Segir Kúbu næsta á eftir Íran Bandaríkin beittu í gær Miguel Díaz-Canel, forseta Kúbu, refsiaðgerðum. Auk hans voru eiginkona hans og þrír aðrir einnig beittir refsiaðgerðum en Bandaríkjamenn hafa sett verulegan þrýsting á nágranna sína og hefur Donald Trump hótað hernaðaraðgerðum gegn eyríkinu. Erlent 5.6.2026 07:51
Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Hezbollah-samtökin harðneituðu að samið yrði um vopnahlé án þess að Ísraelar hörfuðu alfarið úr Líbanon. Í harðorðri yfirlýsingu sagði leiðtogi samtakanna að viðræðurnar hefðu verið gagnslausar og niðurlæging fyrir Líbanon. Erlent 4.6.2026 17:09
Orkumarkaðir draga úr áhrifum áfallsins vegna lokunar Hormússunds Eldsneytisframboð heimsins er mun fjölbreyttara en það var í orkukreppum áttunda áratugarins og hefur því aukið viðnámsþrótt heimshagkerfisins. Umræðan 4.6.2026 15:02
Af hverju Íran óttast að samningur geti orðið upptaktur að nýjum átökum síðar Umræðan 31.5.2026 15:10
Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Samningamenn Bandaríkjanna og Írans eru sagðir hafa samþykkt frumdrög að samkomulagi sem myndi framlengja vopnahlé þeirra á milli um sextíu daga og hefja samningaviðræður um framtíð kjarnorkuáætlunar Írans. Donald Trump Bandaríkjaforseti á enn eftir að samþykkja samkomulagið en hann er sagður deila samningsdrögum með bandamönnum sínum. Erlent 28. maí 2026 23:02
Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Bandaríkjamenn gerðu frekari árásir á Íran í nótt, sem var svarað með árásum Írana á herstöð Bandaríkjanna í Kúvæt. Yfirvöld vestanhafs segja að um varnaraðgerðir hafi verið að ræða. Erlent 28. maí 2026 06:45
Ósáttur við skilyrðin Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst enn ósáttur við þau samningsskilyrði sem Íranir og Bandaríkjamenn semja nú um. Íranskir ríkismiðlar hafa greint frá meintum samningsdrögum en Hvíta húsið kallar þau hreinan uppspuna. Erlent 27. maí 2026 23:10
Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Mánaðarkort í almenningssamgöngur verður tímabundið helmingi ódýrara en áður um alla Svíþjóð með aðgerð sem sænska ríkisstjórnin kynnti í dag. Tilefnið er hækkandi olíuverð vegna hernaðarbrölts Bandaríkjamanna og Ísraela í Íran. Erlent 26. maí 2026 13:21
Íranska liðið spilar í Bandaríkjunum en þarf að gista í Mexíkó Íranska fótboltalandsliðinu verður ekki leyft að dvelja í Bandaríkjunum á meðan heimsmeistaramótinu stendur, þrátt fyrir að liðið eigi að spila þar þrjá leiki. Íranar munu gista í Mexíkó og ferðast milli staða á leikdögum. Fótbolti 26. maí 2026 08:29
Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Bandaríkjaher gerði árásir í suðurhluta Íran í dag sem beindust að eldflaugaskotstöðvum og írönskum bátum. Þetta hefur BBC og Fox News eftir miðlægri stjórnstöð hersins. Árásirnar hafi verið hluti af „sjálfsvörn“ til að „vernda hermenn okkar gegn þeirri ógn sem stafaði af írönskum herafla“. Erlent 25. maí 2026 23:57
Trump vill ekki flýta sér Bandarísk stjórnvöld eru nálægt því að ná samkomulagi við Íran sem myndi binda enda á stríðið, opna Hormússund á ný og fela í sér að Íranir losi sig við birgðir af auðguðu úrani. Þetta hefur AP-fréttaveitan eftir embættismönnum í Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beint þeim tilmælum til erindreka sinna að flýta sér ekki að gera samning. Erlent 24. maí 2026 23:57
Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í færslu á samfélagsmiðlum að samkomulag um að binda enda á átökin í Miðausturlöndum lægi að mestu fyrir. Meðal ákvæða þess væri að opnað yrði fyrir umferð um Hormússund. Þessu hafna írönsk stjórnvöld alfarið. Erlent 23. maí 2026 22:23
Mjakist nær samkomulagi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjamenn og Írana „færast mun nær“ samkomulagi um að binda enda á stríðið í Miðausturlöndum. Báðir aðilar eru varkárir í yfirlýsingum en teikn um árangur hafa einnig borist frá Teheran. Erlent 23. maí 2026 19:08
Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Dregið gæti til tíðinda í friðarviðræðum Bandaríkjamanna og Írans á næstu klukkustundum eða næstu dögum, að sögn utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Pakistanskir milligöngumenn segja að árangur hafi náðst í samræðum sínum við Írana í dag. Innlent 23. maí 2026 15:13
Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Stjórnvöld í Íran og Oman hafa rætt saman um að taka upp kerfi þar sem rukkað yrði fyrir skipaumferð um Hormuz-sund. Viðræðurnar eru ekki síst athyglisverðar í ljósi þess að Oman er bandamaður Bandaríkjanna og Bandaríkjastjórn hefur varað við hugmyndum um gjaldtöku á sundinu. Erlent 22. maí 2026 11:35
Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ísrael hugðust koma fyrrverandi forseta Íran, Mahmoud Ahmadinejad, aftur til valda þegar þeir hófu árásir á landið. Ísraelsmenn lögðu á ráðin um árás á heimili Ahmadinejad í Tehran, þar sem hann sætti stofufangelsi, til að frelsa forsetann fyrrverandi. Ahmadinejad, sem særðist í árásinni, ku hafa vitað af áætluninni en snúist hugur þegar hann var frjáls. Ekki er vitað hvar hann er niðurkominn. Erlent 20. maí 2026 10:23
Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Ekki hafa verið fleiri aftökur í heiminum í 44 ár, eða frá árinu 1981. Á síðasta ári voru 2.707 einstaklingar teknir af lífi í sautján löndum. Þetta kemur fram í nýútkominni árlegri skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar. Erlent 18. maí 2026 07:58
„Annars verður ekkert eftir af þeim“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir varar við því að „ekkert verði eftir“ af Írönum ef þeir hafa ekki fljótar hendur við í friðarviðræðum. Viðræður milli Írana og Bandaríkjamanna dregist verulega á langinn og líkur eru á því að stríð brjótist aftur út. Erlent 17. maí 2026 22:35
Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Á sama tíma og evrópsk flugfélög tilkynntu um samdrátt í flugáætlunum þeirra vegna stórhækkaðs eldsneytisverðs fjölgaði einkaþotuferðum í síðasta mánuði. Einaþotuútgerðir láta gagnrýni sér sem vind um eyru þjóta. Viðskipti erlent 13. maí 2026 11:39
Hafa gert leynilegar árásir í Íran Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa gert leynilegar árásir á skotmörk í Íran. Sérfræðingar hafa lengi velt vöngum yfir slíkum árásum en þær eru meðal annars sagðar hafa beinst gegn olíuvinnsluinnviðum og vatnseymingarstöð. Erlent 12. maí 2026 11:25
Skák og mát í Íran Bandaríkin geta hvorki snúið við né stjórnað afleiðingunum af því að tapa þessu stríði við Íran. Umræðan 11. maí 2026 17:47
Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir vopnahléið gegn Íran hanga á bláþræði. Það er eftir að hann lýsti yfir miklum vonbrigðum með svör klerkastjórnarinnar í Íran við tillögum að mögulegum friði. Erlent 11. maí 2026 16:07
Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum Tillögur Írana um forsendur fyrir viðræðum um varanlegan frið eru sagðar fela í sér afléttingu hafnbanns Bandaríkjanna á Hormuz-sundi, afléttingu allra refsiagerða gegn Íran og tryggingu fyrir því að ekki verði gerðar frekari árásir á landið. Þá segir Wall Street Journal tillögurnar fela í sér skammvinnra bann gegn auðgun úrans en Bandaríkjamenn höfðu lagt til og útflutning aðeins hluta birgða Írana af auðguðu úrani. Erlent 11. maí 2026 07:01
„Gjörsamlega óásættanlegt“ Svör bárust frá írönskum stjórnvöldum í dag við friðartillögum Bandaríkjamanna. Lítið er vitað um innihald þeirra en Donald Trump Bandaríkjaforseti segir þau vera óboðleg. Erlent 10. maí 2026 21:29
Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Donald Trump Bandaríkjaforseti segir vopnahlé enn í gildi milli Bandaríkjanna og Íran, þrátt fyrir að komið hafi til átaka á Hormuz-sundi í gær. Erlent 8. maí 2026 06:55