Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar 3. nóvember 2026 13:30 Hvernig verður að ferðast um íslenska vegi í framtíðinni? Mun ökutækið sjá um aksturinn, greina hættur, velja öruggan hraða og bregðast við áður en slys verður eða munum við enn treysta fyrst og fremst á okkar eigin athygli og dómgreind? Líklega verður framtíðin ekki annaðhvort/eða, heldur samspil öruggari ökutækja, betri innviða og breyttrar hegðunar. Spurningin er hvernig við nýtum það samspil til að færri slasist og enginn þurfi að láta lífið í umferðinni. Á undanförnum áratugum hefur margt áunnist í umferðaröryggi, þótt enn sé verk að vinna. Ökutækin og vegakerfið hafa orðið öruggari og vitund um mikilvægi öruggrar hegðunar hefur aukist. Aðskilnaður akstursstefna og bættur öryggisbúnaður eru dæmi um lausnir sem geta komið í veg fyrir slys eða mildað afleiðingar þeirra. Um leið hefur samfélagið breyst þar sem við gerum kröfur um greiðar samgöngur allt árið, ferðamátum hefur fjölgað og ólíkir vegfarendur deila sama rými. Á sama tíma boðar aukin sjálfvirkni ökutækja miklar breytingar. Framtíðarverkefnið er því ekki aðeins að gera betur það sem við gerum nú þegar, heldur einnig að búa okkur undir aðstæður sem við þekkjum ekki að fullu í dag. Þegar rætt er um umferðaröryggi er gjarnan horft til þriggja meginþátta; manneskjunnar, ökutækisins og innviðanna. Mikilvægast er þó samspil þeirra, þar sem einn eða fleiri þættir geta brugðist og valdið alvarlegum slysum. Best er ef samspilið er þannig að aðrir þættir grípi inn í og komi í veg fyrir slys eða dragi úr alvarleika þess. Frá aðstoð til sjálfvirkni Sjálfkeyrandi ökutæki vekja eðlilega forvitni, en þróunin hefst ekki þann dag sem stýrið hverfur. Hún er þegar hafin með búnaði sem aðstoðar ökumann við afmarkaða þætti akstursins. Aðlagandi hraðastillir getur stillt hraða með hliðsjón af umferðinni fram undan. Akreinastuðningur getur hjálpað ökumanni að halda ökutækinu á akrein og sjálfvirk neyðarhemlun brugðist við yfirvofandi árekstri. Þessi búnaður gerir ökutækið þó ekki sjálfkrafa sjálfkeyrandi. Ökumaður þarf að þekkja virkni búnaðarins og takmarkanir hans og sinna því hlutverki sem viðkomandi kerfi krefjast. Munurinn á aðstoðarkerfi og sjálfvirku aksturskerfi skiptir grundvallarmáli. Að láta ökutæki aðstoða við stýringu og hraða er ekki það sama og að fela því aksturinn. Þegar þangað er komið vakna líka spurningar um ábyrgð. Sjálfvirkur akstur getur verið bundinn við ákveðin svæði, vegi eða veðurskilyrði. Kerfi sem ræður vel við afmarkaðar aðstæður er ekki þar með fært um að aka alls staðar. Traust verður að byggjast á staðfestri getu og skýrri verkaskiptingu. Fleiri leiðir að sama markmiði Sjálfvirkni er þó aðeins ein hlið framtíðarsamgangna. Við viljum komast örugglega, greiðlega og með hagkvæmum og umhverfisvænum hætti milli staða. Öflugri almenningssamgöngur, öruggar göngu- og hjólaleiðir og betri tenging milli ferðamáta myndu gera fleirum kleift að velja það sem hentar hverju sinni. Einkabíllinn mun þó áfram gegna mikilvægu hlutverki, ekki síst þar sem vegalengdir eru miklar og byggð dreifð. Markmiðið ætti því ekki að vera ein lausn fyrir alla, heldur öruggar og raunhæfar leiðir um ólíka ferðamáta eftir aðstæðum og þörfum. Hvernig skynjar bíllinn umhverfið? Hvernig getur ökutæki skynjað hættu og brugðist við henni? Við þróun aksturskerfa eru meðal annars notaðar myndavélar, ratsjár, leysiskannar, staðsetningarbúnaður og stafræn kort. Samsetning búnaðarins er mismunandi eftir kerfum. Myndavélar veita meðal annars upplýsingar um vegmerkingar og umferðarmerki, ratsjár mæla fjarlægð og hlutfallslegan hraða og leysiskannar geta kortlagt umhverfið í þrívídd. Hugbúnaður vinnur úr þessum upplýsingum og metur hvernig bregðast skuli við. Í því sambandi duga tiltækar upplýsingar ekki alltaf heldur verður búnaðurinn að sjá fyrir hvað líklega gerist næst, sem stundum er óútreiknanlegt, til dæmis þegar vegfarandi stígur óvænt út á akbraut. Á Íslandi getur meðal annars reynt á getu slíkra kerfa í myrkri, snjó, hálku og breytilegu skyggni. Það skiptir því ekki aðeins máli hvaða skynjarar eru á bílnum, heldur hversu áreiðanlega kerfið í heild ræður við þær aðstæður sem því er ætlað að starfa við. Tæknin þarf einnig að greina hvenær aðstæður eru utan þess sem hún ræður við og bregðast þá við með öruggum hætti. Við mat á nýjum lausnum þarf því ekki aðeins að horfa til þess hversu vel þær virka þegar allt gengur