„Atlantshafsbandalagið er dautt“ Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti og núverandi forsetaframbjóðandi, er sagður hafa sagt við Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, að Atlantshafsbandalagið væri „dautt“. Erlent 11. janúar 2024 06:45
Andrés, Clinton og Trump nefndir til sögunnar í Epstein-skjölunum Andrés Bretaprins og Bill Clinton og Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforsetar, eru meðal þeirra sem eru nefndir í dómsskjölum í tengslum við athafna- og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Erlent 4. janúar 2024 06:44
Þrýst á hæstarétt vegna kjörgengis Trumps Maine varð í gær annað ríki Bandaríkjanna þar sem Donald Trump, fyrrverandi forseta, var meinað að vera á kjörseðlum í nóvember á næsta ári. Hæstiréttur Colorado hafði áður komist að sömu niðurstöðu þar og hafa lögsóknir, sem ætlað er að koma í veg fyrir kjörgengi Trumps, verið höfðaðar í á annan tug ríkja til viðbótar. Erlent 29. desember 2023 16:00
Trump ekki kjörgengur í Maine Innanríkisráðherra Maine í Bandaríkjunum, sem meðal annars hefur umsjón með framkvæmd kosninga í ríkinu, hefur ákveðið að Donald Trump sé ekki kjörgengur vegna framgöngu hans þegar ráðist var inn í þinghúsið í Washington árið 2021. Erlent 29. desember 2023 06:51
Segist hafa verið grátbeðinn um að vera með Donald Trump hafnar fullyrðingum leikstjórans Chris Columbus um að hann hafi beitt tuddabrögðum til þess að birtast í örstutta stund í jólamyndinni Home Alone 2: Lost in New York. Lífið 28. desember 2023 16:04
Umdeild þingkona skiptir um kjördæmi Lauren Boebert, umdeild þingkona Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur lýst því yfir að hún ætli að bjóða sig fram í öðru kjördæmi á næsta ári. Andstæðingur hennar í hennar núverandi kjördæmi, Demókratinn Adam Frisch, hefur safnað mun meira fé en hún hingað til. Erlent 28. desember 2023 09:53
Columbus segir Trump hafa heimtað hlutverkið í Home Alone Chris Columbus, leikstjóri fyrstu tveggja Home Alone bíómyndanna, segir Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem fór með aukahlutverk í myndinni, hafa heimtað að fá að koma fram í myndinni gegn því að tekið yrði upp á Plaza hótelinu, sem var þá í hans eigu. Lífið 25. desember 2023 16:56
Hæstiréttur neitar að flýta máli Trumps Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur neitað beiðni Jack Smith, sérstaks rannsakanda dómsmálaráðuneytisins, um flýtimeðferð varðandi það hvort Donald Trump, fyrrverandi forseti, njóti enn þeirrar friðhelgi frá lögsóknum sem fylgir forsetaembættinu. Um sigur fyrir Trump er að ræða. Erlent 23. desember 2023 14:01
Giuliani sækir um gjaldþrotaskipti Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York og fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trump, hefur farið fram á gjaldþrotaskipti. Það gerði hann í New York í vikunni og tíundaði hann skuldir eins og mikinn lögfræðikostnað, ógreidda skatta og 148 milljónir dala, sem hann var nýlega dæmdur til að greiða mæðgum í skaðabætur. Erlent 22. desember 2023 10:14
Má ekki vera á kjörseðlinum í Colorado Hæstiréttur Colorado ríkis hefur fjarlægt Donald Trump af kjörseðli ríkisins í aðdraganda forsetakosninganna og vísar til framgöngu forsetans eftir síðustu forsetakosningar. Erlent 20. desember 2023 00:31
Krefjast þess að Thomas komi ekki að máli Trumps Sífellt fleiri þingmenn Demókrataflokksins krefjast þess að hæstaréttardómarinn Clarence Thomas komi ekki að úrskurði Hæstaréttar varðandi mögulega friðhelgi Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Er það vegna þess að eiginkona Thomas tók þátt í tilraunum Trumps til að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020. Erlent 18. desember 2023 16:50
Greiði mæðgunum ríflega tuttugu milljarða Rudy Giuliani, fyrrverandi persónulegur lögmaður Donalds Trump og borgarstjóri New York borgar, hefur verið dæmdur til að greiða mæðgum, sem hann rægði með ásökunum um kosningasvindl, 148 milljónir dala. Það gerir ríflega tuttugu milljarða króna. Erlent 16. desember 2023 08:45
Leynileg Rússamappa hvarf á síðustu dögum Trumps í Hvíta húsinu Mappa sem innihélt leynileg skjöl og gögn um afskipti Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016, hvarf á síðustu dögum forsetatíðar Donalds Trump, og hefur ekki fundist enn það dag í dag. Forsvarsmenn leyniþjónusta Bandaríkjanna óttast að sum af best varðveittu leyndarmálum Bandaríkjanna og bandamanna þeirra geti verið opinberuð. Erlent 15. desember 2023 17:05
Segist aðeins myndu verða einræðisherra fyrsta daginn í Hvíta húsinu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, neitaði því ekki á kosningafundi í gær að hann myndi nota vald sitt til að ná fram hefndum kæmist hann aftur í Hvíta húsið. Erlent 6. desember 2023 06:41
Saka Trump um að hafa æst fólk til ofbeldis Saksóknarar á vegum Jack Smith, sérstaks rannsakanda dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, segja Donald Trump, fyrrverandi forseta, hafa ítrekað logið um úrslit kosninganna 2020 og æst stuðningsmenn sína til ofbeldis. Erlent 5. desember 2023 23:00
Vilja auka lögmæti rannsóknarinnar á Biden Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings íhuga að halda formlega atkvæðagreiðslu í næsta mánuði um rannsókn á meintum embættisbrotum Joe Biden, forseta Bandaríkjanna. Með því eru þeir sagðir vilja festa rannsóknir þeirra á forsetanum og fjölskyldu hans í sessi og gefa henni meira lögmæti. Erlent 1. desember 2023 08:01
Sebastian Stan mun leika Donald Trump Bandaríski leikarinn Sebastian Stan mun fara með hlutverk Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í væntanlegri ævisögumynd um milljarðamæringinn. Myndin mun bera heitið The Apprentice, í höfuðið á raunveruleikaþáttum forsetans fyrrverandi. Lífið 30. nóvember 2023 11:10
Ásökunum gegn frægum rigndi inn á lokametrunum Undanfarna daga hefur fjöldi frægra Bandaríkjamanna verið sakaðir um fyrir kynferðisbrot. Í gær var greint frá slíkum ásökunum á hendur borgarstjóra New York-borgar Eric Adams, og í dag er greint frá meintum brotum rapparans Sean „Diddy“ Combs. Erlent 24. nóvember 2023 15:31
„Hinn klikkaði“ tantra-sérfræðingur nýr forseti Argentínu Javier Milei, nýr forseti Argentínu, hefur heitið umfangsmiklum breytingum á ríkinu eftir kosningabaráttu sem hefur einkennst af miklum öfgum og heift. Forsetinn nýi hefur heitið því að grípa hratt til umfangsmikilla aðgerða. Erlent 20. nóvember 2023 13:35
Segir orðræðu og stefnu Trump enduróma ris nasismans „Orðræðan sem notuð er af Trump og sumum MAGA-öfgahyggjumönnum er orðræða sem var notuð upp úr 1930 í Þýskalandi og ég hef verulegar áhyggjur af stefnu landsins ef stefna á borð við þá sem Donald Trump talar fyrir verður ofan á.“ Erlent 20. nóvember 2023 08:33
Systir Donald Trump er látin Maryanne Trump Barry, elsta systir Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, er látin, 86 ára að aldri. Hún hafði verið á líknardeild síðustu vikur lífs síns vegna krabbameins. Erlent 14. nóvember 2023 04:04
Jill Stein gerir aðra atlögu að Hvíta húsinu Jill Stein tilkynnti í kvöld að hún ætlaði aftur að bjóða sig fram til embættis forseta Bandaríkjanna og aftur fyrir Græningja. Hún bauð sig einnig fram árið 2016 og hefur verið sökuð um það að hafa kostað Demókrata Hvíta húsið og tryggt Donald Trump embættið. Erlent 9. nóvember 2023 22:05
„Þetta er ekki kosningafundur“ Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, skammaðist yfir því að illa væri komið fram við hann og að pólitískir andstæðingar hans væru að nota dómskerfið gegn honum. Dómarinn skammaði Trump og sagði að hann væri ekki á kosningafundi heldur í dómsal. Erlent 6. nóvember 2023 18:13
Trump með forskot á Biden í fimm af sex lykilríkjum Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er með forskot á Joe Biden Bandaríkjaforseta í fimm af sex lykilríkjum í aðdraganda forsetakosninganna á næsta ári, ef marka má skoðanakönnun New York Times og Siena College. Erlent 6. nóvember 2023 07:20
Trump klikkar meira og gæti misst eitt sitt besta vopn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, og stuðningsmenn hans gera iðulega grín að háum aldri Joe Biden, núverandi forseta og forsetaframbjóðanda. Trump er þó einungis þremur árum yngri en Biden og gerir sjálfur reglulega mistök. Erlent 31. október 2023 14:30
Mike Pence hættur við forsetaframboðið Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, er hættur við framboð sitt til forseta Bandaríkjanna í kosningunum sem fram fara á næsta ári. Honum hefur gengið illa að afla fylgis og fjárbirgðir framboðsins minnka stöðugt. Erlent 28. október 2023 18:46
Hefur lengi barist gegn réttindum „ónáttúrulegs“ hinsegin fólks Mike Johnson, nýr forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, mun koma að því að staðfesta úrslit forsetakosninga sem haldnar verða í nóvember á næsta ári. Það er þrátt fyrir að hann hafi hjálpað til við að reyna að snúa úrslitum síðustu forsetakosninga. Erlent 27. október 2023 11:15
Trump aftur sektaður fyrir að brjóta gegn fyrirmælum dómarans Dómari í New York hefur sektað Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, um 10.000 dollara fyrir að brjóta gegn fyrirmælum hans um að tjá sig ekki opinberlega um starfsmenn réttarins. Erlent 26. október 2023 08:24
Tilnefndu tvo á einungis tíu tímum Þingflokkur Repúblikanaflokksins hefur á einungis tíu klukkustundum tilnefnt tvo menn til embættis þingforseta fulltrúadeildarinnar. Tom Emmer var kjörinn úr hópi níu frambjóðenda í gær en hann hætti við framboðið eftir að Donald Trump, fyrrverandi forseti og væntanlegur forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, gagnrýndi hann opinberlega. Erlent 25. október 2023 12:00
Dómari hótar að fangelsa Trump Dómari í New York hefur hótað því að fangelsa Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, vegna færslu um aðstoðarmann dómarans á samfélagsmiðlum. Færslan er brot á skipun dómarans um að Trump mætti ekki tjá sig opinberlega um starfsmenn dómsins. Erlent 20. október 2023 16:27
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent