Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Guðrún Hafsteindóttir dómsmálaráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hafa boðað til upplýsingafundar um stefnu stjórnvalda í málefnum landamæra og landsáætlun um samþætta landamærastjórnun. Innlent 15. nóvember 2024 07:39
Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú líkamsárás þar sem grunur leikur á um að hópur einstaklinga hafi ráðist á tvo. Innlent 15. nóvember 2024 06:14
Konan er fundin Konan sem að lýst var eftir í dag hún Soffía Pétursdóttir, er fundin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi vestra. Innlent 14. nóvember 2024 20:16
Lýsa eftir konu með heilabilun Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur lýst eftir Soffíu Pétursdóttur. Hún er fædd árið 1941 og er með heilabilun en hún fór að heiman á Laugarbakka í Húnaþingi vestra í nótt eða í gærkvöldi. Innlent 14. nóvember 2024 13:21
Maðurinn sem lögregla lýsti eftir er fundinn Maðurinn sem lögregla á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld er fundinn heill á húfi. Innlent 13. nóvember 2024 22:59
Búast má við frekari vegalokunum þegar byrjar aftur að rigna Búið er að opna aftur vegi sem lokað var á norðanverðum Vestfjörðum í gær vegna aurskriða sem féllu, þrátt fyrir miklar skemmdir, og eins hefur Bíldudalsvegur verið opnaður að nýju. Óvissustig er enn í gildi og viðbragðsaðilar í viðbragðsstöðu. Búast má við úrkomu í kvöld og vegalokunum vegna þess. Innlent 13. nóvember 2024 12:06
Hafa opnað veginn um Eyrarhlíð á ný Búið er að opna veginn um Eyrarhlíð á nýjan leik. Vegurinn liggur á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur og var lokað fyrr í vikunni eftir að aurskriður féllu þar. Innlent 13. nóvember 2024 11:20
„Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Ragnar Jónsson, lögreglufulltrúi og blóðferlafræðingur, segir rannsókn á hvarfi og andláti Birnu Brjánsdóttur hafa tekið mikið á. Málið hafi haldið fyrir honum vöku í þrjá mánuði, og hann muni ekkert eftir fjölskylduferð sem hann fór í að rannsókninni lokinni. Innlent 12. nóvember 2024 22:13
Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Lögreglan á Vestfjörðum hafði í kvöld samband við íbúa í húsum ofarlega við Hjallaveg á Ísafirði og í einu húsi við Hnífsdalsveg. Íbúar húsanna eru beiðnir um að dvelja ekki í herbergjum þar sem gluggar snúa upp í hlíð Eyrarfjalls. Innlent 12. nóvember 2024 21:56
„Sænska ástandið“ orðið að norrænu Ekki er lengur hægt að tala um „sænska ástandið“ sem hefur verið notað til að lýsa brotaöldu í Svíþjóð á undanförnum árum. Þess í stað er réttara að tala um „norræna ástandið“, þar sem þróunin sé ógnvekjandi á öllum Norðurlöndum, samkvæmt formönnum lögreglufélaga þessara landa. Innlent 12. nóvember 2024 14:13
Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Kristján Markús Sívarsson hefur verið dæmdur í sextán mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og vörslu og vopna og fíkniefna. Konunni sem varð fyrir árásinni voru dæmdar 800 þúsund krónur í miskabætur en hún hlaut höfuðkúpubrot og mar á heila. Innlent 12. nóvember 2024 12:03
Fjórir handteknir í tengslum við rán Fjórir voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi eða nótt í tengslum við rán. Nokkrum var hins vegar sleppt eftir skamma stund en málið er í rannsókn. Innlent 12. nóvember 2024 06:11
Bíll festist eftir aurskriðu við Dýrafjarðargöng Vegurinn að gangamunna Dýrafjarðarganga lokaður vegna aurskriðu. Einn bíll var á ferðinni og festist í aurnum, en ökumaður sem var einn í bílnum slasaðist ekki. Innlent 11. nóvember 2024 21:31
Í gæsluvarðhald vegna alvarlegra ofbeldisbrota í Hafnarfirði Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í þágu rannsóknar á alvarlegum ofbeldisbrotum. Innlent 11. nóvember 2024 17:12
Ók á sjö kindur og drap þær Sjö kindur drápust um helgina á Suðurlandi þegar var ekið á þær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir að frá því á föstudag hafi verið skráð um 150 mál hjá embættinu. Innlent 11. nóvember 2024 15:07
Í sjálfheldu á eigin svölum Lögregla sinnti margs konar verkefnum í dag eins og aðra daga, þar á meðal björgun manns sem staddur var í sjálfheldu á eigin svölum í Hafnarfirði. Innlent 10. nóvember 2024 17:34
Maðurinn er fundinn Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í dag er fundinn. Innlent 10. nóvember 2024 16:22
Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Aðalvarðstjóri hefur áhyggjur af fjölgun tilvika þar sem ökumenn aka yfir á rauðu ljósi. Fleiri og fleiri ökumenn séu annars hugar í umferðinni og jafnvel að horfa á kvikmyndir í símanum á meðan þeir keyra. Innlent 9. nóvember 2024 22:52
Grunaður um sölu fíkniefna og brot á útlendingalögum Maður var handtekinn í dag í vesturhluta Reykjavíkur grunaður um sölu fíkniefna og brot á útlendingalögum. Innlent 9. nóvember 2024 18:01
Lögreglan bannaði bjór á B5 Samband ungra framsóknarmanna fékk ekki að bjóða upp á áfengi þegar kosningamiðstöð þeirra var opnuð við Bankastræti 5 í gær. Formaðurinn segir að einhverjir hafi verið súrir þegar þeir gátu eingöngu fengið óáfenga drykki á staðnum en þeir boða til nýrrar veislu í næstu viku. Innlent 9. nóvember 2024 15:37
Kallar eftir sams konar úrræði og Breivik og árásarmaður hennar sæta Ingunn Björnsdóttir, dósent við Óslóarháskóla og brotaþoli fólskulegrar hnífstunguárás í sama skóla, segir íslenskt réttarkerfi ráðþrota þegar kemur að alvarlegum ofbeldismálum. Sá sem stakk hana sætir svokölluðu „forvaring“, refsiúrræði í Noregi sem heimilar yfirvöldum að halda afbrotamönnum í vistun eftir afplánun fangelsisdóms. Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sætir sama úrræði. Innlent 9. nóvember 2024 11:19
Öryggis annarra vegna… Ég hef undanfarið rúmt ár fylgst af töluverðum áhuga með vaxandi fjölda manndrápsmála og manndrápstilrauna á Íslandi, og því hvernig íslenska dómskerfið virðist dálítið ráðþrota í slíkum málum. Skoðun 9. nóvember 2024 11:01
Tveir handteknir eftir hópslagsmál Tveir voru handteknir í gærkvöldi eða í nótt eftir hópslagsmál við skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Þeir voru í kjölfarið færðir á lögreglustöð þar sem þeir voru vistaðir í fangaklefa. Málið er í rannsókn. Innlent 9. nóvember 2024 07:36
Mansalsmál Gríska hússins: Vann sjö daga í viku hverri og svaf í kjallaranum Brotaþoli í mansalsmáli, sem lögregla hefur til rannsóknar og tengist veitingastaðnum Gríska húsinu, sagði í skýrslutöku að hann hafi verið látinn vinna sjö daga í hverri viku, stundum 30 daga í mánuði. Hann, ásamt öðrum manni, fannst sofandi á dýnu í kjallara hússins þegar lögregla réðist þar í húsleit. Innlent 8. nóvember 2024 23:53
„Enginn mótmælenda ógnaði lögreglumönnum eða réðist að þeim“ Fyrirtaka fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli níu einstaklinga sem krefjast miskabóta vegna framgöngu lögreglu á mótmælum þann 31. maí í Skuggasundi, við fund ríkisstjórnarinnar, vegna ástandsins á Gasa. Þar voru um 40 mótmælendur beittir piparúða. Þrír fóru á slysadeild og tveir fengu aðhlynningu sjúkraliða á vettvangi. Innlent 8. nóvember 2024 10:02
Einn fluttur á slysadeild vegna hópslagsmála Einn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir hópslagsmál í Breiðholti í Reykjavík í gærkvöldi eða í nótt. Innlent 8. nóvember 2024 06:24
Ekki vanhæfur til að rannsaka banaslysið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum var ekki vanhæfur til þess að fara með rannsókn banaslyss sem varð í Grindavík í janúar á þessu ári. Þetta er niðurstaða Ríkissaksóknara. Innlent 7. nóvember 2024 13:29
Lögreglan leitar vitna að tveggja bíla árekstri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir vitnum að tveggja bíla árekstri sem varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegs í Reykjavík fimmtudagskvöldið 24. október. Tilkynning um áreksturinn barst klukkan 19.42. Innlent 7. nóvember 2024 13:00
Ákærður fyrir hnefahögg á Lúx sem leiddi til dauða Íslendingur á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða litáísks karlmanns í skemmtistaðnum Lúx í Austurstræti í Reykjavík í júní í fyrra. Innlent 6. nóvember 2024 15:24
Skrifa skilaboð með báðum og stýra með hnéi Hildur Kristín Þorvarðardóttir lögreglukona segir að stór hluti umferðarslysa megi rekja til þess að ökumenn séu í símanum við akstur. Hún segir það orðið algengt að fólk sendi skilaboð undir stýri, skoði myndbönd og samfélagsmiðla. Mikill fjöldi viti að þetta sé hættulegt en geri það samt. Innlent 6. nóvember 2024 09:43