Fjölbreytileiki starfsfólks er mikilvægur þáttur í fyrirtækjamenningunni
Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður stjórnar Festu – miðstöðvar um sjálfbærni, afhenti sérstök hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi framtak á sviði sjálfbærni. Í ár fékk Nói Síríus verðlaunin. Harpa Þorláksdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Nóa Síríus, og Halla Björk Vigfúsdóttir, inngildingarstjóri Nóa Síríus, kíktu í stutt viðtal.