Eitthvað annað - Gæti lokkað unga fólkið heim í þorpin
Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík, segist nú ekki vera neinn frumkvöðull, heldur hrifnæmur, hvatvís og trúgjarn maður, sem satt að segja geti verið vond blanda fyrir mann í hans stöðu. Aðrir segja hins vegar að hann sé driffjöðurinn á bak við Codland, eitt framsæknasta sjávarútvegsverkefni landsins sem hefur það háleita markmið að nýta hvern þorsk 100%, búa til peninga úr hverju einasta snitt sem til fellur.