að óskum, heldur einnig hvernig þær bregðast við óvissu og bilunum. Mögulegar sviðsmyndir Enginn veit með vissu hvernig samgöngur framtíðarinnar líta út. Við getum þó velt upp sviðsmyndum sem eiga ekki að vera spár, heldur hjálpa okkur að sjá tækifæri, áhættu og þær ákvarðanir sem þarf að taka. Þær útiloka ekki hver aðra og gætu að hluta orðið að veruleika samtímis. Bíllinn verður betri aðstoðarmaður. Við ökum áfram sjálf, en öryggiskerfin verða hæfari til að greina hættu og grípa inn í. Ökutækið gæti fengið viðvörun um hálku eða kyrrstætt ökutæki áður en ökumaður sér aðstæðurnar. Ávinningurinn gæti orðið verulegur án þess að aksturinn verði að fullu sjálfvirkur. Áskorunin væri meðal annars að tryggja að fólk skilji búnaðinn og treysti honum ekki umfram getu hans. Jafnframt verður að hafa í huga að það tekur tíma fyrir nýja tækni að berast um bílaflotann. Sjálfvirk akstursþjónusta tengir ferðina saman. Smærri sjálfkeyrandi ökutæki gætu sótt farþega og tengt hverfi við stofnleiðir almenningssamgangna, fyrst á afmörkuðum svæðum og við skilgreind skilyrði. Samnýtt þjónusta gæti bætt aðgengi og nýtingu ökutækja. Árangurinn réðist þó af skipulaginu, bílar sem ækju tómir milli verkefna gætu aukið umferð í stað þess að draga úr henni. Sjálfvirkni væri því ekki sjálfkrafa samheiti yfir minni umferð eða minni umhverfisáhrif. Samgöngukerfið vinnur sem ein heild. Ökutæki og innviðir gætu miðlað upplýsingum um hættur, umferðarstýringu og færð þannig að bregðast mætti fyrr við. Í slíkri framtíð gæti verið auðveldara að fyrirbyggja hættulegar aðstæður í stað þess að bregðast við eftir að slys hefur orðið. En þá yrðu áreiðanleg gögn, varnir gegn netárásum og skýr ábyrgð enn mikilvægari. Kerfin þyrftu einnig að vera örugg fyrir þá sem væru ekki tengdir því eins og gangandi og hjólandi vegfarendur og fólk í eldri ökutækjum. Framtíðin gæti líka legið að hluta ofan við vegakerfið. Hugmyndir um fljúgandi ökutæki og rafknúin loftför sem geta tekið á loft og lent lóðrétt opna enn aðra sviðsmynd. Slík farartæki ætti þó fremur að hugsa sem nýja flugþjónustu en bíla sem einfaldlega hefja sig yfir umferðina. Öryggi, veður, hávaði, lendingarstaðir og stjórnun loftrýmis setja þeim sjálfstæð skilyrði. Þau gætu orðið viðbót fyrir tiltekin verkefni, en væru ekki ástæða til að fresta umbótum á samgöngum á jörðu niðri þar sem flest okkar ferðast. Innviðir framtíðarinnar byrja í dag Hvað þurfum við þá að gera? Byrja á því sem skilar öryggi óháð því hvaða sviðsmynd rætist: fækka hættulegum stöðum, aðskilja akstursstefnur þar sem við á, bæta vegamót og tryggja öruggar leiðir fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Skýrar og samræmdar merkingar, gott viðhald og vetrarþjónusta verða áfram mikilvæg. Nýr tæknibúnaður í ökutækjum kemur ekki í stað öruggra vega og getur ekki afnumið áhrif hraða, hálku eða lélegs skyggnis. Samhliða þarf að huga að stafrænum innviðum; uppfærðum upplýsingum um vegakerfið, hraðatakmarkanir, framkvæmdir og færð og öruggri miðlun þeirra. Áður en sjálfvirkum akstri er treyst fyrir stærri verkefnum þarf að sýna fram á öryggi hans við viðeigandi aðstæður og skýra ábyrgð, eftirlit og meðferð gagna. Líklegt er að um langt skeið verði ný og eldri tækni hlið við hlið. Umbæturnar verða því að gagnast blandaðri umferð, ekki aðeins nýjustu ökutækjunum. Á sama tíma þarf áfram að leggja áherslu á fræðslu og forvarnir sem stuðla að ábyrgri hegðun í umferðinni. Þótt tæknin geti aukið öryggi leysir hún ekki mannlega þáttinn af hólmi. Framtíðin er ekki sjálfgefin Það er freistandi að ímynda sér framtíð þar sem bílar gera engin mistök, allir fylgja reglunum og engir hættulegir staðir eru eftir á vegunum. Sú mynd getur verið gagnlegt leiðarljós, en hún er ekki loforð sem tæknin ein getur staðið við. Öruggari umferð verður til með samspili góðrar hönnunar, viðhalds, fræðslu, hegðunar, eftirlits og tækniframfara. Við þurfum bæði að nýta tækifærin og spyrja gagnrýninna spurninga um takmarkanir þeirra. Mikilvægasta spurningin er því ekki hvenær ökutækið geti tekið við af okkur, heldur hvernig hver ný lausn geti fækkað alvarlegum slysum og gert fólki auðveldara að ferðast örugglega. Við eigum að leyfa okkur að hugsa stórt um framtíðina, en ekki bíða eftir henni með það sem við getum bætt í dag. Höfundur er forstjóri Samgöngustofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samgöngumál Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun