„Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ „Þetta er sennilega dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum, sem er merkilegt í ljósi þess að þessar þjóðir hafa sjaldan mæst og hafa ekki leikið landsleik núna í rúm tuttugu ár,“ segir Stefán Pálsson, sagnfræðingur og fótboltaáhugamaður, um undanúrslitaviðureign Englands og Argentínu sem fram fer í kvöld. Fótbolti 15.7.2026 14:45
„Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, var snöggur að skjóta niður pólitískar spurningar er tengjast deilum ríkis hans við Breta um Falklandseyjar. Utanríkisráðherra ríkisins hafði nýtt tækifærið og ýft upp gömul sár í vikunni. Fótbolti 15.7.2026 11:00
Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Á miðvikudagskvöldið mætast England og Argentína í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu en Pablo Quirno utanríkisráðherra Argentínu stakk niður penna við tilefnið og minnti á að deilunni um Falklandseyjar er hvergi nærri lokið af þeirra hálfu. Erlent 13.7.2026 14:40
Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Gervigreindin býður upp á ýmislegt, meðal annars að fá dáið fólk til að leika í auglýsingum. Fótbolti 20. júní 2026 09:33
Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Meðal stuðningsmanna argentínska fótboltalandsliðsins á heimsmeistaramótinu í ár verða þrír aðdáendur liðsins sem hafa sjálfir unnið mikið íþróttaafrek. Fótbolti 5. júní 2026 13:32
Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Frönsk kona sem var um borð í hollenska skemmtiferðaskipinu Hondius er sögð lífshættulega veik og í gervilunga á sjúkrahúsi í París. Ellefu manns eru taldir hafa smitast í hópsýkingunni til þessa. Erlent 13. maí 2026 07:42
Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Yfirvöld í ferðamannabænum Ushuaia á syðsta odda Suður-Ameríku þræta fyrir að hópsýking hantaveiru eigi upptök sín í borginni. Argentínskir sérfræðingar telja mögulegt að veiran hafi borist í ferðamenn á vinsælum fuglaskoðunarstað í Ushuaia. Erlent 11. maí 2026 07:38
Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Uppgjafarhermaður sem særðist alvarlega í Falklandseyjastríðinu árið 1982 vonar að Karli Bretakonungi takist að lægja öldurnar í opinberri heimsókn sinni til Bandaríkjanna. Lekinn tölvupóstur úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna lagði til að endurmeta viðurkenningu á tilkalli Breta til eyjanna. Erlent 25. apríl 2026 18:43
Messi er ekki enn búinn að ákveða sig Argentínska goðsögnin Lionel Messi hefur enn ekki tekið ákvörðun um það hvort hann muni spila á HM í fótbolta í sumar þrátt fyrir að það sé aðeins 81 dagur þar til Argentína byrjar titilvörn sína. Fótbolti 27. mars 2026 22:48
Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín Iðnaðarteknósveitin Hatari hefur hætt við tónleikaferðalag sitt um Evrópu í febrúar án nokkurrar skýringar. Í síðustu viku hætti rokkhljómsveitin The Vintage Caravan við tónleikaferðalag sitt vegna andlegrar þreytu. Tónlist 22. janúar 2026 15:30
Draumur að skipuleggja kvennaverkfall í Þýskalandi Konur í Þýskalandi, Austurríki og Sviss skipuleggja nú kvennaverkfall að fyrirmynd þess íslenska. Margrét Rún Guðmundsdóttir, kosningastýra Kvennalistans þáverandi og kvikmyndagerðarkona, er heiðurforseti skipulagsteymisins í Þýsklandi. Adrienne Goehler, ein skipuleggjenda, segir markmið skipuleggjenda að alheimsverkfall fari fram þann 9. mars. Hún segir þegar skipulagshópa víða um heim og auglýsir eftir einum á Íslandi. Innlent 12. janúar 2026 06:30
Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Aukinn meirihluti aðildarríkja Evrópusambandsins samþykkti fríverslunarsamning við fimm suðuramerísk ríki sem mynda fríverslunarbandalagið Mercosur. Verði samningurinn að veruleika verður til stærsta fríverslunarsvæði í heiminum. Viðskipti erlent 9. janúar 2026 13:25
