Handbolti

Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sandra Erlingsdóttir og stöllur í íslenska landsliðinu eru komnar með talsvert mikla stórmótareynslu.
Sandra Erlingsdóttir og stöllur í íslenska landsliðinu eru komnar með talsvert mikla stórmótareynslu. Vísir/Getty

Arnar Pétursson landsliðsþjálfari hefur nú valið leikmannahópinn sem fer á EM kvenna í handbolta. Þetta verður fjórða stórmót stelpnanna okkar í röð.

EM fer fram í sex borgum, í fimm löndum, dagana 3.-20. desember. Ísland spilar sinn riðil í Oradea í Rúmeníu og mætir þar Slóveníu 3. desember, Svartfjallalandi 5. desember og Ungverjalandi 7. desember. Tvö efstu liðin fara áfram í milliriðil sem einnig verður í Rúmeníu, í borginni Cluj.

Áður en að EM kemur mun Ísland spila tvo vináttulandsleiki í Svíþjóð við heimakonur dagana 26. og 28. nóvember.

Vinstri hornamaðurinn Dana Björg Guðmundsdóttir er meidd og missir af mótinu af þeim sökum. Aðrar eru heilar og klárar í slaginn.

Leikmannahópurinn telur 17 leikmenn en Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari, segist ætla að halda því opnu að velja 18. leikmanninn sem muni fara með. Ein mun því bætast við fyrir brottför.

Athygli vekur að Andrea Jacobsen, leikmaður ÍBV, er ekki í hópnum en hún hefur tekið þátt í stórmótum síðustu þriggja ára.

Sara Dögg Hjaltadóttir, leikmaður ÍR, og Sonja Lind Sigsteinsdóttir úr Haukum eru báðar á leið á sitt fyrsta stórmót en aðrar hafa tekið þátt á mótum undanfarinna ára.

EM-hóp Íslands má sjá hér að neðan.

Markverðir:

Leikmaður - Félagslið - Landsleikir/mörk

  • Hafdís Renötudóttir - Valur - 82/5
  • Sara Sif Helgadóttir - Haukar - 27/0

Vinstra horn:

Leikmaður - Félagslið - Landsleikir/mörk

  • Lilja Ágústsdóttir - Sachsen Zwickau - 29/24
  • Rakel Oddný Guðmundsdóttir - Haukar - 16/19

Vinstri skyttur:

Leikmaður - Félagslið - Landsleikir/mörk

  • Lovísa Thompson - Benfica - 43/79
  • Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín - Thüringer - 18/11

Miðjumenn:

Leikmaður - Félagslið - Landsleikir/mörk

  • Sandra Erlingsdóttir - ÍBV - 51/212
  • Elín Rósa Magnúsdóttir - Blomberg-Lippe - 44/93
  • Elín Klara Þorkelsdóttir - Sävehof - 39/165
  • Sara Dögg Hjaltadóttir - ÍR - 9/13

Hægri skyttur:

Leikmaður - Félagslið - Landsleikir/mörk

  • Thea Imani Sturludóttir - Craiova - 100/233
  • Díana Dögg Magnúsdóttir - Blomberg-Lippe - 77/104

Hægra horn:

Leikmaður - Félagslið - Landsleikir/mörk

  • Katrín Anna Ásmundsdóttir - Fram -26/42
  • Sonja Lind Sigsteinsdóttir - Haukar - 9/8

Línu- og varnarmenn:

Leikmaður - Félagslið - Landsleikir/mörk

  • Katrín Tinna Jensdóttir - HH Elite - 39/48
  • Elísa Elíasdóttir - Valur - 35/34
  • Matthildur Lilja Jónsdóttir - ÍR - 13/1

Starfsteymi landsliðsins:

  • Aðalþjálfari: Arnar Pétursson
  • Aðstoðarþjálfari: Óskar Bjarni Óskarsson
  • Markmannsþjálfari: Hlynur Morthens
  • Liðsstjóri: Hrafnhildur Ósk Skúladóttir
  • Fararstjóri: Jón Gunnlaugur Viggósson
  • Fulltrúi HSÍ: Þórir Hergeirsson
  • Sálfræðingur: Erlendur Egilsson
  • Þrekþjálfari: Hjörtur Hinriksson
  • Sjúkraþjálfarar: Tinna Jökulsdóttir og Jóhanna Björk Gylfadóttir
  • Formaður HSÍ: Jón Halldórsson
  • Framkvæmdastjóri HSÍ: Sólveig Jónsdóttir
  • Fjölmiðlafulltrúi: Daníel Franz Davíðsson
  • Ljósmyndari: Guðmundur Lúðvíksson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×