap í apríl 2024 eftir stutt samband en í júlí sama ár hafi hún fyrirvaralaust flutt til Rússlands og þannig slitið samvistum þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert farar­snið á Rússum í Malí

Rússneskir málaliðar, á vegum yfirvalda í Rússlandi, munu ekki yfirgefa Malí. Þar munu þeir áfram aðstoða herforingjastjórn landsins við að berjast gegn uppreisnar- og vígamönnum. Malí og rússneska Afríkudeildin svokallaða bauð afhroð í skyndisókn vígamanna víða um landið um síðustu helgi.

Erlent
Fréttamynd

Áttu langt sím­tal

Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddu við hvor annan í síma í einn og hálfan tíma.

Erlent
Fréttamynd

Rúss­nesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vand­ræða

Þrátt fyrir að olíuverð hafi rokið upp og flutningaleiðir raskast eftir að Hormús-sundi var lokað af Írönum og Bandaríkjamenn settu hafnbann á Íran átti rússnesk ofursnekkja ekki í neinum vandræðum með að sigla í gegnum sundið um síðustu helgi.

Erlent
Fréttamynd

Sjö felldir í Úkraínu

Hið minnsta sjö voru felldir í umfangsmiklum loftárásum Rússa víða í Úkraínu í fyrrinótt og þar af fimm í Dnípró, þar sem sprengja lenti á íbúðahúsnæði. Þessa sömu nótt sóttu úkraínskir drónar djúpt inn í Rússland.

Erlent
Fréttamynd

Vestur­lönd tali opin­skátt um fyrirætlað stríð við Rúss­land

Utanríkisráðherra Rússlands segir Vesturlönd hafa lýst Rússlandi stríði á hendur með Úkraínu í broddi fylkingar. Vestrænir leiðtogar tali opinskátt um fyrirætlaða styrjöld við Rússland og vilji nota „Kænugarðsstjórnina“ sem múrbrjót. Þetta er þrátt fyrir að Rússland hafi gert allsherjarinnrás í landið fyrir fjórum árum síðan og staðið í árásum á það í á annan áratug.

Erlent
Fréttamynd

Hætta að styrkja Fen­eyjart­víæringinn vegna þátt­töku Rússa

Evrópusambandið ætlar að hætta að styrkja ítölsku listahátíðina Feneyjartvíæringinn vegna ákvörðunar stjórnenda hennar að bjóða rússneskum listamönnum. Þetta verður í fyrsta skipti sem Rússar taka þátt eftir að innrás þeirra í Úkraínu hófst af fullum þunga árið 2026.

Erlent
Fréttamynd

Banda­maður Rússa vann stór­sigur í Búlgaríu

Rumen Rudev, fyrrverandi forseti Búlgaríu, vann stórsigur á ríkjandi flokkum sem hann sakaði um að reka mafíuríki í þingkosningum þar í landi í gær. Radev er sagður hallur undir Rússa, sérstaklega hvað varðar innrás þeirra í Úkraínu.

Erlent
Fréttamynd

Lýsir yfir fyrsta sigri vél­menna á víg­vellinum

Rússneskir hermenn gáfust upp fyrir fjarstýrðum land- og flugdrónum þegar úkraínski herinn tók stöðu þeirra á vígvellinum. Forseti Úkraínu segir þetta í fyrsta skipti sem slíkur sigur náist á vígvellinum eingöngu með vélum.

Erlent
Fréttamynd

Innan­búðar­maðurinn sem lagði Or­bán

Verðandi forsætisráðherra Ungverjalands, Péter Magyar, var innanbúðarmaður í flokki Viktors Orbán þar til fyrir örfáum árum. Hann er sagður umdeildur, jafnvel á meðal eigin kjósenda. Magyar þykir metorðagjarn, hrokafullur og jafnvel andstyggilegur.

Erlent
Fréttamynd

Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér

„Ungverjar sögðu já við Evrópu í dag,“ sagði Péter Magyar, formaður Tisza-flokksins sem vann stórsigur ungversku þingkosningunum í kvöld. „Þeir sögði já við frjálst Ungverjaland,“ hélt hann áfram í ræðu á kosningavöku flokksins. Hann bað forseta Ungverjalands um að veita flokknum stjórnarmyndunarumboð og segja svo strax af sér. „Ég bið allar strengjabrúðurnar sem hafa verið við völd síðustu sextán ár um að gera slík hið sama,“ bætti hann við.

Erlent
Fréttamynd

Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt út­lit í könnunum

Kálið er ekki endilega sopið þótt í ausuna sé komið hjá ungversku stjórnarandstöðunni þrátt fyrir að hún mælist með töluvert forskot á flokk Viktors Orbán forsætisráðherra fyrir kosningar sem fara fram á sunnudag. Stórveldi fylgjast grannt með úrslitunum en Orbán er helsti bandamaður bæði Rússa og Bandaríkjamanna í Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Bauð Pútín að vera „músin“ hans

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, bauð Vladímír Pútín Rússlandsforseta alla þá aðstoð sem hann gæti veitt honum í haust. Ungverski leiðtoginn, sem hefur komið í veg fyrir lánveitingar ESB til Úkraínu, sagðist geta verið músin sem hjálpaði ljóninu Pútín.

Erlent