Settir í bann frá landsliðinu nema þeir semji fyrst í Argentínu Argentínska knattspyrnusambandið segist hér eftir útiloka leikmenn frá unglingalandsliðum ef þeir yfirgefa Argentínu áður en þeir skrifa undir sinn fyrsta atvinnumannasamning. Fótbolti 2. janúar 2026 18:40
Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Santiago Montiel, leikmaður Independiente í Argentínu hlaut Puskas verðlaunin fyrir flottasta mark ársins 2025 í knattspyrnuheiminum. Fótbolti 16. desember 2025 18:42
Lögregla með rassíu hjá argentínska sambandinu Argentínska lögreglan gerði áhlaup á skrifstofur knattspyrnusambandsins og nokkurra argentínskra fótboltafélaga í gær. Aðgerðin var liður í yfirstandandi spillingarrannsókn. Fótbolti 10. desember 2025 07:32
Dæmdu forsetann og alla leikmenn í bann Forráðamönnum argentínska knattspyrnusambandsins var lítið skemmt þegar leikmenn Estudiantes de la Plata þar í landi neituðu að standa heiðursvörð um nýkrýnda meistara Rosario Central. Rosario fékk afhentan nýjan meistaratitil með skömmum fyrirvara. Fótbolti 28. nóvember 2025 10:32
Gömul hetja Argentínu ekki sammála að Messi-liðið sé besta landslið sögunnar Argentínska landsliðið hefur verið á mikilli sigurgöngu síðustu ár en fær kannski of mikið lof að mati manns sem þekkir það að vera hetja argentínsku þjóðarinnar. Fótbolti 22. nóvember 2025 22:33
Liði Di María afhentur nýr titill að því er virðist upp úr þurru Argentínska knattspyrnusambandið lýsti því yfir í gær að Rosario Central væri deildarmeistari ársins 2025 og afhenti liðinu nýstofnaðan titil. Fótbolti 21. nóvember 2025 13:00
Rekin eftir að hafa orðið valdur að ógildingu Maradona-réttarhaldanna Argentínskur dómari hefur verið leystur frá störfum eftir að þátttaka hennar í heimildamynd varð til þess að réttarhöldin yfir heilbrigðisstarfsfólkinu sem annaðist Diego Maradona síðustu ævidaga hans voru ógild. Fótbolti 19. nóvember 2025 07:02
Eins og á gamlárskvöldi á Íslandi inni á leikvanginum Stuðningsmenn argentínska fótboltafélagsins Racing Club buðu upp á ótrúlega flugeldasýningu fyrir afar mikilvægan leik gegn Flamengo í undanúrslitum Suður-Ameríkubikars félagsliða, Copa Libertadores. Fótbolti 2. nóvember 2025 08:32
Milei vann stórsigur í Argentínu Javíer Milei forseti Argentínu leiddi flokk sinn til stórsigurs í þingkosningum sem fram fóru í landinu um helgina. Kosið er um hluta þingsæta á miðju kjörtímabili fosetans og er sigurinn sagður skýrt merki um að landsmenn séu margir ánægðir með áherslur hans í efnahagsmálum sem hafa endurspeglast í miklum niðurskurði og frjálshyggju. Erlent 27. október 2025 07:30
Allt undir hjá forsetanum hárprúða Argentínumenn ganga í dag til þingkosninga sem taldar eru prófsteinn fyrir Javier Milei, hinn hárprúða forseta landsins. Róttæk frjálshyggja hans er undir í kosningunum enda hægara sagt en gert að koma stefnumálum sínum í gegn án fleiri sæta í þinginu. Erlent 26. október 2025 18:52
Rödd Íslendinga í hinsegin baráttu hafi aldrei verið mikilvægari Fyrrverandi sendifulltrúi Bandaríkjanna í málefnum hinsegin fólks segir að mikið bakslag hafi orðið í málaflokknum um allan heim eftir að Bandaríkjaforseti dró úr stuðningi. Hætta sé á að fleiri hinsegin einstaklingar muni láta lífið en áður vegna vaxandi ofsókna. Mikilvægt sé að rödd Íslands heyrist í baráttunni. Innlent 19. október 2025 20:30
Hjálpin frá Trump gæti kostað Milei Ráðamenn innan ríkisstjórnar Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, leita leiða til að tvöfalda fjárhagsaðstoð til Argentínu, vegna efnahagskragga þar. Þannig stendur til að aðstoða Javier Milei, forseta landsins, með fjörutíu milljarða dala fjárhagsaðstoð en eingöngu ef flokkur forsetans sigrar í þingkosningunum seinna í þessum mánuði. Erlent 16. október 2025 13:11