Nowitzki og James heitir Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Cleveland vann góðan útisigur á Chicago á útivelli 108-100, þar sem LeBron James skoraði 37 stig fyrir Cleveland, en Ben Gordon var með 22 stig fyrir Chicago. Dallas lagði Sacramento á útivelli 105-95. Dirk Nowitzki skoraði 37 stig fyrir Dallas, en Mike Bibby skoraði 22 stig fyrir Sacramento. Sport 23. desember 2005 10:59
Sacramento tekur á móti Dallas Leikur Sacramento Kings og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV í nótt. Staða þessara liða er mjög ólík, því lið Sacramento á mjög erfitt uppdráttar í vetur, liðið fékk til sín marga nýja leikmenn í sumar og svo hafa meiðsli sett svip sinn á leik liðsins. Allt gengur hinsvegar í haginn hjá Dallas, sem hefur náð frábærum árangri þrátt fyrir að hafa enn ekki geta stillt upp sínu sterkasta liði í vetur. Sport 22. desember 2005 22:00
Artest verður hjá Indiana fram yfir jól Vandræðagemlingurinn Ron Artest hjá Indiana Pacers verður hjá liðinu fram yfir hátíðar, en forráðamenn félagsins segjast bjartsýnir á að geta skipt honum í burtu strax eftir jól. Artest er sagður hafa dregið kröfu sína um að verða skipt frá liðinu til baka, en þolinmæði Indiana er einfaldlega á þrotum og víst þykir að hann hafi spilað sinn síðasta leik með liðinu. Sport 22. desember 2005 17:00
Indiana sigraði LA Clippers Indiana sigraði LA Clippers í nótt 97-75 á heimavelli sínum og færði Clippers fjórða tap sitt í síðustu fimm leikjum sínum. Stephen Jackson var stigahæstur í liði Indiana Pacers með 24 stig, en Elton Brand skoraði 29 stig hjá Clippers. Sport 22. desember 2005 13:25
Kirilenko meiddur Rússneski framherjinn Andrei Kirilenko hjá Utah Jazz lék spilaði ekki með liði sínu í nótt vegna bakmeiðsla sem hann hlaut í leik gegn Milwaukee í byrjun vikunnar og verður væntanlega ekki með liðinu í næstu leikjum. Lið Utah hefur verið einstaklega óheppið með meiðsli í vetur sem og í fyrravetur, en meiðslalisti liðsins hefur verið langur síðan í fyrra haust. Sport 21. desember 2005 21:00
Kobe Bryant skoraði 62 stig í þremur leikhlutum Kobe Bryant fór hamförum með liði LA Lakers í auðveldum 112-90 sigri á Dallas, þar sem hann skoraði 62 stig í aðeins þremur leikhlutum og setti á svið einhverja mestu skotsýningu í sögu deildarinnar. Hann skoraði 30 stig í þriðja leikhlutanum einum, en það er það mesta í einum fjórðung í sögu LA Lakers og Bryant hafði skorað fleiri stig eftir þrjá fjórðunga en allt Dallas-liðið til samans. Sport 21. desember 2005 12:16
Yao Ming verður frá í nokkrar vikur Kínverski risinn Yao Ming hjá Houston Rockets verður frá keppni í nokkrar vikur eftir að hafa farið í aðgerð vegna sýkingar í stórutánni á vinstra fæti. Þetta er mikið áfall fyrir Houston, sem hafði þurft að vera án Tracy McGrady í nokkra leiki á dögunum og gekk vægast sagt illa án hans. Ming hafði aðeins misst úr tvo leiki á ferlinum áður en þessi meiðsli komu upp og skorar að meðaltali 20 stig og hirðir 9 fráköst í leik. Sport 20. desember 2005 21:00
Tvíframlengt hjá Memphis og Detroit Detroit Pistons vann enn einn leikinn í NBA deildinni í nótt þegar liðið vann mjög nauman sigur á Memphis Grizzlies í tvöfaldri framlengingu 106-104. Chauncey Billups skoraði 30 stig fyrir Detroit og gaf 9 stoðsendingar, en Pau Gazol skoraði 32 stig og hirti 13 fráköst fyrir Memphis. Sport 20. desember 2005 14:00
Iquodala jafnaði troðslumet Háloftafuglinn Andre Iguodala hjá Philadelphia skoraði 26 stig í nótt þegar lið hans burstaði Toronto, en hann tróð boltanum alls sex sinnum í leiknum og það er það mesta í fimm ár hjá bakverði í NBA deildinni. Það er hinsvegar Dwayne Wade hjá Miami sem er með flestar troðslur allra bakvarða í NBA í vetur með 51 troðslu, en Iguodala kemur næstur þar á eftir með 39 troðslur. Sport 19. desember 2005 14:45
