Játar og gæti borið vitni gegn Trump Lögmaðurinn Sydney Powell, sem tók virkan þátt í tilraunum Donalds Trump, fyrrverandi forseta, við að reyna að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020, hefur gengist við brotum sínum í Georgíu. Hún hefur gert samkomulag um að bera vitni gegn öðrum sakborningum, þeirra á meðal Trump, og var dæmd á sex ára skilorð. Erlent 19. október 2023 15:29
Ver fúlgum fjár í lögmenn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, halar inn peningum frá stuðningsmönnum sínum en ver stórum hluta peninganna í lögfræðingakostnað. Á sama tíma aflar hann fjár á grundvelli dómsmála gegn honum. Erlent 18. október 2023 08:14
Bein útsending: Jordan gerir atrennu að embætti þingforseta Þingmenn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings greiða í dag atkvæði um hvort Jim Jorda, Repúblikani, verði næsti forseti fulltrúadeildarinnar. Útlit er fyrir að Jordan hafi ekki tekist að tryggja sér nægilega mörg atkvæði úr eigin þingflokki. Erlent 17. október 2023 15:01
Scalise dregur framboð sitt til baka eftir inngrip Trump Þingmaðurinn Steve Scalise frá Louisiana hefur dregið sig út úr kosningum um næsta forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, eftir að honum mistókst að afla sér stuðnings harðlínu Repúblikana. Erlent 13. október 2023 07:21
Ræddi ríkisleyndarmál við ástralskan auðjöfur Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er talinn hafa sagt áströlskum auðjöfri ríkisleyndarmál um bandaríska kjarnorkukafbáta og kjarnorkuvopn. Þetta er Trump sagður hafa gert á viðburði í Mar-a-Lago, heimili og sveitaklúbbi hans, eftir að hann flutti úr Hvíta húsinu. Erlent 6. október 2023 09:11
Dómari bannar Trump að tjá sig opinberlega um starfsmenn dómsins Dómari í New York hefur skipað Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, að tjá sig ekki um starfsmenn dómstólsins eftir að Trump birti færslu á Truth Social þar sem hann gerði lítið úr einum þeirra. Erlent 4. október 2023 07:11
Staðfestir niðrandi ummæli Trumps um hermenn John Kelly, fyrrverandi starfsmanna stjóri Hvíta húss Donalds Trump, gagnrýndi forsetann fyrrverandi harðlega í ummælum sem opinberuð voru í gær. Kelly staðfesti nokkur af umdeildum ummælum Trumps um særða og handsamaða hermenn. Erlent 3. október 2023 11:47
Hafi hagnast um hundrað milljónir dala á haugalygi Saksóknari í New York í Bandaríkjunum sagði við upphaf réttarhalda yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, að hann hefði hagnast um ríflega hundrað milljónir Bandaríkjadala með því að ljúga til um verðmæti eignasafns síns. Erlent 2. október 2023 21:54
Lítið nýtt á „hörmulegum“ fundi um Biden Repúblikanar héldu í gær fyrsta nefndarfundinn um rannsókn þeirra á Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, varðandi mögulega ákæru fyrir embættisbrot. Fundurinn stóð yfir í rúma sex tíma en ekkert nýtt kom fram sem gaf til kynna að Biden hefði brotið af sér í starfi eða væri sekur um spillingu. Erlent 29. september 2023 11:04
Biden segir Trump og stuðningsmenn hans beina ógn við lýðræðið Joe Biden Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin standa á krossgötum og að MAGA-hreyfing Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sé bein ógn við lýðræði landsins. Erlent 29. september 2023 08:06
DeSantis og Christie gagnrýndu Trump fyrir að vera fjarri góðu gamni Sjö frambjóðendur í forvali Repúblikana fyrir forsetakosningarnar á næsta ári mættust í kappræðum í gærkvöldi. Donald Trump var ekki þeirra á meðal og var gagnrýndur fyrir að taka ekki þátt. Erlent 28. september 2023 06:43
Trump fundinn sekur um að ljúga til um ríkidæmi sitt Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti laug til um ríkidæmi sitt í fjölmörgum tilvikum og plataði þannig banka og tryggingafyrirtæki á löngu tímabili, eða frá árinu 2011 til 2021. Erlent 27. september 2023 07:17
McCarthy enn í gíslingu uppreisnarmanna Fulltrúadeild Bandaríkjaþings er enn lömuð vegna uppreisnar hóps fjar-hægri þingmanna Repúblikanaflokksins. Einungis fimm dagar eru í að stöðva þarf rekstur ríkisins, finnist ekki samkomulag um fjárlagafrumvarp. Erlent 26. september 2023 10:04
Trump og Stern í hár saman Donald Trump og útvarpsmaðurinn Howard Stern eru komnir í hár saman ef marka má færslu forsetans fyrrverandi á samfélagsmiðlinum Truth Social. Trump segir Stern furðufugl sem sé orðinn „woke“. Erlent 23. september 2023 19:44
Nettröll sögðu Trump látinn á X-reikningi sonar hans Óprúttnir aðilar hökkuðu sig inn á reikning Donald Trump yngri á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, í dag og birtu vafasamar færslur, eina þess efnis að forsetaframbjóðandinn og fyrrverandi forsetinn væri látinn. Erlent 20. september 2023 22:05
Repúblikanar herða tökin í mikilvægum ríkjum Repúblikanar í Wisconsin og Norður-Karólínu í Bandaríkjunum vilja breyta því hvernig kosningum er stjórnað í ríkjunum. Bæði ríkin eru svokölluð sveifluríki og þykja því gífurlega mikilvæg þegar kemur að forsetakosningunum á næsta ári. Erlent 18. september 2023 11:54
