Enski boltinn

Hjör­var gaf Ljungberg búning ís­lenska hand­bolta­lands­liðsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hjörvar Hafliðason með Freddie Ljungberg á Anfield í gær.
Hjörvar Hafliðason með Freddie Ljungberg á Anfield í gær. @synsport.is

Arsenal-goðsögnin Freddie Ljungberg elskar handbolta og Hjörvar Hafliðason kom heldur betur færandi hendi þegar þeir hittust á Anfield í gær.

Ljungberg var þarna mættur á leik Liverpool og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni eins og Hjörvar sem var fulltrúi Sýnar Sport á leiknum.

Ljungberg er hrifinn af handbolta eins og margir landar hans en að auki er íslenska handboltalandsliðið í miklu uppáhaldi hjá honum.

Hjörvar mætti með búning íslenska handboltalandsliðsins merktan Ljungberg og gaf sænsku goðsögninni. Ljungberg tók glaður við treyjunni eins og sjá má hér fyrir neðan.

Freddie Ljungberg er nú 49 ára gamall en skórnir fóru upp á hillu árið 2014. Hann lék með Arsenal frá 1998 til 2007 og varð tvisvar sinnum Englandsmeistari með liðinu auk þess að vinna þrjá bikarmeistaratitla.

Ljungberg var valinn leikmaður ársins tímabilið 2001-02 þegar Arsenal vann tvöfalt og hann skoraði 12 mörk í 25 deildarleikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×