Mjúkar sveiflur og fimir dansarar í Hlégarði
Fótafimir eldri borgarar tóku yfir dansgólfið í félagsheimilinu Hlégarði í dag til að fagna sjötíu og fimm ára afmæli félagsheimilisins og einskær gleði sveif yfir vötnum. Hlégarður hefur verið mikilvægur samkomustaður Mosfellinga í fleiri áratugi og gegnt lykilhlutverki í félagslífi bæjarins.