Ásta Eir kvaddi með titli: „Sátt í hjarta mínu“
Eftir að hafa landað sjálfum Íslandsmeistaratitlinum með Breiðabliki um nýliðna helgi, þeim þriðja á ferlinum, greindi Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, frá því á sunnudaginn síðastliðinn að skórnir væru komnir á hilluna. Ákvörðun Ástu kom vafalaust mörgum á óvart en hún á þó sinn aðdraganda.
 
                                                         
                                                         
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                     
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                    