„Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 4. nóvember 2026 11:47 Það var mikið fjör á teknókvöldinu Kjallaranum á Selfossi í sumar. Aðsend Rave-ið virðist eiga marga aðdáendur hér á landi en næstkomandi laugardag 7. nóvember verður önnur útgáfa teknókvöldsins Kjallarans haldin á Sviðinu á Selfossi. Eftir vel heppnaða frumraun í sumar snýr rave-viðburðurinn aftur með enn stærri upplifun, alþjóðlega plötusnúða, þrjár hæðir og fjölbreytta dagskrá sem teygir sig langt út fyrir dansgólfið.
Þegar Kjallarinn var haldinn í fyrsta sinn í sumar vissi enginn alveg við hverju var að búast. Viðburðurinn seldist upp og viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum skipuleggjenda. Þægilegir skór lykilinn „Fólk var farið að spyrja um næsta kvöld áður en það var komið heim,“ segir Ágúst Helgi Jónsson, stofnandi Kjallarans. Ágúst er Selfyssingur, ólst upp í Grímsnesi og hefur starfað við tónlist og viðburðahald erlendis um árabil, meðal annars í Noregi. „Við vissum að það væri eftirspurn eftir raftónlist á Íslandi, en að fyrsta kvöldið skyldi seljast upp kom okkur skemmtilega á óvart. Svo er þetta líklega eina löglega rave-ið á Íslandi,“ bætir Ágúst við brosandi. Hann segir Kjallarann vera mun meira en hefðbundna kvöldskemmtun. „Við hugsum þetta sem heildarupplifun þar sem tónlist, ljós, umgjörð og stemning mynda eina heild. Það eina sem gestir þurfa að koma með eru þægilegir skór til að dansa í.“ Alþjóðleg teknóstemning mætir íslenskri neðanjarðarsenu Á aðalsviðinu mætast ólíkir heimar raftónlistarinnar. „Frá Gautaborg í Svíþjóð kemur ARANEA, sem hefur vakið athygli á alþjóðlegu hard techno-senunni og komið fram á viðburðum á borð við Teletech. Með henni stíga á svið KA LEIGH og AYOBE, sem bæði snúa aftur eftir fyrri útgáfu Kjallarans. Þá sameina íslensk-norski tónlistarmaðurinn ROMEO VALÉ og norska JULIETTE krafta sína í sérstöku back-to-back setti þar sem hard techno og psytrance mætast.“ View this post on Instagram A post shared by KJALLARINN (@kjallarinn_ofc) Í lounge-rýminu sjá íslensku plötusnúðarnir G. LOGI og STONEY um að byggja upp stemninguna áður en aðalsviðið tekur við. „Við vildum ekki bara fá góða plötusnúða til að spila. Við viljum skapa kvöld þar sem ólíkir tónlistarheimar mætast og gestir fá að upplifa eitthvað sem þeir finna ekki á hverjum degi hér á landi. Það er ekki á hverjum degi sem alþjóðlega techno-senan mætir til landsins,“ segir Ágúst. Húðflúr, pop-up og rúta heim Tónlistin verður þó ekki það eina sem boðið verður upp á. „Á þriðju hæð hússins tekur MOONSTONE TATTOO REYKJAVÍK yfir með þremur af sínum færustu húðflúrlistamönnum. Gestir geta fengið sér húðflúr á staðnum og valið úr fjölbreyttu úrvali, allt frá smáum og einföldum flúrum yfir í dekkri og djarfari verk.“ Lounge-rýmið verður opið frá klukkan 18 til 22, en aðalsviðið tekur við klukkan 22 og heldur fjörinu gangandi til klukkan fjögur um nótt. Að viðburðinum loknum verður boðið upp á rútuferð til Reykjavíkur. „Með fyrstu útgáfuna uppselda og enn metnaðarfyllri dagskrá að þessu sinni stefnir allt í að Kjallarinn festi sig enn frekar í sessi sem einn af áhugaverðari raftónlistarviðburðum landsins,“ segir Ágúst að lokum. Hér má nálgast nánari upplýsingar um viðburðinn.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira