Landnemarnir - Þrælahald og kvennabúr Geirmundar heljarskinns
„Það segja vitrir menn, að hann hafi göfgastur verið allra landnámsmanna á Íslandi,“ segir Landnámabók um Geirmund heljarskinn. Hann var sagður konungssonur og vellauðugur, svartur mjög en „heljarskinn“ þýðir hörundsdökkur. Konungsgarður Geirmundar í Noregi og landnám hans við Breiðafjörð verða skoðuð í fylgd Bergsveins Birgissonar rithöfundar í þættinum Landnemarnir á Stöð 2 mánudagskvöld, 14. mars kl. 20.15.
 
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                    