New Orleans skellti meisturunum New Orleans Hornets gerði sér lítið fyrir og lagði meistara San Antonio í NBA deildinni í nótt 89-76. Hornets héldu Tim Duncan í aðeins 11 stigum, sem er það lægsta sem hann hefur skorað í vetur. Tæplega 20.000 áhorfendur í Oklahoma City trylltust af fögnuði þegar þeir sáu nýliðann Chris Paul eiga frábæran leik og stýra liðinu til sigurs gegn sterku liði San Antonio. Sport 19. desember 2005 11:15
Fyrsta tap Riley með Miami Miami Heat tapaði í nótt fyrsta leiknum sínum undir stjórn Pat Riley þegar liðið lá 115-107 á útivelli, þar sem LeBron James fór á kostum og skoraði 41 stig og gaf 10 stoðsendingar. Dwayne Wade var atkvæðamestur í liði Miami með 33 stig. Sport 18. desember 2005 12:45
Detroit valtaði yfir Chicago Fjöldi leikja var á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Efsta lið deildarinnar Detroit Pistons valtaði yfir Chicago Bulls á heimavelli sínum og hefur nú unnið 17 af fyrstu 20 leikjum sínum á tímabilinu. Sport 17. desember 2005 12:37
Artest sektaður Vandræðagemlingurinn Ron Artest hjá Indiana Pacers var í gær sektaður um 10.000 dollara fyrir ummæli sín í Indianapolis Star á dögunum, þar sem hann fór fram á að verða skipt frá liði Indiana og sagði liðið betur komið án sín. Sport 16. desember 2005 17:15
Fimmti sigur Houston í röð Houston Rockets vann fimmta leik sinn í röð í nótt þegar liðið skellti Seattle á útivelli, en allt annar bragur hefur verið á liðinu síðan Tracy McGrady sneri aftur úr meiðslum. Þá vann Cleveland góðan sigur á Denver og meistarar San Antonio unnu nauman sigur á Minnesota. Sport 16. desember 2005 12:52
Ekki tilbúinn að framlengja samning Cole Stuart Pearce ætlar að bíða þar til í lok leiktíðar með að ákveða hvort samningur framherjans Andy Cole verður framlengdur eða ekki, en hinn 34 ára gamli Cole er sem stendur á eins árs samningi við City og hefur komið nokkuð á óvart í vetur. Cole hefur skorað sjö mörk í þeim þrettán leikjum sem hann hefur verið í byrjunarliðinu og hefur sýnt gamalkunna takta oft á tíðum. Sport 15. desember 2005 19:30
Besta byrjun Detroit frá upphafi Detroit Pistons sigraði Sacramento Kings í nótt og hefur aldrei byrjað betur í sögu félagsins, en liðið hefur unnið 16 af fyrstu 19 leikjum sínum. LA Lakers kláraði keppnisferðalag sitt með góðum útisigri á Memphis og Pat Riley krækti í annan sigur sinn á jafnmörgum dögum sem þjálfari Miami Heat. Sport 15. desember 2005 12:50
Keppnistreyja Dwayne Wade vinsælust Það kemur nokkuð á óvart að þegar listinn yfir söluhæstu treyjur NBA leikmanna í Bandaríkjunum er skoðaður, er það treyja merkt bakverðinum Dwayne Wade hjá Miami sem er í efsta sætinu. Listinn er byggður á sölu í NBA búðinni á Manhattan í New York, sem og á sölu á heimasíðu deildarinnar, NBA.com. Sport 14. desember 2005 22:15
Riley stýrði Miami til sigurs í fyrsta leik Miami Heat bar sigurorð af Chicago Bulls í nótt í fyrsta leik Pat Riley sem þjálfara, en hann tók við af Stan Van Gundy á dögunum eftir að sá síðarnefndi ákvað að hætta af fjölskylduástæðum. Riley og félagar þurftu að hafa nokkuð fyrir sigrinum, en þriggja stiga skot frá Chicago sem hefði getað jafnað leikinn á lokasekúndunni vildi ekki ofan í. Sport 14. desember 2005 12:19
Grant Hill væntanlega með Orlando í nótt Framherjinn Grant Hill leikur að öllum líkindum sinn fyrsta leik á tímabilinu með Orlando Magic í kvöld þegar liðið sækir New York heim. Hill hefur verið frá keppni síðan í haust vegna kviðslits og þurfti í aðgerð vegna þessa í endaðan október. Þetta eru góð tíðindi fyrir Orlando liðið, því flestir lykilmanna liðsins hafa misst úr leiki í vetur vegna meiðsla og gengið því verið brösótt. Sport 13. desember 2005 20:45
Detroit lá í Utah Fimm leikir voru háðir í NBA deildinni í körfubolta í nótt og þar bar hæst að sjóðheitt lið Detroit Pistons tapaði óvænt fyrir Utah Jazz á útivelli. Kobe Bryant tryggði LA Lakers sömuleiðis óvæntan sigur á Dallas Mavericks með þriggja stiga körfu í lokin og Phoenix lá fyrir New Orleans á heimavelli sínum. Sport 13. desember 2005 12:45
Van Gundy segir af sér Samkvæmt heimildum frá ESPN í Bandaríkjunum hefur Stan Van Gundy, þjálfari Miami Heat, sagt starfi sínu lausu hjá félaginu og er hættur. Búist er við að formleg tilkynning frá félaginu berist síðar í kvöld, en þetta leiðir líkum að því að forseti félagsins, Pat Riley, ætli sjálfur að setjast í þjálfarastólinn og taka við liðinu en hann gerði LA Lakers að meisturum oftar en einu sinni á sínum tíma. Sport 12. desember 2005 14:46
Sjötti sigur Detroit í röð Detroit Pistons heldur fast í toppsætið í NBA deildinni í körfubolta og í nótt vann liðið góðan útisigur á spútnikliði LA Clippers, þrátt fyrir stórleik frá Elton Brand. Shaquille O´Neal sneri aftur úr meiðslum hjá Miami Heat og hjálpaði liðinu að ná sigri gegn Washington í framlengingu. Sport 12. desember 2005 13:15
LeBron með 52 stig Það urðu heldur betur óvænt úrslit í NBA körfuboltanum í nótt þegar Atlanta Hawks unnu meistarana í San Antonio Spurs, 94-84 eftir sjö tapleiki í röð. Hinn tvítugi LeBron James gerði sér lítið fyrir og skoraði 52 stig fyrir Cleveland Cavaliers sem tapaði fyrir Milwaukee. Sport 11. desember 2005 13:13
Kominn með skjöld og byssu Krimmarnir í Miami mega gæta sín því lögreglan í Miami var að útskrifa stærsta lögregluþjón heimsins, Shaquille O"Neal. Shaq neitaði að sverja eiðinn með hinum lögreglumönnunum sem voru að útskrifast þar sem hann vildi ekki skyggja á stóra daginn þeirra. Sport 11. desember 2005 12:00
Hengir upp treyju númer 33 Chicago Bulls heiðraði framlag Scottie Pippens til félagsins þegar það ákvað að hengja treyju númer 33 upp í rjáfur og verður hún þar af leiðandi ekki notuð aftur. Treyjan var hengd upp í leikhléi á leik Bulls og Lakers og Pippen átti erfitt með að halda aftur af tárunum þegar hann ávarpaði áhorfendur. Sport 11. desember 2005 08:45
Iverson með 43 stig Allen Iverson skoraði 43 stig og Kyle Korver jafnaði presónulegt stigamet með 26 stigum fyrir Philadelphia 76ers í NBA körfuboltanum í nótt þegar liðið batt enda á fjögurra leikja samfellda ósigurgöngu sína með 119-115 sigri á Charlotte Bobcats. 10 leikir fóru fram í deildinni í nótt. Sport 10. desember 2005 14:01
Fékk leyfi vegna dauða bróður síns Bakvörðurinn Quentin Richardson hjá New York á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir, en hann hefur fengið tímabundið leyfi frá liðinu eftir að bróðir hans var myrtur í Chicago á dögunum. Bróðir hans, Lee Richardson, varð fyrir því óláni að verða á vegi miskunnarlausra ræningja sem hófu skothríð þegar þeir lögðu á flótta og lést Lee af skotsárum sínum. Árásarmennirnir náðust allir og hafa verið ákærðir. Sport 9. desember 2005 16:15
Indiana burstaði Washington Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Indiana Pacers burstaði Washington Wizards 111-87, en Indiana lék án Ron Artest sem er meiddur. Þá vann Houston Rockets góðan útisigur á Sacramento 106-95, en Sacramento hefur nú tapað 5 leikjum í röð. Sport 9. desember 2005 14:15
Auðveldur sigur San Antonio Fjórir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Meistarar San Antonio burstuðu Orlando á útivelli og unnu þar með fjórða leikinn í röð, en tap Orlando var hið fjórða í röð. Liðið var sem fyrr án Steve Francis, leikstjórnanda síns, og munar um minna. Sport 6. desember 2005 16:00
Sjötti sigur Phoenix í röð Endurkoma Joe Johnson til Phoenix með nýja liðinu sínu Atlanta varð ekki ferð til fjár því eins og búast mátti við vann Phoenix áreynslulítinn sigur 112-94. Phoenix leiddi lengst af með 30 stiga mun, en gat leyft varamönnunum að spreyta sig í lokaleikhlutanum, þar sem Atlanta náði að klóra aðeins í bakkann og láta lokatölurnar líta betur út á pappírunum. Sport 5. desember 2005 15:30