Hefja formlega rannsókn á Biden Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, tilkynnti í dag að opnuð yrði formleg rannsókn sem beinist að Joe Biden, forseta, og ætlað væri að kanna hvort tilefni væri til að ákæra hann fyrir embættisbrot. Rannsóknin á að beinast að viðskiptaumsvifum fjölskyldu Bidens. Erlent 12. september 2023 20:17
Vill að dómarinn stígi til hliðar Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hafa lagt fram kröfu um að dómarinn Tanya Chutkan stígi til hliðar. Það á hún að gera á þeim grundvelli að hún hafi sýnt fram á óhlutlægni í garð Trumps. Erlent 11. september 2023 22:53
Samskip, bandarískar forsetakosningar og samgöngusáttmáli Fyrsti gestur Kristján Kristjánssonar á Sprengisandi í dag verður Hörður Felix Harðarson, sem hefur verið lögmaður Samskipa frá upphafi. Forsvarsmenn fyrirtækisins halda því fram fullum fetum að Samkeppniseftirlitið sé á villigötum í mörg þúsund blaðsíðna greinargerð um samkeppnisbrot fyrirtækisins. Innlent 10. september 2023 09:40
Lögðu einnig til að ákæra Lindsay Graham og fleiri Meðlimir svokallaðs ákærudómstóls í Georgíu í Bandaríkjunum lögðu til að töluvert fleiri yrðu ákærðir með Donald Trump fyrir að reyna að breyta úrslitum forsetakosninganna 2020 í ríkinu. Trump og átján aðrir hafa verið ákærðir en einnig var lagt til að Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður, Kelly Loeffler og David Perdu, fyrrverandi öldungadeildarþingmenn, og Micheal Flynn, þjóðaröryggisráðgjafi Trumps, yrðu ákærð vegna málsins. Erlent 8. september 2023 16:49
Ráðgjafi Trump dæmdur fyrir að óhlýðnast þinginu Fyrrverandi viðskiptaráðgjafi Donalds Trump frá því að hann var Bandaríkjaforseti var fundinn sekur um að óhlýðnast Bandaríkjaþingi fyrir að neita að verða við stefnu í tengslum við rannsókn á árás stuðningsmanna Trump á þinghúsið. Hann bar fyrir sig trúnað við Trump. Erlent 8. september 2023 08:38
Freista þess að tryggja að nafn Trump rati ekki á kjörseðla Sex kjósendur í Colorado í Bandaríkjunum hafa höfðað mál til að freista þess að koma í veg fyrir að nafn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og núverandi forsetaframbjóðanda, nái inn á atkvæðaseðilinn í ríkinu fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Erlent 7. september 2023 09:12
Trump og lýðræðisleg hnignun Bandaríkin eru án efa valdamesta ríki jarðar. Sumir kunna að halda því fram að ekki aðeins vegna pólitískra, efnahagslegra og hernaðarlegra áhrifa sinna, heldur einnig alþjóðlegra áhrifa sinna sem leiðarljóss stjórnarskrárbundins lýðræðis. Skoðun 1. september 2023 10:01
Sýnt frá réttarhöldunum í beinni í sjónvarpi og á YouTube Dómari í Bandaríkjunum hefur ákveðið að sýnt verður beint frá réttarhöldunum yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og þeim átján til viðbótar sem hafa verið ákærðir fyrir að reyna að hafa áhrif á niðurstöður forsetakosninganna í Georgíu árið 2020. Erlent 1. september 2023 06:58
„Þessi yfirlýsing er virðislaus“ Letitia James, ríkissaksóknari New York-ríkis, hefur beðið dómara um að kanna hvort Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi ofmetið háhýsi sín, golfvelli og aðra eignir í ríkinu um meira en tvo milljarða dala. James hefur sakað Trump og börn hans um umfangsmikil fjársvik. Erlent 31. ágúst 2023 15:13
Giuliani ábyrgur fyrir meiðyrðum í garð kosningastarfsmanna Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum úrskurðaði að Rudy Giuliani, fyrrverandi persónulegur lögmaður Donalds Trump, hefði gefið meiðyrðamál tveggja kosningastarfsmanna í Georgíu á hendur honum. Starfsmennirnir sættu líflátshótunum eftir að Giuliani og fleiri sökuðu þær ranglega um svik. Erlent 30. ágúst 2023 15:49
„Almenningur á rétt á að þetta mál sé tekið fyrir hratt og örugglega“ Réttarhöldin í máli sérstaks saksóknara dómsmálaráðuneytisins gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, munu hefjast þann 4. mars á næsta ári. Þetta er eitt af fjórum dómsmálum gegn Trump og tveimur sem Jack Smith, áðurnefndur saksóknari, hefur höfðað gegn honum. Erlent 28. ágúst 2023 16:06
Græddi tæpan milljarð á fangamyndinni Myndin sem tekin var af Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, þegar hann gaf sig fram í Fulton sýslu á fimmtudag, hefur með varningssölu skilað 7,1 milljón Bandaríkjadala í kosningasjóð Trump. Erlent 27. ágúst 2023 13:39
Óvíst að upplýsingar um þyngd og hæð séu réttar Óvíst er að upplýsingar um þyngd og hæð Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem skráðar voru þegar hann gaf sig fram í fangelsinu í Fulton-sýslu í Atlanta í gær séu réttar, að því er fram kemur í umfjöllun Washington Post. Erlent 25. ágúst 2023 10:39
Trump handtekinn í tugthúsinu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið formlega handtekinn í Fulton-sýslu í Atlanta í Bandaríkjunum. Þar hefur hann og átján bandamenn hans verið ákærðir vegna tilrauna þeirra til að snúa niðurstöðum forsetakosninganna í ríkinu árið 2020. Erlent 25. ágúst 2023 00:02
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent