Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar 3. nóvember 2026 14:16 Eða erum við jafnvel á leið aftur á bak? Á sama tíma og kvennaknattspyrna í Evrópu hefur tekið stórkostlegum framförum á undanförnum árum virðumst við á Íslandi vera að missa af lestinni. Áhorfendamet falla, fjárfestingar aukast, umfjöllun fjölmiðla verður meiri og stærstu knattspyrnufélög heims gera sér sífellt betur grein fyrir þeim tækifærum sem felast í kvennaknattspyrnu. En hvað erum við að gera hér heima? Erum við að byggja upp framtíðina eða erum við einfaldlega að halda úti kvennaliðum vegna þess að einhver segir okkur að við verðum að gera það? Evrópa hefur sýnt hvað er hægt – af hverju ekki Ísland? Á undanförnum árum hefur þróun kvennaknattspyrnu í Evrópu verið hreint ótrúleg. Barcelona hefur leikið fyrir meira en 90.000 áhorfendur á Camp Nou. Í undanúrslitum Meistaradeildar kvenna árið 2022 mættu 91.648 manns á leik Barcelona og Wolfsburg. Paris Saint-Germain hefur dregið yfir 40.000 áhorfendur á stórleiki og á Englandi, Spáni, í Þýskalandi og víðar hafa félög sýnt að kvennaknattspyrna getur verið stórkostleg íþróttaupplifun sem fólk er tilbúið að greiða fyrir. Og þetta snýst ekki bara um einstaka stórleiki. Á EM kvenna í Sviss árið 2025 mættu yfir 650.000 áhorfandi á 31 leik, eða að meðaltali rúmlega 21.000 áhorfendur á hvern leik. Það er meira en tvöfaldur heildaráhorfendafjöldi miðað við EM árið 2017 í Hollandi. Þetta gerðist ekki af sjálfu sér. Félög, knattspyrnusambönd, styrktaraðilar og fjölmiðlar tóku meðvitaða ákvörðun um að fjárfesta í kvennaknattspyrnu, byggja upp vörumerki, skapa fyrirmyndir og gera leikina að viðburðum sem fólk vill mæta á. Þau biðu ekki eftir því að áhuginn kæmi af sjálfu sér. Þau unnu markvisst að því að skapa hann. Og það er einmitt þar sem við á Íslandi virðumst vera að bregðast. Kvennalið sem skylduverkefni? Í íslenskri knattspyrnu hafa leyfiskröfur og skipulag félagsstarfs áhrif á það hvernig félög í efstu deildum karla sinna kvennaknattspyrnu. Hugmyndin um að efla kvennastarf samhliða karlastarfinu er auðvitað jákvæð. En það er grundvallarmunur á því að halda úti kvennaliði og því að byggja upp metnaðarfullt kvennastarf. Stundum fær maður á tilfinninguna að tilvist kvennaliðsins skipti sum félög meira máli en framtíð þess. Að það sé nóg að liðið sé skráð til leiks. Að það sé nóg að uppfylla lágmarkskröfur. Að það sé nóg að geta sagt að félagið sé líka með kvennalið. Á sama tíma er hægt að verja háum fjárhæðum í leikmannakaup, laun og rekstur meistaraflokka karla, á meðan kvennaliðin þurfa víða að berjast fyrir hverri krónu. Ég er ekki að halda því fram að öll félög starfi svona. Langt í frá. En það er erfitt að horfa fram hjá því að metnaðurinn, fjármagnið og athyglin virðast alltof oft vera í tveimur gjörólíkum flokkum innan sama félags. Af hverju ætti kvennaliðið að vera aukaatriði hjá félagi sem segist leggja jafna áherslu á knattspyrnu kvenna og karla? Atburðir síðustu vikna ættu að vekja okkur til umhugsunar þar sem ekki þarf að leita langt aftur í tímann til að finna dæmi sem vekja áhyggjur. Valur, eitt sigursælasta félag íslenskrar kvennaknattspyrnu, féll úr efstu deild í fyrsta sinn í sögu félagsins í október síðastliðnum. Félag sem varð Íslandsmeistari árið 2023 verður því í næstefstu deild árið 2027. Slík niðurstaða hlýtur að kalla á alvarlega umræðu um ákvarðanatöku, stefnumótun, fjárfestingar og forgangsröðun. Víkingur féll sömuleiðis úr Bestu deildinni í haust. Félag sem hefur sýnt gríðarlegan metnað í karlaknattspyrnu stendur nú frammi fyrir því verkefni að byggja kvennaliðið aftur upp og koma þeim í efstu deild. Vissulega getur hvaða lið sem er fallið. Það er hluti af íþróttum. En þegar félög hafa burði til þess að byggja upp öflug lið hlýtur að mega spyrja hvort sambærilegur metnaður sé lagður í kvenna- og karlastarfið. Á Austurlandi ákvað Höttur að slíta samstarfi við KFA um FHL í október. Samstarf sem hafði skapað vettvang fyrir kvennaknattspyrnu á svæðinu stendur því frammi fyrir miklum breytingum, með tilheyrandi óvissu fyrir leikmenn og aðstandendur. Og svo eru það Þór og KA á Akureyri. Þann 2. nóvember var tilkynnt að KA myndi ekki endurnýja samstarfssamning félaganna um kvennaknattspyrnu. Þar með lýkur áratugalöngu samstarfi sem skilaði meðal annars tveimur Íslandsmeistaratitlum, árin 2012 og 2017. KA hyggst byggja upp eigið kvennalið og Þór halda áfram sjálfstætt. Það getur vissulega reynst jákvæð þróun. Fleiri félög með metnaðarfull kvennalið ættu að vera fagnaðarefni. En þá þarf metnaðurinn líka að vera raunverulegur. Akureyri er ekki stórborg. Þar búa rúmlega 20.000 manns og nú er stefnt að því að reka tvö sjálfstæð meistaraflokkslið kvenna í stað eins sameiginlegs liðs sem hefur verið meðal þeirra bestu á Íslandi. Er nægur leikmannafjöldi til staðar? Eru nægir fjármunir? Eru nægilega margir þjálfarar, sjálfboðaliðar og stuðningsmenn til að byggja upp tvö öflug lið til lengri tíma? Kannski. Og ég vona það sannarlega. En þetta eru spurningar sem verður að svara áður en ákvarðanir eru teknar, ekki eftir að afleiðingarnar koma í ljós. Hvar eru fjölmiðlarnir? Það er ekki nóg að félögin sjálf standi sig betur. Fjölmiðlar þurfa líka að axla ábyrgð. Umfjöllun um íslenska kvennaknattspyrnu er að mínu mati langt frá því að vera í samræmi við gæði íþróttarinnar eða þann fjölda stúlkna og kvenna sem stunda hana. Það er stundum eins og kvennaboltinn verði aðeins fréttnæmur þegar eitthvað stórkostlegt gerist. Þegar landsliðskona skorar erlendis, þegar lið vinnur titil eða þegar einhver stór ákvörðun veldur deilum. En hvar er daglega umfjöllunin? Hvar eru viðtölin við ungu leikmennina sem eru að stíga sín fyrstu skref í Bestu deildinni? Hvar eru greiningarnar, upphitunin fyrir leiki, leikmannakynningarnar og sögurnar sem skapa áhuga? Af hverju þarf áhugafólk um íslenska kvennaknattspyrnu oft að hafa meira fyrir því að fylgjast með sínum liðum en þeir sem fylgjast með karlaboltanum? Upplýsingar um leiki, stöðu, úrslit og tölfræði ættu að vera aðgengilegar, skýrar og uppfærðar með áreiðanlegum hætti. Það á ekki að vera sérstakt verkefni að komast að því hvað er að gerast í leik í efstu deild kvenna. það er árið 2026. Það ætti að vera sjálfsagt að geta fylgst með íslenskri kvennaknattspyrnu í beinni, hvort sem maður er á vellinum, heima í stofu eða með símann í hendinni. Landsliðið á skilið miklu meira. Svo er það íslenska kvennalandsliðið. Við höfum átt frábærar knattspyrnukonur um áratugaskeið. Leikmenn sem hafa náð langt erlendis, leikið með stórum félögum og verið fyrirmyndir fyrir þúsundir íslenskra stúlkna. Samt virðist okkur ganga ótrúlega illa að skapa almennilega stemningu í kringum heimaleiki landsliðsins. Árið 2026 fengum við tækifæri til að sjá íslenska landsliðið mæta stórveldum kvennaknattspyrnunnar, með nokkrum þekktustu leikmönnum heims innanborðs. Hvernig stendur þá á því að við náum ekki að fylla Laugardalsvöll? Við erum þjóð sem hefur sýnt að hún kann að styðja sín landslið. Við höfum ferðast þúsundum saman til útlanda, sungið, öskrað og skapað stemningu sem hefur vakið athygli um allan heim. En þegar landslið kvenna leikur á heimavelli virðist stundum eins og allt önnur þjóð mæti. Og það er ekki eingöngu stuðningsmönnum að kenna. KSÍ þarf að gera miklu betur í markaðssetningu þessara leikja. Það dugar ekki að birta nokkrar færslur á samfélagsmiðlum, tilkynna hvenær leikurinn fer fram og vona að fólk mæti. Kvennalandsliðið þarf markvissa, skapandi og stöðuga markaðssetningu. Það þarf að byggja upp tengsl við yngri iðkendur, fjölskyldur, skóla og knattspyrnufélög. Það þarf að kynna leikmennina, segja sögurnar þeirra og skapa spennu löngu áður en flautað er til leiks. Það þarf að gera landsleik að viðburði sem fjölskyldur vilja upplifa saman. Ef við ætlum að fylla völlinn verðum við fyrst að gefa fólki ástæðu til að vilja mæta. Hvar eru stuðningsmennirnir? Við getum gagnrýnt félögin, KSÍ og fjölmiðlana eins mikið og við viljum. En við verðum líka að líta í eigin barm. Hvar erum við sjálf? Af hverju eru stundum aðeins örfáir tugir eða nokkur hundruð manns á leikjum í efstu deild kvenna? Hvernig stendur á því að félög með stóran hóp iðkenda, þúsundir félagsmanna og áratugalanga knattspyrnusögu eiga í erfiðleikum með að fá fólk á leiki kvennaliðanna sinna? Tökum Breiðablik sem dæmi. Félagið hefur um árabil verið meðal þeirra bestu í íslenskri kvennaknattspyrnu, unnið titla, tekið þátt í Evrópukeppnum og alið upp framúrskarandi knattspyrnukonur. Samt er það mín upplifun að mætingin á marga heimaleiki sé langt undir því sem slíkt félag ætti að geta vænst. Og þetta á auðvitað við um mun fleiri félög. Við segjumst styðja félagið okkar. En styðjum við félagið eða styðjum við bara karlaliðið? Það er ágætt að spyrja sig að því. Og félögin sjálf þurfa að spyrja sig annarrar spurningar: Hvað eru þau að gera til að fá fólk á völlinn? Eru þau að kynna leikina nægilega vel? Eru þau að virkja iðkendur yngri flokka? Eru þau að skapa stemningu og upplifun fyrir fjölskyldur? Eru þau að gefa stuðningsmönnum ástæðu til að mæta aftur og aftur? Það er ekki nóg að ætlast til stuðnings. Það þarf líka að vinna fyrir honum. Fjárfesting, ekki bara útgjöld Eitt af því sem mér finnst merkilegast við umræðuna um íslenska kvennaknattspyrnu er hversu oft hún virðist snúast um hvað hlutirnir kosta. Það er dýrt að reka kvennalið. Það eru litlar tekjur. Það mæta fáir á leiki. Það eru ekki nógu margir styrktaraðilar. En hversu oft spyrjum við okkur hvað við gætum fengið til baka ef við gerðum hlutina almennilega? Ég velti því stundum fyrir mér hvort það sé raunverulega svo kostnaðarsamt að byggja upp eitt af bestu kvennaliðum landsins, lið sem berst um Íslandsmeistaratitil og sæti í Evrópukeppni ár eftir ár. Er sá kostnaður í raun sambærilegur við það sem sum félög eru tilbúin að leggja í meðalsterkt karlalið? Ég hugsa það. En jafnvel þótt reksturinn væri kostnaðarsamari en við höldum, þá er grundvallarspurningin enn sú sama: Af hverju lítum við svo oft á peninga sem fara í kvennaknattspyrnu sem kostnað, en peninga sem fara í karlaknattspyrnu sem fjárfestingu? Hvað ef við myndum gera raunverulega metnaðarfulla styrktarsamninga fyrir kvennaliðin? Hvað ef við myndum markaðssetja leikmennina betur, byggja upp tengsl við fyrirtæki, skapa öfluga samfélagsmiðla og selja leikina sem fjölskylduvæna íþróttaviðburði? Hvað ef við myndum hætta að bíða eftir því að tekjurnar aukist áður en við fjárfestum og byrja þess í stað að fjárfesta skynsamlega til þess að skapa meiri tekjur? Vissulega er íslenski markaðurinn lítill og engin trygging fyrir því að allar fjárfestingar skili sér. En það er ekki afsökun fyrir því að reyna ekki. Við verðum að hætta að nota núverandi stöðu kvennaknattspyrnunnar sem rök fyrir því að hún geti ekki orðið eitthvað miklu meira. Við þurfum að krefjast meira til þess að fá meira. Það er líka verið að gera góða hluti Það væri ósanngjarnt að mála allt kolsvart. Það eru félög á Íslandi sem virðast vera að vinna mjög gott starf í kvennaknattspyrnu og þau eiga skilið hrós. FH er þar gott dæmi. Árangur liðsins í Bestu deildinni árið 2026 sýnir að hægt er að byggja upp samkeppnishæft lið og vera í baráttu við þau bestu. FH lauk fyrstu 18 umferðum deildarinnar með jafnmörg stig og Breiðablik, sem þá var í efsta sæti. Slíkur árangur vekur athygli og vonandi hvetur það fleiri félög til að sýna sambærilegan metnað. En árangur á vellinum er aðeins einn hluti af verkefninu. Við þurfum líka félög sem eru tilbúin að hugsa stórt utan vallar, byggja upp áhorfendamenningu, efla markaðsstarf, skapa sterkari tekjustrauma og gera kvennaknattspyrnu að sjálfsögðum og mikilvægum hluta af starfsemi sinni. Ekki vegna þess að það sé skylda. Heldur vegna þess að það sé tækifæri. Hvað ætlum við að gera í þessu? Það er auðvelt að skrifa gagnrýna grein, benda á það sem miður fer og krefjast breytinga. En það þarf líka að fylgja orðunum eftir. Ég vil sjá KSÍ setja fram skýra og metnaðarfulla áætlun um fjölgun áhorfenda á kvennaleikjum, bæði hjá landsliði og félagsliðum. Ég vil sjá félögin setja sér mælanleg markmið um uppbyggingu kvennastarfsins, markaðssetningu og tekjuöflun. Ég vil sjá fjölmiðla gefa íslenskri kvennaknattspyrnu það pláss sem hún á skilið, ekki bara þegar eitthvað fer úrskeiðis heldur líka þegar vel gengur. Ég vil sjá öflugri samstarfssamninga, meiri sýnileika leikmanna, betra aðgengi að upplýsingum og leiki sem fólk hlakkar til að mæta á. Og umfram allt vil ég sjá okkur stuðningsmennina taka þátt í breytingunni. Við getum ekki öll verið styrktaraðilar. Við getum ekki öll setið í stjórnum félaga eða haft áhrif á ákvarðanir KSÍ. En við getum öll gert eitthvað. Við getum mætt á völlinn. Við getum tekið börnin okkar með. Við getum hvatt vini okkar til að mæta. Við getum fylgst með kvennaliðunum, deilt fréttum af þeim og sýnt leikmönnunum að við höfum áhuga á því sem þær eru að gera. Og þegar við gerum kröfur til félagsins okkar getum við líka spurt hvernig það hyggst efla kvennaknattspyrnuna. Því það er ekkert náttúrulögmál að kvennaknattspyrna á Íslandi eigi að vera lítið áberandi, illa sótt eða fjárhagslega vanmetin. Staðan getur breyst. En hún breytist ekki af sjálfu sér. Við styðjum félagið okkar. Ekki bara strákana. Ég hef enga trú á því að skortur á hæfileikum sé vandamálið í íslenskri kvennaknattspyrnu. Við eigum frábærar knattspyrnukonur, metnaðarfulla þjálfara, efnilegar stelpur og félög með mikla sögu. Það sem okkur vantar er meiri sameiginlegur metnaður. Metnaður stjórnenda til að fjárfesta. Metnaður KSÍ til að leiða breytingarnar. Metnaður fjölmiðla til að segja sögurnar. Og metnaður okkar sjálfra til að mæta og styðja. Þegar ung stelpa byrjar að æfa fótbolta á hún að geta látið sig dreyma um að spila fyrir framan fulla stúku hjá sínu félagi. Hún á að geta séð fyrirmyndir sínar í fjölmiðlum, fylgst með þeim í hverri viku og fundið að árangur þeirra skipti máli. Ekki bara þegar þær komast í landsliðið eða skrifa undir hjá erlendu stórliði. Heldur líka hér heima. Í búningi félagsins síns. Á vellinum þar sem þær ólust upp. Við erum alltaf að tala um mikilvægi þess að styðja íslenska knattspyrnu. En íslensk knattspyrna er ekki bara karlaknattspyrna. Hún er líka stelpurnar okkar. Dætur okkar, systur, frænkur, vinkonur og allar þær konur sem leggja á sig ómælda vinnu til að stunda íþróttina sem þær elska. Þær eiga skilið sömu virðingu, sama metnað og sama stuðning. Það er kominn tími til að við sýnum það í verki. Mætum á völlinn. Styðjum stelpurnar. Gerum meiri kröfur. Því ef við segjumst styðja félagið okkar, þá eigum við að styðja allt félagið í heild sinni. Með þessum skrifum er ég alls ekki að setja útá hvernig málum er háttað hjá karlaliðunum, ég vil bara sjá sama metnað og sömu fjárfestingar hjá kvennaliðum. Höfundur er Formaður barna- og unglingráðs knattspyrnudeildar Fylkis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fótbolti Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun