Burnout Revenge staðfestur Hefur þú einhverntíma setið fastur í umferðarteppu og fundið reiðina byggjast upp í takt við fjölda þeirra bíla sem eru í kringum þig? Electronic Arts mun gefa þér tækifæri í september til að fá útrás fyrir þessa reiði í Burnout Revenge. Leikjavísir 6. apríl 2005 00:01
Marilyn Manson með lag í Cold Fear Marilyn Manson hefur gefið tölvuleikjaframleiðandanum UbiSoft leyfi að nota lagið hans Use Your Fist and Not Your Mouth af plötunni The Golden Age Of Grotesque frá árinu 2003 í leikinn Cold Fear. Leikjavísir 6. apríl 2005 00:01
Doom í farsíma Doom leikirnir hafa verið brautryðjandi í gegnum tíðina fyrir skotleikjageirann en nú mun afbrigði af Doom sjást í farsímum í nánustu framtíð. Það sérstaka við þessa útgáfu er að leikurinn mun vera hlutverkaleikur gerður af einum höfunda Doom, John Carmack. Leikjavísir 6. apríl 2005 00:01
Halo 2 aukapakki á leiðinni Miklar vangaveltur hafa verið undanfarið um aukapakka fyrir hinn vinsæla Halo 2 fyrir Xbox leikjavélina eftir að upplýsingar birtust fyrst á heimasíðu Microsoft í Kóreu og svo á Ebgames.com sem birti upplýsingar og verð á pakkanum en tók svo upplýsingarnar af síðunni. Leikjavísir 6. apríl 2005 00:01
Guðfaðirinn á leiðinni í tölvurnar Electronic Arts hafa tilkynnt útgáfu á leik byggðum á meistaraverkinu Godfather. Leikurinn verður gefin út í haust fyrir PS2, Xbox, PC og PSP og mun innihalda raddir frá leikurunum James Caan, Robert Duvall og Marlon Brando sjálfur mun koma við sögu. Leikjavísir 6. apríl 2005 00:01
Sony sektað fyrir einkaleyfabrot Dómstóll í Kaliforníu hefur sett sölubann á Playstation-leiki og sektað framleiðandann Sony um 90 milljónir bandaríkjadala fyrir brot á einkaleyfalöggjöfinni. Sony hefur ákveðið að áfrýja að dómnum og á meðan er fyrirtækinu heimilt að selja tölvuleikina. Dómstóllinn féllst á rök tölvufyrirtækisins Immersion, sem stefndi Sony, að það ætti einkarétt á þeirri tækni sem veldur titringi í stjórnborði Playstation-leikjanna. Leikjavísir 28. mars 2005 00:01
Má ekki hafa Playstation2.is Samkeppnisráð hefur úrskurðað að Haukur Vagnsson, sem búsettur er í Þýskalandi, hafi með skráningu lénsins playstation2.is, brotið gegn ákvæðum samkeppnislaga. Því hefur Hauki verið bönnuð notkun lénsins og verður hann að afskrá það innan tveggja vikna frá birtingu ákvörðunarinnar. Leikjavísir 1. mars 2005 00:01
Ólögmæt lénsskráning Samkeppnisráð hefur úrskurðað að Haukur Vagnsson, sem búsettur er í Þýskalandi, hafi með skráningu lénsins playstation2.is, brotið gegn ákvæðum samkeppnislaga. Því hefur Hauki verið bönnuð notkun lénsins og verður hann að afskrá það innan tveggja vikna frá birtingu ákvörðunarinnar. Leikjavísir 28. febrúar 2005 00:01
José Carreras á Íslandi <strong><font color="#000000">José Carreras</font></strong> <a href="http://www.visir.is/?pageid=684"><strong><font color="#45579f">Skráðu frítt netfang - Þú gætir unnið miða</font></strong></a> Leikjavísir 23. febrúar 2005 00:01
Hagnaður Microsoft tvöfaldast Hagnaður Microsoft tvöfaldaðist á síðasta ársfjórðungi vegna aukinnar eftirspurnar og kostnaðaraðhalds samkvæmt greiningardeild Íslandsbanka. Hagnaðurinn nam 3,46 milljörðum dollara eða rúmum 215 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 28. janúar 2005 00:01
Samningur um aldursmerkingar á tölvuleikjum SMÁÍS (Samtök Myndrétthafa á Íslandi) og ISFE (Interactive Software Federation of Europe) hafa gert með sér samning, um að SMÁÍS verði aðili að PEGI, sem eru aldursmerkingar á tölvuleikjum. Allir nýir tölvuleikir verða merktir samkvæmt flokkunarkerfinu og er því ætlað að tryggja að ólögráða börn fari ekki í leiki sem eru ekki við hæfi þeirra aldurshóps. Leikjavísir 8. desember 2004 00:01
Simon og Garfunkel ná sögulegum sáttum: „Ég grét þegar hann sagði hversu mikið ég hefði sært hann“ Lífið