Enski boltinn

Sjáðu mörkin: Varnar­menn United eins og keilur og rautt spjald Martínez

Valur Páll Eiríksson skrifar
Chelsea-menn höfðu ástæðu til að fagna.
Chelsea-menn höfðu ástæðu til að fagna. Vísir/Guðmundur

Chelsea vann 2-0 sigur á Manchester United á Stamford Bridge í 9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Morgan Rogers og Cole Palmer gerðu gæfumuninn auk þess sem Lisandro Martínez fékk að líta rautt spjald.

Manchester United var töluvert sterkari aðilinn í fjörlegum fyrri hálfleik sem var þó á einhvern hátt markalaus.

enskiKúvending varð eftir hlé og United-menn voru rænulausir í varnarleiknum þegar Morgan Rogers tók á rás frá miðjuboga, inn á teiginn og lagði boltann í netið af stuttu færi.

Lisandro Martínez fékk svo að líta seinna gula spjald sitt er hann varðist glæfralega innan teigs eftir hornspyrnu og vítaspyrna dæmd að auki.

Cole Palmer skoraði seinna mark Chelsea sem vann 2-0 sigur.

Nánar má lesa um leikinn hér.

Mörkin má sjá í spilaranum að neðan.

Klippa: Chelsea 2-0 Manchester United



Fleiri fréttir

Sjá meira


×