Fótbolti

Dramatík í stór­leiknum í Þýska­landi

Sindri Sverrisson skrifar
Fabio Silva fagnar jöfnunarmarkinu gegn Bayern í kvöld.
Fabio Silva fagnar jöfnunarmarkinu gegn Bayern í kvöld. Getty/Alex Grimm

Bayern og Dortmund eru áfram jöfn á toppi þýsku 1. deildarinnar í fótbolta eftir 2-2 jafntefli í bráðfjörugum stórleik í München í kvöld.

Liðin eru því enn bæði taplaus með 18 stig eftir átta umferðir.

Bayern komst yfir með marki Konrad Laimer rétt fyrir hálfleik og nýi Gullboltahafinn, Harry Kane, fékk kjörið tækifæri til að tvöfalda forskotið en skaut í tréverkið úr vítaspyrnu á 56. mínútu.

Nokkrum mínútum síðar jafnaði Serhou Guirassy metin. Bayern gafst ekki upp og Dayot Upamecano kom liðinu í 2-1 þegar tæpur hálftími var eftir.

Þegar aðeins ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma náði Fabio Silva að jafna metin, eftir stöðuga pressu Dortmund, og 2-2 urðu lokatölur.

Leikurinn reyndist líka dýrkeyptur fyrir Bayern því þeir Ismael Saibari, Serge Gnabry og Michael Olise þurftu allir að fara af velli vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×